Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

sunnudagur, mars 28, 2004

Hún Bryndís mín á afmæli í dag.


Til hamingju með afmælið elskan mín, alltaf gaman að eiga afmæli. Kristinn gaf henni nýjan síma (Ericsson að sjálfsögðu), og ég gaf henni svona þægilegan kvöldfatnað hehe.... annars er það að frétta að Svabbi bróðir er búinn að festa kaup á einum ógurlega fínum SAAB 9000i sem að við sóttum á Patró um síðustu helgi. Þetta eintak er svolítið ryðgað í sílsum (búinn að sjóða öðrumegin) og í hurðum en annars virðist þetta vera toppbíll, keyrði hann frá Patró án vandræða og eyddi nánast engu. Þegar þessir bílar komu fyrst á markað túrbínulausir árið ´86 var hægt að keyra þá úti á vegi á 90 km/klst á 5,9 lítrum/100km og geri aðrir betur í bíl sem var á þeim tíma flokkaður sem stór bíll í Bandaríkjunum.
Keyrði líka norður á Krók um þarsíðstu helgi til að heilsa upp á Kidda smið því að hann varð 75 ára þann 14. mars, það var bara virkilega gaman að hitta kallinn, mamma og Villi bróðir komu með. Mamma vildi fara á Corsunni en ég tók það ekki í mál, við færum sko á SAABinum hennar Bryndísar sem er eins og allir vita ´89 9000 túrbó sjálfskiptur með leðri og öllu. Nema hvað að mömmu fannst að hann hlyti að eyða heilum ósköpum en ég fullyrti að svo væri ekki, hann myndi eyða rúmum átta lítrum á hverja 100 km. Mamma var nú ekki alveg til í að kaupa það, en ég setti crúsið á 90 og svo keyrðum við án þess að stoppa og þegar við komum þangað sýndi aksturtölvan 8,1 lítra á hveja 100 km, þegar við komum svo suður aftur á sama tanki sýndi tölvan 7,9 lítra/100km og mamma hélt að það hlyti að vera einhver skekkja í þessu, ég fyllti þá á hann og sýndi henni útreikninginn og þá varð sú gamla hissa því að það passaði auðvitað alveg upp á kommu.

Annars er sá rauði að fara í skoðun eftir helgina og þá verður gaman já.
Kúplingin er komin af stað hingað heim, var í Nýfundnalandi á föstudaginn, allt að ske.


Kv. Nóni


Bloggað klukkan:2:44 PM

fimmtudagur, mars 11, 2004

Portun í fullum gangi!


Já þá er ég byrjaður að porta, þó fyrr hefði verið, hef aldrei portað áður en ég er þegar búinn að komast að því hvert mitt helsta vandamál verður í þessu verki. Það er hvenær á að stoppa og hvar, já hvar á maður eiginlega að stoppa þegar maður er kominn af stað á annað borð? Maður vill alltaf meira og meira, stærri port, meira flæði, fleiri hestöfl jaaaaáááá..... einmitt. Ég er pínu hræddur um að detta bara niður í vatnsganginn einhversstaðar. En ég er alveg handviss um það að þetta verður eitt ógurlega fínt hedd á endanum. Er samt frekar feginn að ég á fleiri en eitt til að æfa mig á, ég má gera mistök. Saga það þá bara í nokkra parta og rannsaka það.

Það er eins og það sé að færast einhver hugur í mig, ekki ólíklegt að það sé vegna þess að aðeins eru 8 vikur í fyrstu keppni og ég á eftir að gera AAAAAAALLT.... og líka láta skoða báða bílana. Verra með vinnuna, nú er að fara að hellast yfir okkur mikil vinna í breytingum og flutningum uppi í ölgerð svo að það verður unnið á laugardögum fram í júní, fari það bölvað.


Kv. Nóni


Bloggað klukkan:12:18 AM

föstudagur, mars 05, 2004

Félagi í Kvartmíluklúbbnum!


Kæru félagar, í kvöld borgaði ég félagsgjöldin í Kvartmíluklúbbinn fyrir mig og Bryndísi og erum við nú bæði gildir limir í KK, haldið þið ekki að hún verði ánægð með þessa síðbúnu konudagsgjöf? Ég held að hún verði himinlifandi með þetta góða framtak, hún þarf þá ekki að borga sig inn á keppnir í sumar. Mér finnst að alvöru kvartmílungar ættu að sjá sóma sinn í því að hafa konuna í klúbbnum, það er heldur aldrei að vita nema hana langi til að taka þátt. Hvernig er það annars með þig Ragnar, ert þú orðinn meðlimur í KK? ;-)
Reyndum annars að kristna þessa blöndungsheiðingja þarna niðri í klúbb með túrbínu og innspýtingatali en það varð nú enginn verulegur árangur af því, að minnsta kosti enginn viðsnúningur. Kannski þurfa menn bara að fara heim og sofa á þessu.

Annars er það að frétta af mínum SAAB málum að ég ætlaði að fara að ná í númer á rauða 900 Túrbóinn, búinn að massa og bóna, þegar ég komst að því að það hvíla á honum bifreiðagjöld fyrir 6 ár, þ.e. 60 þús. í skatt og 76 þús í kostnað, samtals 136 þús.kr. Sem betur fer er ég ekki búinn að borga bílinn og kem ekki til með að gera það, veit ekki hvað ég geri, öll ráð vel þegin, kannski verður hann bara rallýkrossari.

Að tjúningum, nú er rétta tækifærið að panta sér Autronic tölvu vegna þess að við erum að fara að panta Analyzerinn og þá er gott að panta tölvu með og minnka sendingarkostnaðinn, kannski hægt að sjóða saman eithvað tilboð, klikkið endilega á logoið hér við hliðina og hafið samband við einhvern af okkur, svona enga feimni, ég veit að þið eigið peninga og langar til að tjúna eins og alvöru menn. Ef menn kaupa tölvu í bílinn sinn hjá okkur verður mælirinn lánaður ásamt wideband skynjaranum í pústið og þá geta menn fengið eins mörg hestöfl og túbínur og spíssar og bensíndælur bjóða upp á. Einnig verður reynt að aðstoða menn við ísetningu eins og þurfa þykir í formi rálegginga.

Ég er farinn að hlakka mikið til kvartmílusumarsins, varð allt í einu var við það að það eru ekki nema 9 helgar í fyrstu keppni, sem er lítið. Strákarnir niðri í klúbb voru eitthvað að forvitnast um hvort ég myndi ná Gulla í sumar, ég treysti mér sko alveg til að ná honum, bara ekki í kostnaði. Ég veit að ég var hálfri sekúndu á eftir honum og 2 mílum á undan, en ég var líka 6,5 millum á eftir honum í kostnaði, reynið bara að ná því. Við ykkur norðanmenn segi ég þetta, ég ætla líka í 10 sek. arrrarrrr.....

Að síðustu má svo geta þess að hann Kristinn okkar á 4ra ára afmæli á laugardaginn og verður haldið upp á það með kökum og kaffi kl. 14:00.



Kv. Nóni

Bloggað klukkan:12:17 AM