Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

mánudagur, nóvember 24, 2003

Skammdegisþreyta og almennt andleysi.


Já þetta er málið, maður er bara rekinn áfram með harðri hendi. Ég ætlaði ekkert að skrifa því að ég hafði svosem ekki neitt sérstakt að segja, búinn að vera latur og annað að gera upp á síðkastið, t.d. gerði ég við SAABinn hennar Bryndísar um helgina. Skiptingin vissi aldrei í hvaða gír hún átti að vera í svo að það þurfti að handskipta honum, nú er það komið í lag. Fór svo á árshátíð kvartmíluklúbbsins á Kringlukránni, flottur matur og svona, við Bryndís, Gunni og Heiða sátum hjá hinum eitilhörðu RS-ingum Halldóri og Gulla að norðan. Það var ekki séns að toga nokkurn skapaðan hlut upp úr þeim annað en það að þeir ætluðu að vera með næsta sumar og ekki að keyra hægar en í sumar. Líklega er það rétt hjá Gunna að ég hafi verið svolítið súr að ekki hafi verið minnst einu orði á SAABinn í annálnum hans Sigurjóns, (það er ekkert að marka, hann var svo fúllur að hann hefur ekki munað allt sem hann átti að segja, það var líka svo illa skrifaður miðinn hans). Eftir á að hyggja er ég ekki súr því að allir þarna inni vissu jú að SAABinn keyrir (lesist hratt) OFSA hratt, og ég þurfti enga hvatningu, ég veit hvað við erum góðir.
Sjaldan eða aldrei hef ég verið innan um jafn mikið af gamalmennum eins og á Kringlukránni með Pálma Gunnars eftir árshátíðardagskrána, það væri þá helst í einhverri af þeim jarðarförum sem maður hefur farið í um ævina.

Nú er hins vegar mál að fara að porta hedd og smíða greinar í staðinn fyrir að skrifa þær, ég er nýbúinn að skrifa smá sögu um mína SAAB dellu sem birtist vonandi nú þegar hér á síðunni hér til vinstri undir "SAABINN" .

Svo var það hann Steingrímur á korvettunni sem fékk lánaðan spottann hjá mér um daginn, og var aldrei búinn að skila honum, hann er voða sár yfir því að ég skuli minnast á hann hér á minni eigin síðu. Hann vælir í hvert skifti sem ég hitti hann um hvað ég sé nú vondur við hann og hvað eina. Hann er nú samt búinn að láta klippa sig og lítur bara þokkalega út, til hamingju með það Steingrímur og til hamingju með dolluna, en by the way, hvað kostaði hún? Þú mátt svara í dollurum.
Jæja hann skilaði spottanum um daginn uppi í klúbbi, lét mig hafa hann drulluskítugan og það sem meira var að spottinn kom ekki nema hálfur til baka. Þetta er satt, hann kunni ekkert að leysa hnútinn sem hann batt svo að hann skar bara á spottann, allavega var spottinn styttri og skítugri en þegar hann fékk hann. Það þurfti auðvitað eitt gáfnaljósið uppi í klúbb að tjá sig um þetta og sagði að svona spotta væri hægt að fá hvar sem er fyrir ekki neitt, sem er kjaftæði, þessi spotti var búinn að endast mér í óratíma og mér hafði aldrei tekist að slíta hann. Þetta snýst heldur ekki um hvort spottinn var góður eða dýr, þetta snýst um að bera virðingu fyrir eigum annarra, alveg sama þó að það sé bara einhver lásí spotti, ég hefði ekkert þurft að lána honum hann. Alveg eins og með skrúfjárnið hans Ragnars, það geymi ég á góðum stað og passa að það falli ekki á það. Skítt með það, ég er búinn að sættast við Steingrím og ætla ekki að röfla meira um það. En Steingrímur, það er hægt að skrifa hér að neðan ef þú vilt senda mér kveðju. :-)

Mér líkar bara nokkuð vel í nýju vinnunni hjá Ölgerðinni, er að verða búinn að vera í 6 vikur. Jæja þetta er nú sennilega orðið gott í bili, langlokur eru leiðinlegar.

