Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

þriðjudagur, september 30, 2003



Jæja góðir hálsar, það sem ég vildi segja hér fyrr var að það er skráð hjá kk að ég hafi farið 12.07 í tímatökum, búinn að spyrja Kötu og allt, en það virðist hafa farið gjörsamlega framhjá okkur á sunnudaginn, þetta er verulega svekkjandi vegna þess að ég hef ekki slippa til að sanna þetta. BAAAAAAAAAAA!!! Ef einhver er með slippa fyrir RS-2 í vasanum má sá hinn sami hafa samband við mig strax.

Bloggað klukkan:11:39 PM

Var búinn að skrifa rosa flott blogg þegar ég var truflaður og þá fokkaðist allt upp. Finn það ekki aftur, pirraður.

Bloggað klukkan:9:33 PM

sunnudagur, september 28, 2003

12,265 sek á 113,35 mílum!!!



Þetta var alveg magnaður dagur, hann byrjaði á að reyna að þurrka brautina með því að sópa vatninu burt, svo fórum við að prófa að keyra og eitthvað var hann ekki að skila því sem hann átti að skila, og einnig heyrðist aðeins í forsprengingum. Við athuguðum með kveikjuna og viti menn, hún var vitlaus eftir að ég setti krank triggerinn á síðast. Þetta var nú leiðrétt í tölvunni og eftir það var öldin öll önnur og ég fór niður í 12,26 sekúndur á 2ja lítra FRAMDRIFSBÍL. En eitthvað var svo túrbínan orðin þreytt eftir þetta allt saman og þurftum við því að skipta um hana í miðri keppni, það var ekkert mál nema hvað að það virtist liggja heil ósköp á að fá okkur upp á braut og við náðum varla að herða síðustu boltana áður en við vorum reknir upp á braut. Síðan var haldið áfram að keyra keppnina eftir að kassinn fór hjá mér og mér til mikillar undrunar voru bílar að taka rönn sem ekki voru skráðir í keppnina, jú það var vegna þess að það var verið að bíða eftir stóru körlunum. Það þurfti að kæla þeirra bíla svo að það myndaðist gap á milli. Ég hefði nú alveg þegið að fá aðeins lengri tíma við að setja draslið saman. Skítt með það, við erum rosa ánægðir með daginn og þökkum mikið vel fyrir okkur. Hetja dagsins er Haukur Sveins. fyrir að standa í þessu öllu og að reka í burtu hálfvitana sem voru að spóla í hringi á bílaplaninu.
Ég vil óska Gulla til hamingju með að vera kominn niður fyrir 12 sekúndur og upp í 112 mílur, bara svo að þú vitir það Gulli, þú færð aldrei hraðametið, hehehe.
Það var rosa gaman að taka eina spyrnu við Smára á gula Mustangnum, ég náði þokkalega góðu starti (1,89 í 60 fet) og var ekki mikið fyrir aftan hann í öðrum og þriðja, síðan dró ég á hann í fjórða, rosalega hægt en örugglega.
Það er líka feitt hjá Ragnari að ná 12,10 á gamla hlunknum sem er yfir 1900 kg (4200 pund) með kallinn í.

Pósta myndum af timesliponum á morgun, allt of þreyttur núna.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:9:35 PM

laugardagur, september 27, 2003

Einum höfðingjanum færra.


