Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

mánudagur, júlí 12, 2004

SAABinn er rúmlega 400 hestöfl!


Við fórum með SAABinn í aflmælingu í dag og hann mældist 297,8 kw sem eru rétt yfir 400 hestöfl við rúmlega 6000 sn/ á mínútu og ég er nokkuð sáttur við það, samt er ekki hægt að taka algerlega mark á þessu þar sem hann spólaði í keflunum og mælingin var upp á tæplega 150 km hraða en hefði átt að vera eitthvað á milli 180 og 190 km þannig að hann gæti verið einhversstaðar á milli 420 og 450 hestöfl ef manni leyfist að áætla. Togkúrfuna fengum við ekki vegna þess að það vantaði snúningshraðann, það var eitthvað verra að fá hann af því að við keyrum með “wasted spark” sem þýðir að hann skýtur neista á tvo í einu. Hann hafði víst ekki tíma til að föndra neitt við þetta en ég hélt að hann hefði bara getað notað merkið sem snúningshraðamælirinn minn notar.
Allavega rosa sáttur og nú get ég farið að rífa þetta enn eina ferðina í sundur og skipta um kúpplingu og smíða greinar, það verður því einhver bið á því að SAABinn fari í gang aftur ( ég hef heyrt að það taki langan tíma að smíða greinar ).

Kv. Nóni





Bloggað klukkan:9:39 PM

Önnur keppnin búin.




Þetta var aldeilis góður dagur í dag, ég setti nýtt persónulegt met, 12,1 á 115 mílum sem er aldeilis frábær árangur að mér sjálfum finnst og líka nýtt hraðamet í RS-flokki. Ég ætlaði nú reyndar niður fyrir 12 sek. en kúpplingin gafst upp í miðjum hamaganginum og þá er bara að setja þessa nýju ofurkúpplinu í. SAABinn átti enn þónokkuð inni og verður gefið meira næst.
Hins vegar var þetta leiðinleg keppni, já alveg arfa leiðinleg, enginn RS-flokkur, enginn GT-flokkur, enginn SE og enginn GF. Hvar eru öll kvartmílutækin? Hvar eru allir meðlimir klúbbsins sem gætu verið að keppa á keppnum og gera show fyrir áhorfendur sem koma til að sjá kraftmikla bíla spyrna? Áhorfendur koma ekki til að sjá innan við 20 tæki, þeir vilja fleiri græjur. Klúbburinn telur núna 88 greidda meðlimi og það mæta 20 í keppni, svo er heldur ekki hægt að fá félaga til að vinna við keppnir heldur þarf að ráða utanaðkomandi fólk á launum til að sjá um keppnishaldið. Ég veit það vel að það eru líka inni í þessu konur og börn meðlima en segjum að það séu 10 stykki, þá væru enn 78 gaurar og gellur eftir. Hvar er þetta lið allt saman?
Keppnishaldarar fá mitt hrós í dag, bara fínt hjá þeim, Haukur auðvitað með þetta allt á herðunum en hann er jú maður til að bera það og gerði það með sóma.
Flottasti bíllinn, jú það held ég að hljóti að teljast Charger Ragnars þó að Gremlininn hans Sigga Jak komi þar sterkur inn, Siggi fær samt einnig hrós fyrir góðan akstur í bracketinu.



Kv. Nóni

Bloggað klukkan:12:05 AM

laugardagur, júlí 10, 2004

Var ekki kominn tími til að fara að blaðra eitthvað?



Það hefur borið á því að undanförnu að ég hef fengið glósur um að ég hafi ekkert skrifað á síðuna lengi, þetta er alveg rétt og hef ég ætlað að bæta úr því lengi. Gott og vel, ég var í vandræðum með bensínþrýsting þarna í fyrstu keppni og reyndi því að fjölga dælum úr tveim í þrjár án árangurs. Þetta var eitthvað sem maður er ekki alveg klár á þó að þetta hefði átt að virka, nú er ég hins vegar búinn að fá þessa líka fínu dælu frá bosch sem á að dæla öllu því sem ég þarf í bili eða 3,25 lítrum á mínútu við 5 bör, ( gamla var gefin upp fyrir 1,8 lítra á 2,6 börum. Þessa dælu keypti ég í fyrirheitna landinu en þar var í brúðkaupi Ása og Píu um síðustu helgi, fleira skemmtilegt gerðist þessa helgi því að ég Óli og Kristinn forum á Bilsport action meet á Tullinge brautinni í Stokkhólmi og það var lítið annað en skemmtilegt, turbo og ekki turbo, fram og afturdrifið og fourwheel, sem sagt allt fullt af SAAB, Volvo, BMW, VW og Hondum Subaruum, EVOum og fl. Þetta var ekki allt, Óli hafði verið á bílasmíðanámskeiði rétt fyrir ofan Uppsala og var því á bílaleigubíl og auðvitað var það þessi fíni SAAB 9-3 árg. 2004 og hann vildi auðvitað að ég keyrði, ég get sagt ykkur það að hann þurfti ekki að segja það tvisvar. Þvílíkur eðalvagn.

Ég hitti líka mann sem átti heyblásara, ég bauð honum sænska ríkisdali í staðinn fyrir heyblásarann og hann samþykkti það og úr varð að ég fór í flugvélina klyfjaður af gulli. Þetta er nú samt ekkert sem ég get skrúfað í , þ.e.a.s. forþjappan, það þarf að smíða nýja grein í SAABinn og þá helst nýja soggrein líka.

Í dag var samt reynt að gera eitthvað með litla túrbínukrílinu hans Gunna, hún blés og blés en lítið gerðist, samt náðum við góðum tíma eða 12,6 sek. án prjóngrindar og með 20 pund í slikkunum sem er mikið, 15-17 er ágætt með þessa breidd af felgum því að þá nær hann að krumpa aðeins dekkin. Nóg virðist vera af bensíni svo að við erum óhræddir við að gefa meira bust, flýta kveikju og gera það sem til þarf til að komast niður fyrir 12 sek. þannig að á morgun verður gaman að sjá.

Meira á morgun, Nóni

Bloggað klukkan:10:54 PM