|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
mánudagur, október 27, 2003
Latur, helvíti latur!!!
Já ég er orðinn latur að skrifa, ég er líka pirraður vegna þess að ég náði ekki 2. sæti í RS flokki heldur 3ja. Það bætist ofan á það að SAABinn skuli vera bilaður og ég komist ekki með hann í hestaflamælingu eins og ég var búinn að lofa ykkur öllum. Er samt búinn að rífa vélina úr þeim hvíta sem ég keypti tjónaðann á 10 þús. og vitið þið hvað? Hann var fullur af bensíni, víhííííí....... það var æði.
Ég er byjaður í nýrri vinnu, orðinn vélstjóri hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar, búinn að vera í rúma viku og líkar bara þokkalega. Allavega er gott mötuneyti.
Bryndís er annars orðin frekar pirruð yfir því að ég skuli ekki vera búinn að laga skiptinguna í bílnum hennar, það er auðvitað vegna þess að mér finnst svo gaman að keyra um á honum sjálfur á meðan hú er með annan bíl.
Stjórnmálamenn eru svikarar, ég á einn frænda sem er þingmaður og hann var búinn að lofa mér að láta mig hafa SAABinn sinn sem er 9000 Túrbó þegar hann hætti að nota hann, þetta er merkilegur bíll því að hann er árgerð ´89 með DI systemi og keyrður 370.000 km. Nema hvað, þegar ég fer að herja á hann þá er hann búinn að láta bílinn, blótsyrði og bölv (helvsjálfstm). Já maður velur sér víst ekki frændur.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:10:31 PM
föstudagur, október 17, 2003
Sorrý gæs.
Það verður því miður ekkert úr því að keyra í sandi á SAABinum því að það virðist vera annaðhvort sprunga í stimpli eða farin heddpakkning, svo svakalega blæs hann upp um kvarðarörið. Ástæðan fyrir þessu er að öllum líkindum vitlaus kveikja í byrjun síðustu keppni. Ehemm, það var víst ég sem setti krank triggerinn á eftir síðustu vélarupptekt og hann var ekki leiðréttur fyrr en í miðjum tímatökum, við vorum bara einfaldlega ekki nógu fljótir að átta okkur á því að þetta væri raunin. Það var svo sem ekki flókin aðgerð að rétta hann af í tölvunni þegar við sáum að henni og tímabyssunni bar ekki saman, bara seinka um 3,5 gráður, það getur víst munað um annað eins þegar maður er að taka þetta mikið út úr svona litlu rúmtaki. Munið það 2 lítrar er allt sem þarf til að keyra á 12 sekúndum, múahahahahahaha......
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:8:10 PM
mánudagur, október 13, 2003
Hvers vegna?
Hvers vegna segja sölumenn lífeyrissjóða manni ekki að það sé upphafsgjald í lífeyrissjóðinn sem þeir vilja að maður skipti yfir í ? Ég veit það ekki en ef þeir færa mig ekki þegjandi og hljóðalaust yfir í hinn sjóðinn aftur og endurgreiða mér peningana, þá munu þeir tapa mínum viðskiptum það sem eftir er. Það eru fleiri bankar í landinu ennþá, ég á ágætis lífeyrissparnaðarreikning í Íslandsbanka frá því um árið, hnuss.
Hvers vegna keyra menn eins og vitfirringar á götum bæjarins á bílunum sínum en vilja ekki koma og taka þátt í einu akstursíþróttinni sem hægt er að koma með bílinn sinn eins og hann er af götunni og keppa, svo kostar það nánast ekki neitt. Það kostar 17.000 kr. að keppa í 5 keppnum í kvartmílu, þetta er eins og hálf helgi í rallýkrossi eða rallý, og þar geturðu sko ekki komið með daily driverinn þinn, ónei. Kvartmíla er sennilega öruggasta bílasportið sem hægt er að komast í ef menn eru á götubíl. Ég er að þruma þetta vegna þess að maður keyrir annað veifið á eftir eða á undan einhverjum tillum sem eru svo mikið að flýta sér að næstu umferðaljósum eða fram úr næsta bíl. Keyrði á föstudaginn á eftir rauðri Celicu með einkanúmer, hún hlýtur að vera rosa kraftmikil, hún var allavega með rosa mikið af einhverju dóti utaná sér þannig að hún hlaut að vera kraftmikil, til hvers var dótið jú annars? Svo keyrði hún (celican) líka rosa hratt.