Já það er satt, það er einum höfðingjanum færra því að hún Pálína hans Svabba bróður var að klessa 900 bílinn sem þau áttu, all illilega, sem betur fer kom sáralítið fyrir hana, marin og eitthvað hrufluð, en komin heim. Meira um þetta á síðunni hans Svabba sem er linkuð hér til vinstri.
Pálína og Svabbi eru annars búin að vera á þessum bíl í rúmt ár eða frá því að ég gaf þeim hann, búin að fara á honum norður og alles. Nú hirði ég bara bremsudiskana og dælurnar að framan og þá held ég að það megi henda greyinu.
Ég hlakka mikið til á morgun, því að nú er ég kominn heim og það á víst að halda hér kvartmílukeppni á morgun sunnudag og mikið verður gaman að sjá hvað gerist núna, múahahahahaahhaahahahha.........
Gunni búinn að gera og græja allt til og svo fær hann ekki einu sinni að keppa á bílnum, jæja hann hefur ábyggilega jafn gaman af því að sjá mig vinna hahahaaaaa. Það er þó ekki öll nótt úti enn fyrir Gunna því að hann er jú skráður í keppnina, það er eins gott að þeir séu til í að breyta skráningunni því að annars verð ég bara á video kamerunni að mynda það þegar SAABinn fer fram úr öllum impresunum híhí.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:9:28 PM

föstudagur, september 26, 2003

Já gott fólk, við erum nú komin til Köben aftur og búin að heimsækja landið fyrirheitna í austri (frá íslandi séð). Þar sáum við meðal annars Volvo safnið í Gautaborg, það er virkilega eitthvað sem enginn bílaáhugamaður ætti að láta framhjá sér fara, þetta er alveg risastórt safn með ótrúlega mikið af allskonar græjum. Við erum líka búinn að kíkja niður til Odense, þar heimsóttum við Einar og Súsönnu og gistum. Þá fórum við í Lególand með þann stutta og það var alveg frábært eins og venjulega, maður heillast alltaf jafn mikið af þessum hlutum sem er búið að byggja úr legókubbum, heilu bæjarhlutarnir, flugvellir, hafnir o.fl. Svo var auðvitað hellingur af leiktækjum. Þaðan var svo haldið til Sønderborgar og níðst á gestrisni Snorra og Dísu, þau eru nýbúin að eignast dóttur. Við fórum með þeim niður til Þýskalands og kíktum í búðir og svoleiðis. Komum við hjá einum SAAB höndlara í Flensburg og skoðuðum bílana hans, hann gaf Kristni SAAB púsluspil híhí. Í bakaleiðinni komum við svo að sjálfsögðu við hjá Vagn Brunke í Svendstrup á eyjunni Als, hann á þar alveg ótrúlega flott safn af tvígengis SAAB bílum, eitthvað sem enginn ætti að láta framjá sér fara. það er hægt að sjá bílana á www.vagnssaabmuseum.dk en það er auðvitað miklu skemmtilegra að sjá þetta með eigin augum.

En hvað það gengur ekkert betur að halda mílu þegar ég er ekki á landinu svo að ég ætla bara að koma með eitthvað af þessari sól og blíðu sem er búin að vera hér, já það er búin að vera þessi líka rjómablíða, 17 til 25 stiga hiti og sól.

Kem á laugardaginn og þá er bara að sjá hvort Gunni lætur mig fá lyklana af bílnum :-), hann var búinn að setja í gang fyrir viku síðan og er búinn að æfa sig alla vikuna.

Kv. Nóni


Bloggað klukkan:6:08 AM

Kva.... kemur ekkert?

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:6:04 AM

miðvikudagur, september 17, 2003

Farinn til Köben!


Ég er farinn til Köben og ætla að fylgjast spenntur með þessu á laugardaginn, ég hef heyrt því fleygt að það verði allt í beinni á Eurosport þannig að það ættu að vera hæg heimatökin, frænka er nefnilega með kapal svo að ég get fylgst með Gunna sigla SAABinum fram úr Gulla og öllum hinum gríslingunum í RS-flokknum, MÚAHAHAHAHAHA I am zí impreza killer. Að sjálfsögðu verður einn kaldur á kaNNtinum (eins og þeir segja fyrir norðan), sennilega Tuborg eða Carlsberg, nú eða Ceres Royal.

Kv. Nóni

P.S. Þórir er búinn að setja í gang hjá sér, en eins og ég minntist á hér um daginn að þá er hann að breyta gamla ´83 900i, í túrbó 16 ventla. Til hamingju Þórir og takk fyrir hjálpina á sunnudaginn Birkir.

