Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

mánudagur, júlí 28, 2003

Jæja, þá er búið að setja inn fleiri myndir og leiðrétta texta við sumar af hinum fyrri myndum. Einnig er búið að skrifa aðeins meira af bulli annarsstaðar á síðuna og laga linkinn á Gunna. Svo stendur til að setja inn myndir af fleiri SAAB bílum svosem bílnum hans Svabba bró, og 99unni og GLEinum hans Þóris (sem by the way er að breyta honum í T16, hetja Þórir), og leðursófanum hennar Bryndísar minnar o.fl. Ef þið eigið myndir af flottum SAAB bílum hér heima á klakanum eða SAAB bílunum ykkar, þá megið þið senda mér þær og við útbúum svona albúm hér á síðunni með íslenskum Sööbum......Söbum......SAAB bílum......dem þetta er erfitt. Ástand og aldur skipta engu, allir SAABar eru jafn réttháir og allir sérstakir hvort sem þeir eur gamlir eða nýjir, heita SAAB 92, 93, 94, 95, 96, 97, 99, 90, 900, 9000, 9-3, 9-5, tvígengis eða túrbó, blöndungur eða innspýting. Þeir eru ÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÐIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII.

Endilega senda myndir og texta með, á saab@cool.is og muzak@simnet.is og vonandi gætum við einn daginn stofnað íslenskan SAAB klúbb.

Kv. Nóni SAABnut

Bloggað klukkan:12:14 AM

þriðjudagur, júlí 22, 2003

Nú man ég það, það er búið að fresta keppninni sem átti að vera um næstu helgi. Eða er búið að aflýsa henni? Nei það á bara að halda hana seinna, eða nei þetta var keppnin sem var um daginn, sem átti að vera í ágúst, en keppnin sem var um helgina var ekki keppni eða þannig, bara svona tímatökur fyrir keppnina sem var 7. júní. Svo verða allar keppnirnar haldnar á einni helgi fyrst í september eða seinast í ágúst, til að brautarstarfsmenn geti farið niður í bæ og fengi sér ís og farið í sumarfrí. En ég er nú ekki alveg viss um þetta, það er pínu ruglingslegt að reyna að fylgjast með þessu.

Og hahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahaaha..................... það var engin tillakeppni haldin, engin þátttaka. Híhí.... þessir tillar, þeir eru nú eitthvað annað (something else) þora ekki að koma og keppa við mig og Imprezurnar og heimta flokk síðan mæta þeir ekki, hnusss suss, aular. Já ég segi það bara alveg eins og er, þeir rífa kjaft allan veturinn og langt fram á sumar að það verði nú að hafa flokk sem þeirra bíll geti unnið í, og svo mæta þeir ekkert. Fuss.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:1:30 AM

Áðan þurfti ég að segja eitthvað merkilegt en komst ekki hér inn, nú komst ég inn og er búinn að gleyma hvað ég ætlaði að segja. Baaaaaaaaa......

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:1:17 AM

sunnudagur, júlí 20, 2003

Það var aldeilis gott fyrir norðan, sólin skein og ég fór að veiða og gekk á fjöll, grillaði og drakk bjór, hvað er hægt að biðja um betra finnst maður fær ekki kvartmílu? Jæja hann Gunni fór út á braut á föstudagskvöldið til að æfa sig aðeins fyrir keppnina, og viti menn hann gat auðvitað ekki látið það vera að gera eitthvað til að gera betur en ég hafði gert svo að hann smíðaði prjóngrind á SAABinn. En allt kom fyrir ekki og kúplingin snuðaði bara, hvað finnst ykkur um kúplingu sem heldur í öllum gírum í keyrslu en snuðar úti á braut?
Dæmi 1: Ég er að keyra á 110 km hraða í fjórða og botna, vélin komin inn á power-bandið og togar allt til andskotans en ekki snuðar kúpplingin og sama sagan í fimmta gír.
Dæmi 2: Ég er að keyra í 3ja gír á 100 km hraða og botna þá spólar hann bara á þurru malbiki.
Sem sagt, þegar ég ætla svo að þrykkja honum á brautinni, þá snuðar allt draslið til helvítis, jafnvel í öðrum gír. Já þetta er ekki einleikið þetta helvíti. Jæja svona er þetta víst bara þegar maður ætlar út í eittthvað með enga peninga og ætlar að spara og spara, vildi að ég ætti meiri pening.