Kv. Nóni




Bloggað klukkan:11:15 PM

föstudagur, nóvember 14, 2003


Bloggað klukkan:10:21 PM

.

Bloggað klukkan:10:20 PM

sunnudagur, nóvember 09, 2003

Hmmmmmmm.....


Er þetta ekki að virka?

Bloggað klukkan:11:53 PM

Reglubreytingatillögur í RS-flokki


Svona finnst mér að reglurnar eigi að líta út.



RS/ Flokkur.

Flokkslýsing:
RS eða Rally Sport, er flokkur fólksbíla, með 4000cc (4,0l) 4 og 6strokka vélum uppreiknuðum eða minni. Bílar með drif á fjórum hjólum leyfðir sem eru með vélar 2000cc (2,0L) eða minni óuppreiknað. Aðeins er leyfð ein forþjappa á hverja vél hvort sem það er afgasforþjappa "turbocharger, eða reimdrifin forþjappa "supercharger". Þegar talað er um uppreiknun á vél er verið að tala um forþjöppur sem er reiknað :vélarstærð x 1,7 = X. Wankel Rotary: Vélarstærð(cc) x 2,2 = X. Ef um Wankel með forþjöppu er að ræða þá cc x 2,2=X x 1,7=X.
Ekki er um uppreiknun að ræða þegar um er að ræða bíla án forþjöppu. "natural aspiret".
Þessi flokkur er einnig fyrir bíla með vélarstærð að 3800cc (3,8L) með reimdrifinni forþjöppu "supercharger" "Eaton" eða "Magnuson" gerð og drifi á einum ás, aftan eða framan, sem eru framleiddir upprunalega með slíkum búnaði. Bílar með vélar 1600cc (1,6 L) og minni án forþjöppu mega nota nítró innspýtingu. Allir bílar verða að vera á númerum, löglegir til götuaksturs með rétta skoðun. Undantekningar á þessu má lesa í reglum hér að neðan.
Ræst skal á jöfnu með "full tree"
Merking:RS/númer.
VÉL:
Vél:
Verður að vera vél sem boðið var upp á í því boddýi. Setja má forþjöppur á bíla sem ekki koma original með forþjöppur. Ekki má auka slagrúmtak vélar óuppreiknað frá því sem gefið er upp original í viðkomandi bíl frá verksmiðju.
Setja má forþjöppur á vélar sem ekki voru með forþjöppu original.
Undantekning frá þessu eru vélar sem eru 3800cc (3,8L) eða minni og eru original með reimdrifna forþjöppu "supercharger" "Eaton" eða "Magnuson" gerð í þeim bíl sem þær komu upprunalega í frá verksmiðju.
Blokk:
Ekki má breyta blokk á nokkurn hátt nema til að fá betra olíuflæði.
Aðeins venjuleg slitútborun er leyfð á vélarblokk.
Sveifarás:
Aðeins upprunalegir eða eins og upprunalegir sveifarásar leyfðir. Þó er leyfilegt að nota hvaða efni í sveifarás sem er.
Ekki má auka slaglengd sveifaráss. Aðeins slitrennsla á sveifarás leyfð.
Hedd:
Frjálst val er á heddum. Öll vinnsla á heddum er leyfð, svo framarlega að hún breyti ekki útliti þeirra.
Frjálst val er á ventlum, ventlagormum, rockerörmum osf…..
Leyfilegt er að stækka og vinna ventla að vild.
Ventlalok:
Allar gerðir og tegundir ventlaloka leyfðar.

Kambás:
Frjálst val er á kambásum.
.
Undirliftur:
Frjálst val.