Bloggað klukkan:12:54 AM

þriðjudagur, september 16, 2003

Sunnudagur rosalegur, sorglegur, stangarlegur.


Sæl öll sömul, það er nú helst að frétta að á sunnudaginn stóðumst við félagarnir ekki mátið vegna einstakrar veðurblíðu og skutumst út og vildum vita hvort að við gætum eitthvað átt við SAABinn. Það var jú þurrt í veðri og gott að keyra, við fundum loks stað stutt utan við bæinn og byrjuðum að prófa. Við skrúfuðum slikkana undir og þvílíkur munur á þessum dekkjum eða hinum, þetta er allt annað, nú erum við að gæla við að hann sé kominn niður í lágar 12 sek. svo að ég segi ykkur norðanfeðgar og allir aðrir sem eru í kring um 12 sek, verið hræddir, verið mjög mjög mjög hræddir, við erum að koma. Það eru dekkin sem eru að gera gæfumuninn fyrir okkur núna og svakalegt að þurfa að fara af landi brott þegar svona stendur á, Gunni ætlar nú samt að redda þessu og halda uppi heiðri ICESAAB gengisins.
Þetta var þó ekki það eina sem gerðist, þið hélduð kannski að SAAB vélar væru ódauðlegar, allavega hélt ég það en ónei, þegar leikurinn stóð sem hæst fór að glamra eitthvað í þeim gamla og líktilst það einna helst vöntun á stangarlegu, þá var stoppað og hetjan dregin í bæinn og rennt beint inn á verkstæðisgólf og mótorinn slitinn upp úr. Það stóð heima, ég hafði víst skemmt stangarlegu og stimpilstöng. Það hefði nú verið aldeilis ágætt ef ég hefði getað látið þar við sitja, en nei það var nú aldeilis ekki hægt, því að ég skemmdi sveifarásinn líka. Sunnudagskvöldið fór í að rífa þetta í sundur og komast að rótum vandans, en mánudagskvöldið fór í að raða saman því að auðvitað átti ég alla varahluti sem ég þurfti, eða það hélt ég allavega. Þegar svo byrjað var að setja saman komumst við að því að þetta var víst ekki ás úr túrbó bíl og þeir eru víst ekki eins, eins og ég hafði haldið fram. Þarna voru góð ráð dýr, enginn heill ás og keppni um næstu helgi, við settumst niður í 2 mínútur og hugsuðum málið og viti menn þar sem við sátum inni á kaffistofu blasir við okkur dragbækið hans Óla og taraaaa, ásinn fór úr á næstu 20 mínútum. Aumingja Óli, nú á hann mótorhjól með engum sveifarás.

Vélin er allavega komin saman aftur og fer ofaní á þriðjudagskvöld. Við vorum að reyna að giska á ástæður þessa óhapps og komumst að því að það getur verið varasamt að keyra vélina upp í 8000 sn/min. þegar maður er nýbúinn að hóna og hefur allt of stóra spíssa í innspítingunni. Ég skipti að öllum líkindum ekki nógu fljótt um olíu eftir að ég hónaði og setti nýja hringi og legur fyrr í sumar.


