|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
fimmtudagur, janúar 29, 2004
Nú væri gott að vera á fjórhjóladrifnum Ferguson!
Vitið þið hvað? Nei skárra væri það nú, en ég var að keyra Digranesveginn um daginn og lenti á eftir honum Úlla á steisjoninum sínum, reyndar hefur mér aldrei fundist þessar Imprezur vera með neitt steisjon. Á Digranesveginum eru svo að maður tali varlega og styggi engan, margar hraðahindranir, Úlli var á undan mér og keyrði mjög gætilega þar til hann kom að hraðahindrunum því að þá stoppaði hann, opnaði hurðina, steig út og mældi hvort spaulerinn rækist nokkuð niður. Þá fór hann aftur inn í bílinn og keyrði varlega af stað, þegar hann var svo kominn með framhjólin yfir miðja hraðahindrunina opnaði hann aftu hurðina og setti hausinn út og leit undir bílinn til að athuga hvort pústið rækist nokkuð í. Það hlýtur að vera erfitt að eiga svona Subaru, ég var auðvitað voða kurteis og svona og var ekkert að flauta en rosalega vorum við lengi að keyra Digranesveginn.
Ég er byrjaður í ræktinni, ég ætla að ná af mér 5 kílóum fyrir keppnistímabil, Svabbi bróðir er með mér í þessu, hann peppar mig upp Þegar ég er latur. Við fórum í Laugar og það er rosa flott, góð aðstaða.
Fór í bíó á Laugardaginn, sá Lord of the rings, algjör snilld.
Hann Birkir Friðfinns, vinur hans Þóris ætlaði að fara að fá sér SAAB en hætti svo við vegna ágalla sem hann taldi að væru á bílnum sem ég taldi nú að hlytu að vera minniháttar:-), en hann ætlar þó að íhuga þetta seinna með betra eintak í huga.
Kveðjur, Nóni
Bloggað klukkan:10:17 PM
.
Bloggað klukkan:12:17 AM
föstudagur, janúar 23, 2004
Nýjustu tölur að norðan!
Það flýgur sú fiskisaga norðan úr landi að þeir Subaru feðgar hafi eyðilagt vélina í fína Subarunum og þurfi því að fá nýja frá útlöndum. Þetta verður sko engin venjuleg vél, nei þetta verður víst vél svipuð eða eins og er í rallýbílunum, ekki amalegt það. Eitthvað hljóta ósköpin að kosta og hvíslaði lítill fugl því að heimildamanni mínum að þetta væru einhverjar millur og að þá yrði bíllinn kominn upp í tveggja stafa tölu, (í millum). Þetta er nú það sem gengur á fyrir norðan, þar eru þeir BA menn
www.ba.is meðal annars að gleðjast yfir þessum miklu afrekum feðganna, þar segir meðal annars "hann náði þeim einstaka árangri að sigra allar þær keppnir sem haldnar voru", hey veistu hvað? Þeir unnu alltaf gamla SAABinn sem var að þvælast þarna á brautinni, og líka hinn Súbarúinn.
Ég er sennilega nauðbeygður til að porta heddið, allavega ætla ég ekki að fara að elta þá í peningaaustri.
Orðinn sybbinn, verð að sofa.
Kv. Nóni blanki.
Bloggað klukkan:2:10 AM
föstudagur, janúar 16, 2004
Frábært afmæli, takk fyrir mig!
Já það var nú aldeilis gott afmælið mitt, fyrst var étið og drukkið svolítið og svo var sungið og drukkið, þá kom hljómsveitin Hraun og þá var dansað og drukkið. Hljómsveitin tók að sjálfsögðu pásu og þá var blaðrað og drukkið, já svo var dansað meira og drukkið þegar hljómsveitin kom úr pásu og síðan þegar líða tók á nóttina hætti hljómsveitin að spila og við tók blaður og drykkja. Svona gekk kveldið, og allir skemmtu sér vel að ég held, allavega fóru 5 kassar af bjór og 8 flöskur af rauðvíni ofan í mannskapinn þannig að þetta hlýtur að hafa verið gaman. Tengdamamma græjaði heitu réttina, takk fyrir það (kossar) og mamma tartarlettur, takk fyrir það (kossar), égsjálfur steikti kjúkling og svo var smávegis af ostum. Hljómsveitin Hraun fær sérstakar þakkir fyrir frábæra frammistöðu, Gummi frændi varð eitthvað sár þegar ég sagði að gítarinn spilaði sjálfur en ég komst að öðru þegar Gunni Sæm ætlaði að leysa hann af, Gunni minn, ég fékk gítar í afmælisgjöf frá tengdó þannig að við gætum farið að æfa saman, mér sýnist við vera svipaðir. Svabbi bróðir fær auðvitað alveg sultugóðar þakkir fyrir að róta og spila og gera og gera, eins Villi bróðir fyrir að vera með atriði á dagskránni, takk Villi minn. Eiríkur, Natan, Gulli tengdó, Kiddi smiður og Mæja frænka fá öll þakkir fyrir hlý orð í minn garð. Svo fá auðvitað allir æðislegar þakkir fyrir að koma og vera með, sérstaklega Guðrún vinkona Bryndísar sem þurfti að vakna klukkan 7 um morguninn til að ná flugvélinni frá Húsavík þar sem hún var stödd, Gunna þú ert hetja.
Finnst að maður gérir ekkert sjálfur er það ágætis siður að beina athyglinni annað, þetta er gert með því að tala um annarra manna tæki. Ég gæti t.d. spurt hvernig gangi með SAAB Þóris Jónssonar sem hann nýverið hefur breytt úr sjálfskiptum 900 GLE í beinskiptan 900 Túrbó 16. Jú það væri bara í þeim tilgangi að beina athyglinni frá sjálfum mér því að ég veit allt um það mál, eða bara hvernig gengur með Golf bifreið Gunnars Sigurðssonar, eða mótorhjól Ólafs Arasonar, aldeilis speki á nýju ári ha??? Ég ætti frekar að spyrja frétta, hverjir verða með í túrbóflokkunum á komandi sumri? Ef einhverjir ætla eða hafa yfir einhverju slúðri að búa þá mega þeir gjarnan skrifa hér að neðan smá orðsendingu. Þetta væri gaman að vita, eins hvað er að frétta að norðan? Það hljóta nú að fara að koma fleiri brjálæðingar þaðan á túrbóbílum, t.d. Bergur frændi, sko ekki frændi minn heldur Óla. Hann var búinn að viða að sér einhverju Daihatsu dóti og ætlaði að prófa eitthvað
skemmtilegt með lítið af kílóum.Planið hjá mér er nú samt að komast niður í 11,5 á næsta sumri, strákarnir segja að það sé ekki hægt á óportuðu heddi, þeir eru alltaf að nuða í mér hvort ég sé ekki búinn að porta. Ég er eiginlega orðinn svo pirraður á þessu að ég er að spá í að porta bara ekkert og bústa bara meira. Ég meina bara það að ef það er hægt að komast í 12,2 á óportuðu heddi, hvers vegna er þá ekki hægt að fara í 11,5? Það er sko örugglega hægt, og sérstaklega á 99unni, oooo... hvað væri nú gaman að taka hana í þetta mmmm......
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:12:35 AM
|

|