Kv. Nóni

saab@cool.is

Bloggað klukkan:11:51 PM

miðvikudagur, júlí 16, 2003

Ef einhver hér inni er svo klókur að vita um SAAB 99 eða 900 árgerð 1976-1978 eða gírkassa úr svoleiðis bíl, þá má hinn sami hafa samband við mig hið snarasta í síma 697 7596 eða 557 7696 eða saab@cool.is

Koma svo, þetta liggur einhversstaðar og bíður eftir að láta henda sér.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:8:10 AM

Já já, ókey það var rigning um síðustu helgi og engin kvartmíla, en næstu helgi ætla ég norður í land í bústað af því að það átti ekki að vera nein kvartmíla. Er þetta gjörsamlega ómögulegt eða hvað? er mér ekki ætlað að keppa í kvartmílu? Grrrrrrrr...... Þá hafið þið það, ég verð ekki með um helgina. En það gleður mig hins vegar að kynna fyrir ykkur varabílstjóra liðsins og aðalbifvélavirkja Guuuuuuunnaaaaaar Sigurðssooooooooooooooooon.

Að öðru, einn meðlimur L2C sem ég spjallaði við um daginn reyndi að móðga mig. Ég veit ekki af hverju en ég held að hann hafi verið öfundsjúkur, allavega gaf ég mig á tal við hann þar sem ég kom á hans vinnustað og spurði hann hvort hann ætlaði ekki að keppa í kvartmílu á sínum xxxxx xxx. Gaurinn varð nú frekar hissa á að ég þekkti hann en ég sagðist hafa séð hann á brautinni á föstudagskvöldið, og hann spurði um hæl, varst þú að spyrna og á hvaða bíl? Ég segi, já ég var á SAABinum. Hvað haldið þið að hann hafi sagt þá? Já hvað haldið þið? Hann sagði "á þessum ljóta", bíddu ég horfði á hann hissa og velti því fyrir mé hvað ég ætti að segja. Ég var orðlaus. Var einhver annar SAAB á brautinni að spyrna? Og var hann einhver dómari í fegurðarsamkeppni bíla?
Svipað atvik og þetta var mikið til umræðu á L2C spjallinu í vetur, menn voru miður sín yfir því að einhverjir asnar uppi á braut voru að míga yfir bílana þeirra. Þetta er líkt dæmi nema hvað að hvað var hann að opna munninn um bíl sem fer 13,56 á 181,3 á meðan hans bíll fer á 15,6 eða 16? Hvar er respectið fyrir því að eyða tíma og peningum í að komast hratt en ekki líta vel út?
Ef mér finnst bílar flottir eins og t.d. rauða Hondan hans Guðjóns þá segi ég honum að mér finnist bíllinn hans laglegur. Ef mér finnst bílar ekki flottir eins og t.d. haha þú hélst að ég myndi segja það og falla á eigin bragði híhíhí, nei þá segi ég frekar ekki neitt. En ef ljóti bíllinn getur eitthvað þá hrósa ég honum fyrir það.


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:12:18 AM

laugardagur, júlí 12, 2003

Æfing í kvöld, rosa stuð og margir að spyrna, ég líka. Fyrsta ferðin nýtt persónulegt met 13,56 á 181,? man ekki komma hvað, brósi er með miðann. Næsta ferð, kúplingin snuðaði. Hvers á ég að gjalda? Hvers vegna þarf bara allt að ganga á annarri afturlöppinni hjá mér? Af hverju getur þetta baara ekki gengið upp hjá mér? Ooooooo.....leiðindi, ég er líka pirraður yfir því að klúbbur eins og KK fer ekki eftir reglum sem þeir sjálfir setja eins og það að vera með hjálm þegar maður keyrir brautina voða hratt. Undir 14 sek. skaltu nota hjálm, þetta er það sem maður fær í svar þegar maður spyr, ókey ef það er málið þá verður það bara að vera svoleiðis, en mér finnst bara prinsip að vera með hjálm. Ég held að maður væri ekkiert mikið sáttur við að hafa sleppt hjálminum ef maður hefði náð 14,1 sek. á grjónadósinni sinni og þegar maður ætlaði að bremsa þá bara gerðist eitthvað sem enginn veit hvað var og maður liggur meðvitundarlaus einhversstaðar inni á Grensás af því að maður fór útaf brautinni á 160 km hraða á klst. Nei ekki einu sinni formaðurinn sjálfur setti á sig hjálm þegar hann fór á sínum fína Camaro á 13,7 sek. hnuss...... ég segi nú bara ekki meir. Jú ég ætla að skammast aðeins meira. Það kom rosa flottur Porche inn á brautina þegar ég var hættur, já bara laglegur djöfull og gott ef það stóð ekki aftan á honum GT3, klassi, en viti menn undir stýri var hvorki meira né minna en bílabúðarBenni sjálfur. Auðvitað kikknuðu allir í hnjánum þegar Benni kom á Porcheinum og hann spólaði allt í döðlur áður en merki var gefið, það var engu líkara en hann hefði bara fengið skammt í buxurnar (að framan) þegar hann var að hita dekkin. Benni stóð hann svo út brautina á 12,5 sek. og 178 km/klst. Æi þið vitið hvað ég er að meina það var eins og Guð sjálfur væri mættur á brautina, auðvitað þurfti hann ekki hjálm. En hvað með þennan hraða? Gamli Saabinn með 2.0 Turbo fer hraðar, ha......181,eitthvað. Hahahahaha ég er kominn í gott skap aftur. BAAAAAAAAA........... THE MIGHTY SAAB IS MINE.

