|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
miðvikudagur, apríl 28, 2004
Til hamingju með afmælið mamma mín!
Já hún mamma á afmæli í dag 28. apríl, hún er yndisleg hún mamma og styður mann í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur, meira að segja þessu kvartmíluveseni. Hún er ekkert gefin fyrir mótorsport á nokkurn hátt en hún veit að ég hef gaman af þessu og það nægir henni, takk mamma.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:11:48 PM
laugardagur, apríl 10, 2004
Fyrir þá sem ekki vita.....
Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta stimpladæmi hér að neðan ekki eitthvað sem ég gerði með því að fikta aðeins í kveikjunni eða vegna þess að SAABinn sé svona helvíti lélegur, þess vegna sá ég mig tilneyddan til þess að setja inn eldri skrif hér til hliðar svo að menn gætu áttað sig á því sem gengið hefur á. Þetta voru jú niðurstöður síðustu keppni þar sem ég fór á 12.26 sek. og 113,35 mílum sennilega með þetta allt sprungið. Sem sagt, 1,6-1,7 bör og kveikjan um 13 gráður fyrir topp í stað ca. 9,5 gráður.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:12:03 AM
Það kostar að hafa kveikjuna vitlausa!
Eins og sést hér á myndinni fyrir neðan er nokkuð vel sprunginn stimpill í vélinni sem ég var með í síðustu keppni, reyndar voru 2 brotnir, fyrsti og þriðji. Kveikjan var jú 3,5 gráðum of fljót vegna þess að kranktriggerinn hafði færst lítillega úr stað og það kostaði 2 brotna stimpla. Sennilega hefur þó mín besta ferð verið farin með sprungna stimpla.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:12:01 AM
föstudagur, apríl 09, 2004
Birkir að skríða inn í klúbbinn.
Hann Birkir vinur hans Þóris er að skoða þann möguleika að taka við þeim rauða, hann verður ekki svikinn af honum.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:11:54 PM
fimmtudagur, apríl 08, 2004
Hvers á ég að gjalda?
Nú er illt í efni, fíni SAAB (þessi með leðrinu sem er heimilisbíll) hætti skyndilega að gefa hjálparafl á bremsurnar og hún Bryndís mín er frekar pirruð þegar svoleiðis gerist þannig að nú heimtar hún nýjan bíl. Ekki gott, ég vil að heimilisbíllinn sé SAAB, nýr SAAB kostar 4 millur minnst í Bílheimum og hún þvertekur fyrir að kaupa 5 til 6 ára gamlan eða fá einn af ebay hingað heim. Hún vill fá Skoda Oktavia, ég vil gera við gamla bílinn vegna þess að ég er handviss um að það er ekki meira að honum en þetta og það væri hægt að fá dæluna og júnitið fyrir hjálparaflið frá ameríku eða Svíþjóð fyrir ekki mikið fé. Nei þetta er ekki hjálparafl með vacuumi, þetta er rafmótor og dæla undir höfuðdælunni sem skaffar hjálparaflið, þessi er nefnilega með ABS systemi.
Ég er þannig í herfilegri krísu með mín SAAB mál hér á heimilinu, heimilisfólkið gerir uppreisn gegn yfirvaldinu og lætur sem það heyri ekki rök eða staðreyndir sem settar eru fram af undirrituðum. Ég veit persónulega ekki um neina betri bíla en þessa tegund og þetta er það eina sem ég bið um að fá að ráða hér á heimilinu, ekki skipti ég mér af neinu sem gerist hér inni á heimilinu enda sé ég ekki fyrir mér að ég fái neinu um það ráðið hvað gerist hér.
Kv. Nóni, kúgaður.
Bloggað klukkan:1:40 PM
|

|