Tímagír:
Frjáls val á tímagírum, beltum, reimum, keðjum, osf…..
Stimpilstangir:
Frjálst val er á stimpilstöngum.
Stimplar:
Setja má hvaða gerð af stimplum í mótorinn í hvaða slitútborun sem er.
Stimpilhringir:
Allar gerðir og tegundir stimpilhringja leyfðar.
Olíudæla:
Nota má olíudælu sem dælir auknu magni og eða þrýsting.
"Dry sump" olíudælur eru bannaðar nema að viðkomadi bíll hafi verið fáanlegur með slíkri dælu frá verksmiðju.
Olíukerfi:
"Dry sump" olíukerfi bönnuð nema að viðkomandi bíll hafi verið fáanlegur með því frá verksmiðju.
Að öðru leyti er frjálst að nota hvaða olíu kerfi sem er frá hvaða framleiðanda sem er.
Einnig má vinna og slípa olíugöng í blokkum, heddum, osf…. Til að fá sem besta endingu vélar.
Tölvur:
Sjálfstæðar vélstjórnunartölvur (Stand alone engine management) og Piggyback leyfðar.
Breytinar, endurforritun og ísettning á tölvukubbum er leyfð. Eftirmarkaðs tölvukubbar og/eða örflögur leyfðar.
Trissur.
Skifta má um driftrissur sem drífa: vatnsdælu, rafal,vökvastýri, osf…. Og setja niðurgíraðar trissur í þeirra stað.

ELDSNEYTISKERFI:
Soggrein:
Frjáls val er á soggrein, þó verður hún að komast undir vélarhlíf.
Blöndungar/
Innspýtingar:

Breyta má frá innspýtingu yfir í blöndung og öfugt
Breyta má innspýtingum eins og hver vill: það er spýssum, rúmtaki, inntaki, osf….
Bensínleiðslur:
Allar tegundir og sverleikar af viðurkenndum bensínleiðslum eru leyfðar.
Bensínsýur:
Frjálst er að nota eins margar bensínsýur eins og hver vill eða sleppa þeim.
Allar gerðir og tegundir af viðurkenndum bensínsýum leyfðar.
Bensíntankur:
Bensíntankur verður að vera original eða eins og original. Ef ekki er upprunalegur tankur notaður verður sá sem notaður er að líta eins út, taka sama magn og vera í sömu festingum og sá upprunalegi. Lofthreinsari:
Lofthreinsari er aukahlutur og ráða keppendur hvort hann er notaður eða ekki.
Forþjöppur:
Frjálst val. Hvort sem um er að ræða original eða eftirmarkaðs afgasforþjöppur (turbo) eða reimdrifnar (supercharger). Allar forþjöppur verða að komast undir upprunalega vélarhlíf. Sjá: Vél.
Millikælir:
Millikælir er aukahlutur og er því hverjum sem er frjálst að nota hann eða ekki.
Þá má einnig setja millikæla í vélar sem ekki voru original með þeim búnaði.
Eldsneyti:
Aðeins það bensín leyft sem fæst á bensínstöðvum og er afgreitt af dælu.
Öll almenn bensínbætiefni leyfð.
Nítro (N2O) leyft á vélun að 1600cc (1,6L), án forþjöppu.
KVEIKIKERFI:
Kveikja:
Allar tegundir kveikikerfa eru leyfðar.
Háspennukefli:
Allar tegundir háspennukefla leyfðar.
Kertaþræðir:
Allar tegundir kertaþráða leyfðar.
Kerti:
Allar tegundir kerta leyfðar.
ÚTBLÁSTURSKERFI:
Pústflækjur:
Pústflækjur leyfðar, þó má ekki klippa úr yfirbyggingu til að koma þeim fyrir.
Púströr:
Púströr skulu ná útfyrir yfirbyggingu bíls. Sverleiki á rörum má ekki vera meiri en 4" (10,16cm) á einföldu kerfi og 3" (7,62cm) á tvöföldu kerfi.
Pústkerfi skal þó smíðað þannig að það sé hægt að fara með það beint úr keppni á viðurkennda skoðunarstöð og það fái fulla skoðun.
Hljóðkútar:
Allir hljóðkútar leyfðir.

