|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
þriðjudagur, febrúar 24, 2004
Konudagurinn
Jæja félagar, fóruð þið ekki í Gullsmiðjuna fyrir konudaginn? Þið verðið að huga að mínum styrktaraðilum, er það ekki? Hvað á það að þýða ef það fer ekki að minnsta kost einn gaur eða gella í Gullsmiðjuna og verslar eitthvað og segir síðan, "Hey, ég sá auglýsinguna þína á SAABinum hans Nóna, gott að þú skulir styrkja svona gott málefni"....... Kommon gæs, plíííís.
Ég þarf að fara að láta skoða SAABinn, það er ekkert mál svosem, bara að laga ljósin og rúðupissið. Verð líka að laga þessa gömlu túrbínu sem er í honum, skipta um þéttingar, hann reykir soldið í hægagangi. Annars er þetta ekkert mál.
Mig langar stundum að skrifa voða mikið en þá er ég yfirleitt í vinnunni og ekki nálægt tölvunni eða þá að það má ekki skrifa það, æ það er nú leiðinlegt.
Annars, þetta með millurnar sem mig langaði í, það væri nú eiginlega skynsamlegra að eiða þeim í nýjan SAAB 9-3 sport sedan sem er hægt að fá nýjan frá USA fyrir 3,1 millu, 175 ha. týpu (kostar 4 millur í Bílheimum, 150 ha. týpa) og eyða svo afganginum í stóra túrbínu og tölvu eða slikka og kúplingu eða eitthvað svona vinalegt.
Var annars að panta mér kúplingu sem á að halda 600 pundfetum eða 830 Nm, hún kemur sennilega fyrripartinn í apríl. Þá verður mátulegt að fara að prufa sig áfram með meiri "möppun"
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:11:27 PM
fimmtudagur, febrúar 12, 2004
Fúll og pirraður
Ég er fúll og pirraður, pirraður yfir því að eiga ekki 3,4 millur. Aeroinn hans Kára Stefáns er til sölu uppi ? B&L og hann er ekkert smá geðveikur, úhaa...... langar í hann.
Prófaði einn 8 ventla 900 túrbó ´86 5 dyra áðan og það var nú bara nokkuð traustvekjandi og þokkalega útlítandi bíll, handa Svabba bró, held samt ekki að ég og eigandinn náum saman.
Ég er líka pirraður yfir því að ég held að maður þurfi að vera einhver merkilegur til að fá eitthvað almennilegt spons, ekki bara einhver Jón úti í bæ (sem ég er, Jón í Kópavogsbæ) sem virkilega þarf þess með. Þessir andskotar sem eru eitthvað þeir eiga ekki að þurfa að hirða sponsið frá öðrum, mig vantar peninga fyrir nýrri kúplingu sem heldur í það minnsta 700 Nm og 600 hestöflum.....arrrrr.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:8:41 PM
miðvikudagur, febrúar 11, 2004
Tilneyddur
Mér fannst ég bara tilneyddur til þess að segja ykkur frá því að hann Óli Bóndi sem er mikill SAAB kall og vörubílstjóri var að skipta um skiptingu í CSinum sínum sem er b.t.w. ´92 2,3 N/A um daginn, og ég kíkti á hann þegar hann var að setja í gang. Hann á þennan líka ógurlega fína skúr, risastóran og háan, það er hægt að keyra vörubíl inn í hann, CSinn var eins og krækiber í helvíti á miðju skúrgólfinu.
Annað, hvað finnst lesendum um að venda SAAB kvæðinu í kross og gera hann afturhjóladrifinn? Eru menn (og konur) ósáttir við þá hugmynd? Ég er ekki að tala um á næsta tímabili, heldur seinna. Hvað væri þá gott að nota fyrir gírkassa? Hásingu? Eitthvað létt, eitthvað sterkt, ekki koma með eitthvað eins og hilux krapp.
Mig langar til að keyra prjónandi SAAB.
Kv. Nóni öfugsnúni
Bloggað klukkan:11:57 PM
|

|