|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
laugardagur, ágúst 30, 2003
For all my foreign guests, currently this site is only in icelandic but the pictures speak, just click on "Myndir" here on the left.
Bloggað klukkan:11:23 PM
Nýtt persónulegt tímamet á ÍsSaabinum!!!
HELVÍTI FLOTT!!!
Mont Mont Mont Mont montmontmontmont!!!
Takk, Óli, Gunni og allir hinir.
Bestu Kveðjur,
Nóni
Bloggað klukkan:4:48 PM
Múrverk
Já það er satt ég hef verið latur við að halda ykkur upplýstum hér á síðunni og biðst ég afsökunar á því. En það er ástæða fyrir því, ég var upptekinn við að múra skúrinn minn að utan því að kallinn á efri hæðinni vildi endilega fara út í viðhald á miðju kvartmílutímabili. Svo var ég líka pirraður yfir því að það skuli allt ganga á afturfótunum hjá mér og lagði bílnum bara hér í innkeyrslunni og hreyfði hann ekki neitt. Í gær gerðist ég nú samt svo djarfur að fara á honum í vinnuna og eftir vinnu skipti ég um o-hringinn sem er á fráfallsrörinu frá túrbínunni, og viti menn nú lekur ekki dropi af olíu af mínum fína SAAB. Það var nú samt ekki búið, ennþá fúskaði hann svo að við prófuðum að útbúa "cranc trigger" á hann, en það er nemi sem sendir boð til tölvunnar um hvar vélin er stödd. Ég og Óli vorum til að verða 4 í nótt að græja þetta og það er ekkert smá góð tilfinning þegar eitthvað virkar sem maður hefur verið að tilraunast og þá hættir maður alveg að vera þreyttur. Allavega erum við sennilega lausir við fúskið og getum farið að einbeita okkur að mikilvægari málum eins og að tjúna.
Að öðru, vefstjórinn minn, Svabbi bró, á að vera búinn að setja inn mydir af hjólinu hans Óla, hann er nefnilega búinn að setja mótorinn í og nú bara eftir að festa hann og útbúa keðjuna, þetta er nánast formsatriði sem hann kippir í liðinn fljótlega. Þetta verður hrikalegt, mótor með sömu virkni og mótorinn í mínum bíl og græja sem er tonni léttari víhíhíhí........ROSALEGT, ég er að segja ykkur af því.
Bloggað klukkan:9:34 AM
miðvikudagur, ágúst 20, 2003
Það var eitt sem ég gleymdi bara að minnast á í gær og það var Corvettan hans Steingríms, hvaða ógeðslega pústkerfi er þetta undir bílnum hjá þér Steingrímur? Það var hryllilegt hljóð í henni, hreint og beint ógeð, ekkert skárra en í kóreskum díselbíl með bilað pústkerfi. Hvar er 8 cylendra hljóðið sem er það eina góða við 8 cylendra vélar? Nei þetta var nú sennilega illa sagt hjá mér, það er fleira gott við þær, t.d. er hægt að setja á þær túrbínur og búa til óhemju af hestöflum, en þá þarf maður auðvitað að kaupa betri stimpla og sveifarás og hvaðeina. Það er eitthvað annað að heyra í Camaró Halldórs T. það er sko flott hljóð í honum. Hvað borgaðirðu eiginlega fyrir þetta pústkerfi? Þetta kalla ég sko að vera tekinn í tailpæpið.
Ég saknaði Einars Birgissonar, það er alltaf missir af honum því að hann er svo pró. Hann bara gerir þetta allt rétt nema hvað að hann virðist eiga við sama vandamál að stríða eins og ég og það er ást sína á bílnum sínum, þunga þunga bílnum sínum.