Ég er að spá í að keppa í sandspyrnu um helgina, bara til að prófa, ganga fram af liðinu, allavega vekja athygli því eins og allir vita er ég athyglisþurfi. Nú svo finnst mér bara svo gaman að keppa. Mig vantar samt dekk, ég á 215/60 15 sumardekk og svo á ég bara 195/65 15 vetrardekk sem eru ekkert spes. Hvort er nú betra? Og hvað á ég þá að gera? Vildi helst fá grófmynstruð jeppadekk 225/70 15 eða eitthvað því líkt.
Hvað finnst ykkur? Liggið ekki á skoðun ykkar, en munið þetta er ekki frjáls vefur, þetta er SAAB vefur og þess vegna er aðeins ein skoðun, SAAB skoðunin.
Ég kem aftur, ég kem alltaf aftur.
Kv. Nóni SAABdal
Bloggað klukkan:6:03 PM
föstudagur, október 10, 2003
Svíjarnir komnir í 11,6 á 212 km, á etanóli!!!
Hér hafið þið link inn á það,
http://www.greenrally.nu/?id=29
Bloggað klukkan:2:35 AM
miðvikudagur, október 08, 2003
Lukka lukka!!!
Já það má segja að lukkan hafi leikið við mig í gærkvöldi þegar ég sat við tölvuna og var að hangsa á netinu, þá poppaði Presho upp á MSN (hann er svíi sem á líka SAAB), og ég sagði við hann að ég fengi ekkert búst á fína SAABinum en hann reykti ekki neitt, (Ég á annan 9000 Túrbó sem er árg´89 og er alveg rosa góður með leðri og alles, en hann hætti að bústa um daginn og ég hélt að túrbínan væri ónýt því að hún á að vera keyrð það sama og bíllinn eða 223.000 km). Þá sagði hann, "er ekki bara armurinn á wastegate lokanum farinn af?" (á sænsku auðvitað). Og ég sem ekki hafði hugsað út í þetta hoppaði upp úr stólnum og út í bíl og viti menn, ég get líka verið heppinn því að ég gat sett arminn beint upp á aftur og bíllinn bústaði eins og aldrei fyrr og ég virðist eiga alveg ógurlega góða túrbínu sem er keyrð 223.000 km. Ég held samt að ég geti bara verið heppinn ef ég er fyrst búinn að vera óheppinn :-) eða þannig.
Eins og glöggir gestir taka eftir að þá er búið að setja upp auglýsingu hér til hægri og bið ég ykkur endilega að klikka á Autronic og lesa það sem ég skrifaði um þetta frábæra apparat, en nú ætla ég að fara að drífa inn vídeó af spyrnum þar sem SAABinn hefur komið við sögu. Þetta verður vonandi komið inn á helginni. Einnig ætla ég í framhaldi af því að reyna að koma inn smá meiri fróðleik um SAABinn minn og aðra SAABa hér til vinstri undir Saabinn. Svo er það auðvitað hestaflamælingin, fylgist með hér.
Maður á aldrei að lána neitt, ég er ekki ennþá búinn að fá spottann frá honum Steingrími Corvettumanni sem ég lánaði honum í síðustu keppni til að draga Corvettuna á verkstæði. Já það minnir mig á eitt, Ragnar ég er ennþá með skrúfjárnið þitt, sendu mér e-mail. saab@cool.is :-)
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:9:41 PM
sunnudagur, október 05, 2003
Ókurteisi!!!