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:4:53 AM

fimmtudagur, september 11, 2003

Kvartmíluspjallið


Ég skoða stundum spjallið hjá vinum mínum svíunum, sem hafa jafnan mikið að segja um túrbóið og SAABana sína, þar er ekki leyft að pósta á eftir einhverju sem er til sölu eða einhverju sem óskast. Þar skilja menn bara eftir síma eða ímeil og málið er afgreitt, þanng finnst mér líka að það ætti að vera hér. Aumingja mennirnir sem eru að reyna að selja bílana sína og dótið eru allt í einu orðnir þátttakendur í blaðri um hvort San Miguel sé seldur í ríkinu á Selfossi, hvort það sé opið til 17:30 eða 18:00, eða hvað sé að frétta af bíl á Raufarhöfn sem einhver vissi nú ekki alveg hvaða tegund var eða árgerð, en var alveg geðveikur í gamla daga. Meira að segja þegar menn taka það skýrt fram að þeir svari ekki pósti á spjallinu, aðeins ímeil eða síma, þá þarf einhver dj...... hálf....... að byrja að bulla, "Hey ert þú ekki frændi hans Sigga á Hvammstanga? Ég velti einu sinni bílnum hans, hehe"
Hættum að bulla á viðskiptaþræðinum, hann er handónýtur svona.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:8:36 PM

Pælingar um síðuna


Ég hef verið að pæla í hvort að ég ætti að setja upp kommentakerfi hér á síðuna, það gæti verið skemmtilegt ef menn gætu tjáð sig um það sem ég er að gera og jafnvel komið með spurningar. Þetta þvælist aðeins fyrir mér vegna þess að ég þoli ekki hálfvita sem hafa ekkert betra við tímann að gera en að eyða honum fyrir okkur hinum sem höfum yfirdrifið nóg að gera, með ógáfulegum athugasemdum og hálfvitalegum spurningum. Þið hafið kannski séð hvernig okkar ágæta kvartmíluspjall er orðið, ef ekki, þá ert þú einn af ofanrituðum, sem sagt hálfviti. Ég opna hreinlega ekki pósta frá sumum vegna þess að ég veit að það er ekki annað en tímaeyðsla, og tími er eitthvað sem mig vantar alltaf meira af. Síst af öllu vildi ég að mín síða yrði leiðinleg. Auðvitað væri hægt að hafa þetta kerfi þannig að menn fái úthlutað lykilorði til að komast inn á þetta, en þá væri ekki hægt að fá þetta frá gestum sem ég ekki þekki, eða svoleiðis og fleira í þeim dúr. Einnig væri hægt að hafa þetta þannig að ég myndi bara henda út því sem mér ekki þætti merkilegt, en þá væri ég að ritskoða og það hugnast mér ekki. Kannski væri gott að fá að heyra ef einhver hefði ráð handa mér, þá er hægt að senda línu á saab@cool.is. Ef þú ert einn af þessum sem ég nefndi hér að ofan þá ert þú beðinn að sleppa því að senda mér línu, jafnvel þó að þú hafir einhverja hugmynd handa mér.

Að öðru, ég er að spá í hvort að KK væri til í að koma með ljósin upp á braut einhvern tíma á helginni eða í kring um hana ef veður leyfir, það þyrftu ekki margir frá klúbbnum að koma, ég gæti útvegað bíl undir dótið. Gott væri að einhver kæmi sem kynni að setja þetta upp og keyra tölvuna. Ég veit að ég er ekki að biðja um neitt lítið, en það er líka ástæðulaust að vera alltaf að væla um eitthvað smáræði :-)
Endilega hafa samband við mig ef þetta er hægt, saab@cool.is

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:12:58 AM

mánudagur, september 08, 2003

Gullkorn dagsins!