Og vitið þið hvað? Nei hvernig ættuð þið svo sem að vita það? En nú ætla ég að segja ykkur frá því, hann Óli vinur minn er kominn með nýja dellu og það er að koma fyrir SAAB vél í sérsmíðuðu mótorhjóli. Ekki amalegt það og ég ætla að sjá honum fyrir vél, þetta ætti nú að kæta flesta SAAB aðdáendur ef að af verður.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:12:42 AM
mánudagur, ágúst 18, 2003
Sælt veri fólkið og velkomin í Túrbóland, jæja, ekki eru allar ferðir farnar til fjár, það var einhver pest að ganga þarna úti á braut á sunnudaginn því að margir bílar heltust úr lestinni vegna bilana. Saabinn fór að leka olíunni all svakalega einhversstaðar undir túrbínunni en ég hafði einmitt eytt miklum tíma í að taka túrbínuna af og þétta affallsrörið frá henni stuttu áður.
Keppnin var mjög skemmtileg flott að sjá Rúdolf fara 10,66 og Gísla fara 10,76 og Grétar niður fyrir 9 sek. Einnig var flott að sjá hjólin fara, Viddi á glæsilegum tíma á dragganum og Sigurður á Súkkunni kominn niður fyrir 10 sek. Ég hélt að þessi útúrspeisaði ´67 Camaró myndi keyra hraðar, en ég veit svo sem ekki mikið um svona bíla. Dekkjaruglið í MC flokknum er nú aldeilis að segja til sín, þeir eru hver á fætur öðrum að síga niður í 12 sek. og það var virkilega leitt að sjá Ragnar og Sigga Jak. detta út því að þetta hefði getað orðið skemmtilegur slagur hjá þeim við Smára.
Hrósið frá mér fær Þröstur fyrir að vera með flottan bíl (að öðrum ólöstuðum, Siggi Jak, Ragnar og fleiri)
Bensíndælan virkar flott með aðstoð Autronic tölvunnar sem setur hana í gang við 4000 sn/mín. og 220 % álag (1.2 bar í bústi), þessi tölva er bara snilld. Talandi um Autronic tölvuna, þá erum við að slást við einhverjar villumeldingar sem við höldum að við vitum hvað sé og er verið að vinna í að fá í lag.
Það gaf sig á tal við mig maður á keppninni og sagði að við mættum nú alveg fara að þrífa Saabinn, ég tók honum fagnandi og sagði honum að það hefði staðið til en ekki unnist tími til verksins. Það er nú eiginlega bara tími til að gera eitthvað sem kemur honum hraðar, útlitið kemur seinna. En Harry, konan ætlar að þrífa hann fyrir næstu keppni, hún hefur reyndar þvegið hann og bónað, en hún kvartar yfir að meiða sig þegar hún rekur sig í ryðið.
Meira seinna, kveðja Nóni.
Bloggað klukkan:9:15 PM
miðvikudagur, ágúst 13, 2003
Jæja það er bara rigningarspá fyrir helgina, þetta er óvenjulegt í meira lagi. En af okkur er hins vegar að frétta að ég er á fullu núna að setja aðra bensíndælu í tankinn, nei ekki skipta um, heldur aðra dælu með. Já bensíndælan í Saabinum var loksins orðin of lítil og þarf því aðra sér til fulltingis. Að sjálfsögðu er það þá önnur dæla úr Saab sem hjálpar til.
Fúskið lagaðist ekkert við það að fá 12 þúsund króna kertaþræði úr Bílabúð Benna, en þegar ég tók ofurháspennukeflið hans Óla úr og setti gamla Saab (Bosch) keflið í og gamlan háspennuþráð, þá lagaðist það um heilan helling og er nánast horfið núna.
Kúplingin er að gera það gott, ég fór á 2,3 sek. 60 fet á laugardaginn með tvo fullvaxna karlmenn í aftursætinu og það er nálægt mínum besta 60 fet tíma, hvað ætli gerist þá með prjóngrindina og engar fitubollur í aftursætinu?
Einnig sýndist okkur að með því að snúa í 8000 sn/min. að þá þurfi ég ekki að skipta í 4ða gír á mílunni, því að við höldum að hann fari í 190 km/klst. í 3ja í 8000 sn/min. Og til að minna á hvað hraðametið er í RS-flokki er að þá er það opinberlega 180 km/klst. sett af mér sjálfum í tímatökum fyrir keppnina sem aldrei fór fram, fyrir löngu. Montmontmontmont......híhíhíhí.
