|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
fimmtudagur, október 28, 2004
WORLD PREMIERE!
Here you are, all SAAB fans and dragracers, the SAAB dragbike has now been driven on the streets of Garðabær, Iceland. This is a uniq bike all custom made by my friend Óli and his good watercuttingmachine:-) He took a B202L which I put into the project and put new pistonrings and bearings and powder coaded the block and the valve cover, cleaned all other parts and connected Autronic SMC ecu to it. The drivetrain is snowmobile clutches and chain.
Here is the video of the test drive that went well, pix/Firstrun1.WMV
For those of you who have not seen the bike before, there is a piture of it further down this site.
Best regards from the SAAB community of Iceland.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:1:05 AM
sunnudagur, október 24, 2004
Góð æfing í dag sunnudag.
Þetta var frábær dagur úti á braut, veðrið var glæsilegt svo ekki sé meira sagt og SAABinn allur að koma til eftir að hafa þjáðst af kúpplingsvandræðum og of litlum spíssum. Þessu var jú kippt í liðinn um daginn og útbúið "flatshift" þannig að ekki þarf lengur að sleppa bensíngjöfinni þegar skipt er um gíra, þannig missir hann bústið mjög lítið niður á milli gíra. Virknin var svakaleg þegar við vorum búnir að fá Autronic til að góðkenna 1800 cc spíssana hans Óla, hann átti nefnilega 8 stykki og var bara að nota 4 í hjólið, nú skortir allavega ekki bensínið. Við náðum rosa góðum hraða eða 116 mílum á 12,6 sekúndum með enga prjóngrind og vorum ennþá að stilla og græja, mitt gamla met var 115 mílur. Með prjóngrindina hefði SAABinn góði sem sagt farið undir 12 sek. í dag og niður í 11,eitthvað ef að aftari mótorfestingin niðri hefði ekki ákveðið að slitna í sundur og fremri mótorpúðinn einnig. Vinstri öxullinn fór þá út úr gírkassanum og hefndi sín illilega á fyrri misþyrmingum og gerði gat á gírkassann (hann hefði auðvitað átt að lemja í vélina, það var jú hún sem framleiddi allt togið). Læt fylgja eitt video (innlent) af þessu rönni sem var upp á 12,6 sek. og 116 mílur.
pix/Runstytt3.WMV
Kveðja úr SAABheimum, Nóni
Bloggað klukkan:11:00 PM
þriðjudagur, október 19, 2004
SAAB dragbike is now alive!
This is a video of the SAAB B202L engine dragbike running, ECU is of course Autronic SMC and injectors are bosch 839 with 1800cc/min. flow, two bosch 139 ignition modules and two coils from Subaru. Crank trigger is specially water cut and I will post picture of it soon.
pix/olahjol/olahjolvideo.wmv Enjoy. Here are some pics of my 9000 ´88 with airflow kit, but unfortunatly before I got my hands on it someone had taken the front spoiler off with a hacksaw. If anyone can help me find a spoiler like this I will be most thankful

Best wishes from SAABavogur, Nóni
Bloggað klukkan:10:13 PM
miðvikudagur, október 06, 2004
Umhugsunarefni, allavega fyrir suma!
Ég fór á fund í kvöld, sem er nú svona frekar í frásögu færandi vegna þess að ég fer yfirleitt ekkert á fundi. Jæja þarna var verið að ræða mál á frumstigi sem ekki verður greint frá hér fyrr en seinna, já einmitt vegna þess að það er á frumstigi en það má segja að það tengist bílum, og einhvern veginn komst það upp á yfirborðið að ég væri með SAABdellu. Það skal tekið fram hér með að þessi fundur var á léttu nótunum þrátt fyrir að um háalvarlegt mál væri að ræða. Þarna voru þá tveir menn sem ekki höfðu hitt mig áður, og þegar þeir komust að þessu mjög svo opinbera leyndarmáli ætluðu þeir að reyna að dissa mig eða SAABinn með því að halda því fram að SAAB væru hommabílar. Nóni var að sjálfsögðu kurteis maður og brosti bara en vissi sem var að svo var ekki, heldur væri þarna frekar um að ræða einhverja meiri þekkingu þeirra á hommum en bílum. Þó ég viti lítið um homma held ég að þeir séu ágætis fólk og ekkert skrítið þó að þeir vildu eiga SAAB, það er nefnilega ekkert skrítið við það að einhver vilji eiga SAAB, það er skrítið ef einhver vill ekki eiga SAAB og hananú.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:11:33 PM
laugardagur, október 02, 2004
Mér er ætlað að eiga SAAB!
Það er ekki ofsögum sagt að mér er ætlað að eiga SAAB, og það marga. Ég henti einni 99u í dag sem var ekki mikils virði, ryðguð og illa farin, samt var ég verulega leiður yfir þessu grimmdarverki. Hirti það sem ég hélt að ég þyrfti að nota einn daginn, (á nú eina 99u fyrir). Hvað getur maður samt gert? Ekki getur maður safnað þessu heima hjá sér þó maður glaður vildi.
Nema hvað? Við fórum út að borða með Ainu og Steini í kvöld og höfðum það virkilega huggulegt en ég saknaði 99unnar lítillega og skyggði það aðeins á kvöldið að mínu mati, Bryndís var samt í 7unda himni. Þegar leið á kvöldið rættist nú heldur úr og þegar við skutluðum þeim heim í Kjarrhólmann bentu þau mér á gamla 99u sem stóð þar á stæðinu með ógrynni af hótunarmiðum frá viðeigandi yfirvöldum (lögreglu og heilbrigðiseftirliti) og þegar ég var að skoða hann renndi upp að okkur maður og spurði hvort okkur vantaði ekki SAAB, jú var að sjálfsögðu svarið og hann sagði mér hver ætti hann og að hann væri að horfa á okkur í glugganum. Þegar ég fór upp að hitta manninn henti hann í mig lyklunum og vildi endileg að ég tæki bílinn. Vegna ölæðis fer ég ekki fyrr en á morgun og næ í hann, en það verður jú gert með gleði að sjálfsögðu.
Er búinn að bora gat í dragSAABinn fyrir öðrum mastersýlender svo að nú er ekkert annað en að tengja og athuga hvort allt er í lagi.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:10:27 PM
|

|