KK, þið þurfið að taka á þessu, og stjórarmeðlimir þið þurfið að segja formanninum að þetta sé ekki hans einkaklúbbur og ekki leikskóli.

P.S. Þetta má alls ekki skiljast sem ég sé fúll að þurfa að vera með hjálm, þvert á móti myndi ég vera með hjálm þó ég þyrfti þess ekki.


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:1:29 AM

föstudagur, júlí 11, 2003

Halló öll, ég gleymdi auðvitað að kynna fyrir ykkur síðuna mína, en hún er að öllu leiti hönnuð og smíðuð af Svabba bróður sem er mynd af undir "krúið" hér til vinstri og einnig linkur á síðuna hans. Ég er mjög ánægður með síðuna sem slíka og finnst hún flott, það er hins vegar ýmislegt sem þarf að klára og laga og það skrifast víst á mig að eiginlega öllu leiti vegna þess að ég hef frekar lítinn tíma í það. Þar má helst nefna myndadálkinn sem er með annars ágætum myndum, en þær eru oftar en ekki með undarlegum textum hengdum við sig. Þetta er einfaldlega vegna þess að ég sendi brósa bara heim með myndirnar og sagði honum að setja þetta upp. Ekkert mál fyrir hann og seinna um kvöldið (kvöldið fyrir fyrstu keppni) var allt tilbúið. En þar sem að Svabbi veit jafn mikið um bíla og ég um tölvur þá urðu textar myndanna út og suður. Svabbi er samt ekki alvitlaus, hann keyrir jú um á SAAB híhí.
Ég þarf að fara til hans og leiðrétta þetta og setja inn meira af myndum. Hér er t.d. dálítið úr dótakassanum okkar Gunna.

http://www.villagephotos.com/pubgallery.asp?id_=9428

(þið verðið víst að gera copy/paste, ég kann ekki að linka ennþá)

Síðast en ekki síst er ég að sjálfsögðu búinn að skrá mig í keppnina á laugardaginn, sjáumst öll á brautinni.

Njótið vel, Nóni.

Bloggað klukkan:1:39 AM

miðvikudagur, júlí 09, 2003

Komið þið öll sæl, auðvitað eru fjöskyldumeðlimir oft líka vinir, þetta bara hljómar svo vel svona. Hvað um það, jú ég segi hvar myndi ég standa ef ekki væri fyrir vinina og fjölskylduna? Þetta fólk er alltaf til í að hjálpa manni í öllu því sem manni dettur í hug að gera, (eða svona næstum því öllu). Mamma alltaf til í að passa, Bryndís alltaf til í að taka tillit til mín (eiginlega alltaf:-), Svabbi bró alltaf til í að gera eitthvað tölvu og myndastúss, (þegar hann er ekki að spila úti á landi), Villi bró alltaf til í allt, Gunni vinur alltaf til í að hjálpa með bílinn (þegar hann er ekki að rembast við að fjölga mannkyninu), Óli alltaf til í allt (nema að fara út að hlaupa). Svona mætti lengi telja með allt það góða fólk sem ég nenni ekki að telja allt upp hér, ég hef jú annað að gera en að pikka hér í allt kvöld.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:8:30 PM

þriðjudagur, júlí 08, 2003

Eftir mikið bras og og svita var loksins árangur af erfiðinu, hraðametið féll og ég bætti minn persónulega tíma eins og sést á slippinu. Fyrra metið var 13,76 á 108,5 mílum (174,6km).

Þessa dagana er ég mikið að velta fyrir mér að skipta um bíl í kvartmílunni. Já ég viðurkenni það að SAABinn minn er of þungur. Það er ekki vænlegt til vinnings að vera með 1400 kg á framdrifinu, þannig að ég hef í huga að finna mér léttari bíl. Hvað finnst ykkur um það? Hvernig bíl ætti ég að fá mér? Túrbó að sjálfsögðu, 4 cyl, framdrifinn já líka (annars er þetta ekkert erfitt). Já þið gátuð rétt, gott hjá ykkur, auðvitað fæ ég mér annan SAAB að sjálfsögðu. Núna verður hann bara léttari.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:10:15 PM