Kv. Nóni
P.S. Bara að tékka á hvort að vefstjórinn les þessi fræði einhvern tíma þá ætla ég að minna á myndirnar af henni Bryndísi minni.
Bloggað klukkan:12:37 AM
föstudagur, ágúst 08, 2003
Hahahahaha........ ef þið vissuð ekki hver bað um þessa rigningu, þá vitið þið það núna. Það vorum auðvitað við sem stigum regndansinn að þessu sinni vegna þess að við erum ekki búnir að mappa tölvuna. Fórum upp í Hvalfjörð í gær og fundum okkur ljómandi fína brekku til að standa Saabinn í, hann var staðinn í orðsins fyllstu merkingu, þ.e.a.s. ég stóð bæði á bensíni og bremsu til að fá nógu mikið álag á hann. Brekkan var til að hjálpa til við að gera honum erfitt fyrir.
Um daginn fórum við suður að Grindavíkurafleggjara, á brautinni mættum við 2svar sömu löggunum og í seinna skiftið komu þær á eftir okkur og vildu fá skýringar á því hvers vegna við værum þarna 3 fullorðnir karlmenn á rúntinum í þessum svakalega SAAB. Þegar annar lögregluþjónninn hafði boðið gott kvöld og spurt hvað væri á seiði (mjög kurteisir menn), sagði ég honum hvers kyns var að þar afturí sætu vinir mínir með ferðatölvu og lambda-mæli, annar læsi af mælinum og hinn stillti blönduna við mismunadi skilyrði. Ég hins vegar hafði það hlutverk að keyra bifreiðina á jöfnum hraða (löglegum að sjálfsögðu) undir mis miklu álagi með því að stíga á bremsuna meðan ég keyrði. Það var ekki laust við að lögregluþjónarnir yrðu svolítið undrandi en þó held ég að það hafi einnig verið aðdáun. Þá hófust umræður um bílinn og fannst þeim lítið varið í dekkin sem ég var með að framan, jú það voru dekkin sem ég er að nota úti á braut og eru að verða mynsturslaus (eins og ég vil hafa þau), ég var sko ekkert að væsgæast um að þau gripu mikið betur en venjuleg dekk og þess vegna væru þau undir bílnum. Mér hefur yfirleitt gefist betur að vera ekkert að brúka mig við yfirvaldið. Allt fór þetta nú vel að lokum og allir skildu sáttir ég og l.þjónarnir.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:8:08 PM
Við erum búnir að setja Autronic vélstjórnunartölvuna í Saabinn og byrjaðir að mappa hann, wideband mælirinn virkar nokkuð vel þannig að við erum að sjá nokkuð vel súrefnisinnihaldið í afgasinu. Eitthvað fúsk er nú komið í Saabinn uppi á snúningi og erum við farnir að gruna kveikjuþræðina, já ég verð að viðurkenna að ég skammast mín fyrir að vera búinn að kaupa vélstjórnunartölvu fyrir stórfé og tíma ekki að kaupa þræði, fer upp í BBenna á morgun (í dag) og athuga hvort Palli á ekki einhverja góða.
Þessi tölva er nú samt algjör snilld, það er frábært að vinna með hana það er nánast hægt að gera allt með þessu apparati, stilla opnunartíma spíssa, kveikjutíma, boost, rev. limit, það er hægt að data logga og margt margt fleira. Saabinn er að ganga rosa fínan hægagang á 520 cc spíssum (hann er með 214 cc original) og svo er hægt að láta hann keyra á 1,8 bar upp í yfir 8000 snúninga. Ég segi 8000 vegna þess að mér finnst ekkert að Saabinn minn eigi að snúast hraðar, og 1,8 bar af því að við erum ekki búnir að prófa meira, en tölvan getur miklu meira.
Kúplingsdiskurinn nýji er líka kominn í, en ég er ekki ánægður, það er ekki hægt að flat-shifta úr 3ja í 4ða. Þetta er með ólíkindum.
Svo eru nú einar gleðifréttir, eða næstum því, já það getur verið að það sé búið að finna gírkassa í 99una fyrir austan, ég bíð spenntur. Þetta þýðir samt ekki að þið eigið að hætta að leita fyrir mig.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:1:56 AM
|

|