Sælt veri fólkið, það komu tveir snáðar inn á verkstæði hjá okkur í dag, annar þeirra vildi finna Gunna út af einhverjum varahlutum í Golfinn, en hinn var að skutlast með vininn. Þeir fóru með Gunna inn og Gunni sýndi þeim eitthvað dót og sá sem var að skutlast með vin sinn hafði eitthvað veður af því að Gunni ætlaði að setja túrbínu í Golfinn sinn svo að hann spurði eins og svona vitleysingar gera þegar þeir vita þegar svarið, "ert þú að fara að setja túrbó á Golfinn þinn?" og Gunni svaraði um hæl "Já" og þá sagði snáðinn "Hvernig" og Gunni varð eitthvað hissa á spurningunni og spurði á móti "hvað meinarðu?" þá sagði snáðinn þetta gullkorn, "Ég meina ertu með teikningu eða hvað?" Haaaaaaaaaaahahahahahahahahaaa.......og aumingja Gunni varð eitt spurningarmerki í framan og átti bágt með að fara ekki að skellihlæja beint framan í smettið á snáðanum. Þessi sami snáði er sá sami og kvartaði yfir því að ég væri á BF Goodrich Drag radial á götuspyrnunni fyrir norðan í fyrra því að hann var súr að ná ekki besta tímanum í tímatökunum. Svo þegar að byrjað var að keppa og ég sat hjá vegna oddatölu í flokknum, þá bullaði hann um að hann hefði kært mig út sem var auðvitað rugl því að kærur voru ekki teknar fyrir fyrr en eftir keppni. Ég spurði reyndar þann ágæta mann keppnisstjórann að þessu, og hann sagði að hann hefði ekki betur séð en að ég væri á venjulegum götudekkjum. Já heimurinn er fullur af fíflum.

Að öðru, mér finnst að Grétar Jónsson hafi skitið all illilega á sig þegar hann jós fúkyrðum yfir okkar ágætu stjórn í KK sem hefur þó framkvæmt meira en gert hefur verið í mörg ár. Þeir hafa staðið í ströngu frá því snemma í vetur og gert að mínu mati vel, þó að alltaf sé eitthvað gagnrýnivert, en fyrr mætti nú aldeilis vera ef það væri ekki. Ég er sammála Ragga um að halda fólkinu sem staðið hefur að þessu góða grillveislu að lokinni keppnistíð. Rökstudd gagnrýni á yfirleitt rétt á sér en þegar farið er út í að ausa skít yfir menn sem þó nenna að vinna í þessu, þá er mælirinn fullur, ég væri ekki hissa þó að Grétar hafi stimplað sig út og eigi ekki svo auðvelda innkomu þrátt fyrir afsökunarbeiðnina, fullorðið fólk gerir ekki svona, menn sem bulla svona geta rifið niður það sem verið er að byggja upp með ekki lengri pósti en þetta, utanaðkomandi aðilar sem skoða okkar ágæta vef, sjá að ekki er allt með felldu og halda að samstaða sé ekki næg í klúbbnum. Ég held að hún sé fyrir hendi og vona að hún haldist. Eitt dæmi get ég nefnt, og það er rallý vefurinn sem ég fór stundum inn á í fyrra og skoðaði þeirra spjall, og svoleiðis nennir maður ekki að skoða, maður nennir frekar að lesa og vera með í einhverju sem er jákvætt og skemmtilegt, eins og KVARTMÍLA jibbííííííííí...........
Ég ráðlegg mönnum sem verður heitt í hamsi að setjast niður og skrifa niður í tölvuna einhvern reiðilestur en hafa hann á word skjali, vista hann svo og koma svo daginn eftir og lesa. Það er ekki góð latína að skrifa pirraður, ef menn eiga sína eigin heimasíðu þá er það þeirra mál, en það er verst fyrir þá sjálfa. Þetta er nú bara ráð sem ég fékk einhverntíma að skrifa ekki reiður, hins vegar getur maður fengið góða útrás af því að koma hugsunum sínum og meiningum niður á læsilegt form hvort sem það nú birtist á netinu eða ekki. Betra að hugsa fyrst.

