Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

sunnudagur, maí 30, 2004

Fyrsta keppnin búin.


Já þá er fyrsta keppnin í sumar búin og hún var bara nokkuð skemmtileg þrátt fyrir að það vantaði keppendur í alla flokka, ég var einn skráður í RS flokk en það er sennilega það minnsta sem nokkurntíma hefur verið skráð í hann þannig að ég fór í GT flokk. Það var bara mjög skemmtilegt, ég lenti í öðru sæti af fjórum og þar af var einn keppandinn ekki með vegna þess að bíllinn hans bilaði. Þetta var hann Steingrímur á Corvettunni sem spregdi intercoolerinn sinn svona hressilega, okkur fannst þetta nú svolítið gott á Steingrím vegna þess að hann hefur ekkert verið að liggja á þeirri skoðun sinni að okkar project sé pís of sjit.
Autotune-ið er að svínvirka, það er bara snilld að logga ferðina og koma svo í pittinn og skoða og lagfæra. Það var nú einskær óheppni að sigra ekki þennan flokk vegna þess að tölvan var eitthvað að stríða okkur og vildi ekki gefa okkur nógu mikið búst, reyndar teljum við okkur vera búna að finna út úr þessu núna og komum þá albrjálaðir næsta föstudag og gerum allt brjálað. Það var rosa gaman að vinna Danna á 300ZX og vera samt með hálfri sekúndu lakari tíma en hann, 12,9 á móti 13,4. Þetta var vegna þess að ég var með gott viðbragð en hann sofnaði eitt andartak og það er vont þegar maður er að keppa í kvartmílu, eftir það varð keppnin að einhverju sem ég ekki skildi og þarf að fá frekari útskýringar á.
Túrbínan er annaðhvort að leka svona svakalega olíu inn í pústið eða að hann lekur svona einhversstaðar niður á það því að hann tók upp á því að reykja allsvakalega þarna úti á braut en bara í hægagangi eða þegar ég sló af. Meira seinna, fylgist með uppi á braut og hér á síðunni því að núna fara hlutirnir að gerast.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:11:41 PM

mánudagur, maí 24, 2004

Byrjaður að keyra og svona!


Já góðir hálsar, þetta er allt komið saman núna og ég farinn að keyra í vinnuna og svona, ætla að keyra í svona 50 til 100 km áður en ég fer að tjúna. Ég held að það sé meira en nóg tilkeyrsla fyrir svona SAAB eins og minn. Svo erum við félagarnir, Óli og Gunni búnir að fjárfesta í Autronic model b analyzer (sem er wide band o2 mælir sem hægt er að tengja við Autronic SMC tölvuna og autotjúna) og með því erum við komnir með sýn inn í nýja vídd sem var okkur svo gott sem hulin áður. Eins og flestir alvöru tjúnarar vita er mjög erfitt að tjúna forhlaðnar vélar (túrbóvélar) á miklu álagi en þessi mælir gerir okkur það mjög auðvelt, að vísu var ég með wide band í fyrra en sá var frekar lengi að svar og ekki var hægt að tengja hann beint við tölvuna. Núna getum við einnig hjálpað öðrum túrbóstrumpum með sínar tjúningar og ef menn kaupa Autronic tölvu hjá okkur, þá verður mælirinn lánaður út með manni.
Þið getið þannig séð að það er mikill spenningur í gangi í herbúðum IceSAAB varðandi næstu keppni sem verður vonandi um næstu helgi ef veður leyfir.

Að öðru, hann Ágúst félagi minn var að fá sér þennan líka fína 900 8v túrbó árg. ´88 þennan líka fína vagn, til hamingju Ágúst.





Kv. Nóni


Bloggað klukkan:9:38 PM

sunnudagur, maí 16, 2004

Saab wheels for sale!


These rare 390 mm wheels are for sale if anyone is interested, they come from a 1983 900 turbo US model and are in good shape although tires are no good. Please send me e-mail if you have any questions, saab@cool.is






Bloggað klukkan:11:21 PM

mánudagur, maí 10, 2004

Allt að ske!



Jæja gott fólk, þetta er allt að ske núna hjá okkur og bíllinn að komast í nokkuð gott stand, búið að skifta um diska og klossa og legur að aftan og verið að skifta um bremsurör. Svo var ég að raða mótornum saman í dag og ég get varla orða bundist yfir því hvað sænska stálið er gott, ég ákvað að nota aðra blokk sem ég átti, ekki vegna þess að hún væri orðin slitin heldur vegna þess að það voru einhverjir tæringapollar í henni, ( þær eru jafn mikið keyrðar). Þegar ég var að setja hringina í stimplana gáði ég auðvitað að því hvað væri mikið gap á hringnum þegar hann væri í blokkinni, og viti menn það var innan marka á nýrri blokk, geri aðrir betur eftir 230.000 km.

Að öðru, stór fugl hvíslaði því að mér að það hefði sést til ónefnds bíls niðri í tolli hjá eimskip, þetta mun hafa verið á miðvikudag eða fimmtudag og ku hafa verið mikið af límmiðum á bílnum atarna. Átti bíllinn að hafa verið að koma frá Bretlandi úr tjúnningum.
Nú spyr ég eins og fávís kona, er þetta rétt?

Ég er að spá í að senda bílinn minn út til Svíþjóðar til að láta sprauta hann, ég kann ekkert að sprauta og hann var jú málaður það fyrir 17 árum síðan og þeir hljóta að vita hvernig á að gera það.


Sumarkveðja, Nóni.

Bloggað klukkan:1:09 AM

laugardagur, maí 01, 2004

Kíkið á þetta OG ÞETTTA!




Þið verðið líka að kíkja á þetta!...www.noni-is-good-for-you.com/

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:11:35 PM