Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

miðvikudagur, desember 31, 2003

Hvað ætli margir hafi verið úti að keyra á 12 sek. bílunum sínum í snjónum?


Hmm..... ekki mjög margir ef grunur minn reynist réttur, já það er rétt ég var úti að keyra í snjónum og ekki bara það heldur er SAABinn nú brúkaður á degi hverjum eins og hver annar klárhestur í gamladaga. Æðislegur bíll, og bara djöfull góður í snjó, það er rosalega hagkvæmt að hafa allan þennan snjó því að maður verður að vera gasalega mjúkur á pinnanum og bíllinn er ekki að eyða meira en ca. 12 lítrum á hverja hundrað kílómetra. Ekki slæmt það. Allt er þetta jú gert mögulegt með Autronic tölvunni minni sem er æðisleg.

Fólk hefur verið að spyrja hvort ég ætli ekki að setja inn eitthvað eins og tjún leiðbeiningar eða eitthvað álíka, ég held að það sé ekkert sniðugt vegna þess að ég er enginn snillingur í að tjá mig um þessa hluti og sennilega væri það líka ósanngjarnt af mér að taka mér allan heiðurinn af árangri okkar strákanna. Það er nefnilega langur vegur frá því að ég hafi staðið einn í þessu, ég á góða vini sem eru á kafi í þessu líka og án þeirra væri ég ekki kominn niður í 12,2 sek á bíl sem ég keyri á veturna líka. Gáfur þeirra, framkvæmdagleði og hvatning (þegar illa hefur gengið) eru með ólíkindum og hafa fjölskyldur þeirra fengið að finna fyrir því að það sé mikilvægara að tjúna SAAB vinar síns en margt annað. Ég vil nota tækifærið hér (tækifærissinni) og þakka þeim kærlega fyrir frábært framlag í þetta ævintýri á árinu sem er nú brátt á enda. Taki þeir til sín sem eiga.

Jólin voru rosa góð, gott að fá svona frí og slappa af. Fékk æðislega peysu og bol frá Bryndísi og Íslensku bílaöldina frá syni mínum, náttföt frá tengdó (ótrúlega góð, hef aldrei átt svoleiðis) og síðast en ekki síst 3,5 kíló af konfekti, ég er ekki að spauga, við fengum kíló frá tengdó, 1,5 frá Stálnaust og kíló frá Ölgerðinni, ótrúlegt. Ég ætla að reyna að koma þessu út í afmælinu mínu svo að ég þurfi ekki sálfræðihjálp vegna offitu á næsta ári. Ekki misskilja, mér finnst konfekt ógeðslega gott og það sést á mér, það er vandamálið.

Tralalalalalalaaaa..... ég á afmæli á laugardaginn, 3. janúar og verð 30 ára gamall, mér finnst að ég sé bara strákur ennþá. Já ekki meira en svona tvítugur, eða kannski tuttugu og tveggja (vá af hverju skrifar maður ekki bara 22 :-) ). Hvað um það, það verður sem sagt veisla mér sjálfum til heiðurs, híhí, búið að kaupa nokkrar neytendapakkningar af Egils öli og eitthvað af rauðum vökva sem fer betur í konur og aðrar kellingar. Ef einhverjir hafa ekki fengið boð um mætingu en telja sig eiga tilkall til ölsins þá vinsamlegast hafið samband í saab@cool.is eða 848 8368, það getur vel hugsast að mér hafi sést yfir einhverja eða merkt við á listanum þó að ég hafi ekki verið búinn að ná í viðkomandi. Hljómsveitin Hraun mun leika fyrir dansi og eru þeir Hraunsmenn þekktir fyrir að halda uppi stuði á hvaða dansgólfi sem er.

Gleðilegt SAABár og þakka fyrir gamla árið, Nóni

Bloggað klukkan:2:04 AM

þriðjudagur, desember 23, 2003

Það var mikið!


Já það var mikið að það að það losnaði um ritstífluna sem hefur hrjáð mig upp á síðkastið, ekki það að ég hafi verið upptekinn við annað eins og að porta heddið eða ryðbæta eða ganga frá einhverjum lausum endum á rafkerfi eða þannig, nei það er öðru nær, heill mánuður síðan ég skrifaði síðast og næstum ekkert hefur gerst. Jæja ég fór þó allavega út í skúr um daginn og trauð frosttappa í þann rauða (900 túrbó 8V ´83 með orginal airflowkitti), og um helgina setti ég vetrarvél ofan í minn góða keppnisbíl, þannig að ég er farinn að nota hann núna og fyrir liggur að ég fer að græja vélina fyrir sumarið.
Annars er ég kominn í rosa jólasaab.... æ meina jólaskap, búinn að kaupa jólatré en á eftir að kaupa handa henni Bryndísi minni, græja það á morgun þorláksmessu. Ég held að ég hafi alltaf keypt gjöfina hennar á þorláksmessu, það er auðvitað vinsælt að smella sér í Gullsmiðjuna hjá henni Guðrúnu, hún er í Lækjargötunni í Hafnarfirðinum góða, rosa flottar gjafir, drottningar að hjálpa manni að velja, og auðvitað konfekt til að maula á meðan maður velur flottheitin.
Hef ekki tíma til að bulla meira núna en hef mikið að segja eftir jólin, svo að fylgist vel með um jólin.

Gleðileg jól öll sömul, Nóni, Bryndís og Kristinn

Bloggað klukkan:12:41 AM