GÍRKASSI:
Gírkassi/
Sjálfskifting:
Frjáls val er á gírkassa/sjálfskiftingu.
Skiftir:
Nota má hvaða skifti sem er sem á við viðkomadi gírkassa/sjáfskiftingu.
Kúpling/
Converter:
Nota má hvaða kúplingu/converter sem er.
DRIFRÁS:
Hásing&Drif:
Frjáls val er á hásingum og drifum.
Læasingar í drif eru leyfðar.
Rafsoðin drif bönnuð, spólulæsingar bannaðar.
Drifskaft:
Æskilegt er að baula sé utan um drifskaft á bílun neð afturdrif.

BÚKKAR & FJÖÐRUN:
Fjöðrun:

Staðsettning fjöðrunarkerfis og festinga verður að vera sú sama og var frá verksmiðju á hverri tegund og gerð. Breyta má stífleika fjaðra, gorma vindustanga osf….
Ekki má nota einblöðung sem afturfjöðrun. Einnig má nota Coil over.
Demparar:
Frjálst val er á dempurum:
Búkkar:
Allir venjulegir spyrnubúkkar leyfðir.
Bannað er að nota annað en original "four link" eða "ladder link". Ekki má klippa úr yfirbyggingu til að koma búkkum fyrir.
YFIRBYGGING

Yfirbygging:
Yfirbygging verður að vera eins og original hvað efni, stærð og útlit varðar.
Setja má þó á vængi og vindskeiðar sem seldar eru á almennum markaði og smíðaðar eru fyrir viðkomandi bíl.
Einnig er leyfilegt að setja aukaopnun (cowl induction) á vélarhlíf ef hún er hulin og máluð í sama lit og bíllinn. Plast vélarhlífar með "cowl induction" leyfðar.

Innrétting:
Allir bílar verða að vera með upprunalegri innréttingu þmt teppi stóla klæðning osf…
Leyfilegt er að klæða innréttingar og bólstra.
Skipta má út framstólum fyrir keppnistóla(mælt er með að það sé gert) sem verða að vera í upprunalegri staðsettningu.
Aftursæti má fjarlægja til að koma fyrir veltiboga, en ganga verður snyrtilega frá því gati sem myndast milli ökumannsrýmis og farangursrýmis.
DEKK & FELGUR:
Felgur:
Allar gerðir af felgum leyfðar, mega þó ekki vera minni en 13" nema að bíllinn hafi komið original á þeim frá verksmiðju.
Felgur mega ekki ná út fyrir yfirbyggingu bíls.
Dekk:
Bílar með drifi að framan mega nota slikka.
Bílar með drifi að aftan radial dekk, en er þó leyft að nota radial götuslikka.
Fjórhjóladrifsbílar mega aðeins nota venjuleg götudekk. Öll "soft compound" dekk hvort sem það eru slikkar eða götuslikkar, "radial" eða "diagonal" eru bönnuð á bílum með drifi á öllum hjólum.
Öll dekk verða að vera merkt "DOT" nema framdekk framdrifsbíla.
Dekk mega aldrei standa út fyrir yfirbyggingu bíls.
ÖKUMAÐUR:

Ökumaður:
Ökumaður skal sitja í ökumannssæti sem er í sömu staðsettningu og orginal, og vera með löglegan og staðlaðan hjálm á höfði.
Tregbrennandi keppnisgalli æskilegur.
Hjálpartæki:
Öll hjápartæki til að aðstoða ökumann við brautarræsingu eru bönnuð.
Öryggisbelti:
Allir bílar verða að vera útbúnir með amk. Þriggja punkta beltum.
Allir bílar sem fara niður fyrir 11,99sek verða að vera með 5. Punkta keppnis belti.


Bloggað klukkan:11:43 PM