Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

miðvikudagur, júní 18, 2008

Ekkert skrif í heilt ár, það er nokkuð gott er það ekki? Ég hef annars verið frekar bissí eins og svo margir vita, giftur, 4 ferðir erlendis, búið að rífa eldhúsið og brjóta upp gólfið, bílar að bila og svona gengur lífið fyrir sig hér á Álfhólsveginum. Ég sá mig samt tilneyddan til að bulla eitthvað hér inn því að Svabbi bróðir og félagar hans í Hraun eru auðvitað búnir að gefa út nýja plötu og ég bloggaði síðast um plötuna þeirra sem plötu vikunnar á rás 2.

Við erum semsagt að endurnýja eldhúsið hjá okkur og búa til eitt herbergi í leiðinni handa Stellu. Það eru miklar pælingar í gangi um innréttingu og gólfefni en við erum búin að leggja hitalögn í gólfið og ætlum að hafa hlýlegt í nýja eldhúsinu.


Nóni

Bloggað klukkan:9:33 AM