Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

þriðjudagur, apríl 24, 2007

Eins og sést er vesen á spjallinu, ekkert nema bull innlegg sem ryðjast inn á borðið og ég kann ekkert í þessu. Svabbi bróðir ætlar að kippa þessu í liðinn því að hann er svo klár og góður drengur.
Gaman að segja frá því að nú er ég að fóstra sport sedaninn sem ég flutti inn fyrir Þórð, það verður sjálfsagt skotist með hann svona rétt í þvott og annað :-) eða eitthvað............

Maður sem kvartar undan tímaskorti er annaðhvort óskipulagður eða tekur of mikið að sér. Ég er sennilega bæði........:-)


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:10:39 PM