Velkomin á síðu Icesaab teymisins.

Ef maður ætlar að gera eitthvað að viti í tjúningum þá verður maður auðvitað að vera með "stand alone" forritanlega innspýtingartölvu, en það erum við einmitt með í SAABinum, auk þess að stjórna bæði innspýtingu og kveikju, eru margir fídusar í henni svo sem eins og búststjórnun, kæliviftustjórnun, auka bensíndælustjórnun ofl. ofl., þessi tölva er einnig í Golfinum hans Gunna og í SAABhjólinu hans óla. Hann Birkir er líka búinn að kaupa eina og á hún að fara í 900 SAABinn hans sem verður rosa flottur 8v turbo, Jón Einar er búinn að kaupa svona í Mustanginn sinn og svo er maður búinn að kaupa svona í ameríska bílinn sinn með stóru 8 sílendra vélinni og tveimur túrbínunum og það sem meira er að hann ætlar að keppa í sumar (2005) í mílunni. Síðast en ekki síst erum við búnir að fá Model B Analyzer sem er wide-band Air/Fuel ratio mælir og hann talar við tölvuna með Autotune og hjálpar all verulega með tjúningar.
 Hafið því endilega samband á netfang: saab@cool.is eða oli@stalnaust.is eða 6944933@talnet.is Einnig getum við svarað fyrirspurnum ef einhverjar eru, nánar um þetta á www.autronic.com