Að enn öðru, hvað finnst ykkur um þennan kínverska gaur sem betlaði að fá að koma í heimsókn? Mér finnst að það eigi að handtaka hann og yfirheyra, það væri mátulegt á hann að dúsa inni á dóms og laga og fá smá pyntingar. Smá rafstuð í görnina ætti að hressa hann upp. Svo má bara sleppa honum með sárt rassgatið og sýna þessum kínverjum að við erum ekkert fyrir svona pakk.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:11:55 PM

sunnudagur, september 07, 2003

Jæja, þá er hann runninn upp sunnudagurinn góði, og ég er að spá í að eyða honum úti í sólbaði hér í Kópavoginum. Engin keppni í dag frekar en í gær þó að veður hefði leyft það, þökk sé nöldurseggjum sem verða pirraðir þegar rigningin lætur sjá sig úti á braut. Menn tala um að þetta hefði nú verið fyrirséð og að fresta hefði átt keppni. Þá spyr ég, hvers vegna voruð þið þá ekki heima hjá ykkur finnst að þið eruð svona miklir veðurfræðingar? Síðan hefðuð þið getað gefið okkur hinum langt nef sem þruftum að keyra heim með rúðuþurrkkurnar á. Nú situr aumingjans stjórnin heima og getur ekkert gert nema klórað sér í afturendanum og horft á þennan dásamlega dag. Þeir hafa sætt gagnrýni fyrir að fresta ekki keppnum og vera utan gátta í þessu. Nú átti heldur betur að taka mark á veðurspánni og vera góður við þá sem þurfa að koma alla leið ofan úr Breiðholti og Grafarvogi, en viti menn, sól og blíða. Ef það er svona hrikalegur kostnaður við að koma sér ofan úr Grafarvogi eða ég tala nú ekki um Mosfellsbæ, þá ætti maður bara að eyða aðeins minnu í bílinn, eða borða minna, það er góð leið til að komast hraðar og spara peninga.

Dagurinn er nú samt ekki búinn og maður skildi spyrja að leikslokum, en gærdagurinn er hins vegar búinn og í þetta skiptið ætlaði ég sko að vinna GRRRRRRRRRRRRRRRR............

Kv. Nóni pirraði.

Bloggað klukkan:12:44 PM

Ég er pirraður núna, ég ætlaði sko að sigra þessa keppni. Stefnan er að fara út til Danmerkur þann 17.sept. og vera í 10 daga. Ekki meiri kvartmíla hjá mér, var meira að segja búinn að ræða við stjórnarmann í KK áður en ég pantaði ferðina og jújú það yrði sko alveg pottþétt allt keppnishald búið eftir miðjan sept. BAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA...................
Ég er fúll.

Nóni

P.S. Bíllinn er pottþéttur núna, búinn að fá almennilega barða og festa mótorinn og fleira ofl.

Bloggað klukkan:1:11 AM

fimmtudagur, september 04, 2003

Keppendur í RS-flokki, ég segi ykkur VERIÐ HRÆDDIR, VERIÐ MJÖG MJÖG HRÆDDIR........MÚAHAHAHAHAHAHA

Kv. Nóni hinn ógurlegi.

Bloggað klukkan:11:16 PM

miðvikudagur, september 03, 2003


Bloggað klukkan:8:30 PM

Já það er satt ég er ekki nógu duglegur við að blogga, en þá gæti þá heldur ekki verð að gera eitthvað í SAABinum. Nei það er ekki vænlegt til vinnings að vera alltaf í tölvunni þegar maður á að vera í skúrnum. En að öðru, nú er ég búinn að komast yfir almennilega slikka svo að það verður tekið rosalega á því um helgina, já ég segi ykkur keppendur í RS, GT og MC að mig langar hrikalega að eiga fyrsta íslandsmetið í RS flokki neðan við 12 sekúndur. Ef að bíllin húkkar í öðrum gír þá er ég bjartsýnn á að komast í lágar 12 eins og hann er stilltur í dag því að hann spólaði nánast allan 1/8. Hann á nóg inni ennþá, og það er ekkert annað en að bústa meira og flýta kveikjunni aðeins og þá er það bara halló háar 11 sek. Passið ykkur bara.

Beware, the mighty SAAB is gonna be there.

Enginn tími fyrir meira blaður, farinn að laga kúpplinguna, þrællinn eitthvað stífur til baka, (gat ekki beitt henni eins og ég vildi, varð að bíða eftir bústi)


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:8:29 PM