Við Ási vinur fórum norður í Skagafjörð að huga að sumarbústaðnum á föstudaginn, allt gekk vel og þegar við höfðum gengið frá í bústaðnum og vorum á leiðinni til baka keyrðum við Vatnsskarðið og þar var græn vitara á miðjum veginum. Ási hafði tekið bíl sem hann átti á króknum og því vorum við á 2 bílum og Ási keyrði á undan. Það var hálka og við á sumardekkjum sem varð til þess að Ási sét sig vaða útaf hægra megin og hélt sér á hjólunum, en ég tímdi ekki að fara útaf og keyrði því vinstra megin við hann og rétt hékk inni á veginum. Ég stoppaði og steig út og ætlaði að tékka á Ása og þá keyrði þessi slordóni á vítörunni í burtu, það var ekki einu sinni verið að athuga hvort að allt væri ekki í lagi og kannski að hjálpa okkur upp á veg aftur. Nei þetta hefur verið einhver dj......... aumingi eða fyllibitta. Sem betur fer var Ási á Súbarú Justy sem eru auðvitað snilldar bílar, og í 4 tilraun hafði hann það upp á veg.
Símasölufólk getur verið ansi ósvífið, ein kona hringdi í Svabba bró um daginn, allt um það á síðunni hans hér til vinstri, (aðeins að skrolla niður á miðvikudag).
Við erum búin að fá hraðahindrun í götuna okkar hér á Álfhólsveginum og það gekk nokkuð hratt fyrir sig tók ekki nema 5-6vikur frá því að við sendum bréf, húrra fyrir Kópavogsbæ.
Fór í klúbbinn á fimmtudag og það var nú aldeilis aðrar viðtökur núna heldur en stundum áður, þá var stundum eins og að það væri vond lykt af mér eða eitthvað (sennilega svona 4 cyl. lykt), en núna var mér tekið fagnandi og kallað til mín nöfn eins og "Muscle car skelfir" og annað í þeim dúr. Gaman að koma í klúbbinn og fá sér kaffi (eða eitthvað meira hressandi), hvet alla til að koma og kíkja við á fimmtudagskvöldum.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:2:26 PM
miðvikudagur, október 01, 2003
Bannað að bulla!!!
Kommentakerfið er komið í gang hjá okkur en það er ekki leyfilegt að bulla og spyrja spurninga sem ekki er hægt að svara eins og þessarar, "Hvað er SAABinn mörg hestöfl". Ég veit það ekkert, þegar ég veit það þá verður það sett hér inn á vefinn tafarlaust. Þeim sem bulla og eru með leiðindi verður eytt, þetta er ekki frjáls vefur, nei aldeilis ekki því að þetta er minn vefur. Það má bara segja hvað við erum flottir og æðislegir og hvað SAABinn sé frábær bíll. Allt þvaður um að svo sé ekki verður umsvifalaust sprengt í tætlur.
Hér er dæmi um það sem má segja: "Góður árangur hjá ykkur strákar, SAABinn er frábær, keep up the good work" og eitthvað í þessa áttina.
Dæmi um það sem ekki verður liðið: "Hey, akkuru nodaru sab íedda mar? Hann er so ljódur" eða "Eriggi málið að fá ser nídró?"
Eitt enn, það verður að skilja eftir nafn og email á kommentinu.
Jæja, alltaf í boltanum, eða eitthvað. Að öðru sem ég ætlaði líka að segja áðan, það er að Svíþjóðarmetið á SAAB í kvartmílu er 11.81 sek á 123 mílum á 100 kg léttari bíl, TARAAAA ég er bara 0,4 sek. frá því en alveg 10 mílum, vá.... Hann var líka með betra hedd, mig vantar alveg að létta mitt svolítið, hehe.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:12:00 AM
|

|