Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

föstudagur, nóvember 26, 2004

Hitt og þetta........


Það er leiðinlegt skammdegið þó að það hafi nú birt all svakalega yfir hlutunum þegar sá nýji kom, nú situr maður heima og gerir EKKERT! Já ég sagði það........ekkert, en það er nú bara æðislegt að fá tækifæri til þess að eyða svona tíma með litla krílinu og sjá hann dafna eins vel og hann gerir. Því er hins vegar ekki að leyna að hugurinn reikar um heima og geima og dagdraumar eru allsráðandi á milli þess sem maður skiftir á bleijum og fær sér kaffibolla. Þá er rosa vinsælt að fara á Ebay, og SAABNET sem og aðra SAABvefi, ekki get ég heldur neitað því að maður villist stundum inn á þetta blessaða kvartmíluspjall. Það þarf varla að orðlengja það að vonbrigðin eru ávallt svipað mikil, þegar maður heldur að einhver vitleysingurinn sé dottinn út eða lagstur í dvala þá er óðar einhver nýr kominn í staðinn. Þetta er eins og maður getur ímyndað sér að sé að berjast við marghöfða risa, ef maður heggur eitt höfuð af, vaxa tvö á hann í staðinn. Það er einn byrjaður núna á sem er ekki kominn með bílpróf og búinn að vera inni á spjallinu mánuð, mér fannst hann eitthvað atkvæðamikill á borðinu svo að ég fór að tékka á honum í morgun og þá var hann kominn með 54 pósta, á einum mánuði, og þegar ég tékkaði í þessum skrifuðu orðum þá var hann kominn með 65 pósta, allur að sækja í sig veðrið. Held að hann sé úr sveitinni fyrir austan og svo spjallar hann við hinn sveitavin sinn á næsta bæ um lödur og pallbíla, hvort sem er með eða án húss. Fyrir utan nokkra góða spretti hjá Vali Vífils og kannski Frikka er enginn að tala þarna um kvartmílu.

Það væri voða gaman að gera eitthvað skemmtilegt næsta sumar, þá er ég að tala um í sambandi við kvartmíluna. En það er ekki auðvelt að ákveða sig þegar mann langar bæði að vera í bílaflokki og keyra rosa hratt og það á SAAB, búinn að fá ófáan reiðilesturinn fá Hr. Vífilssyni og öðrum um að "SÁBAN" sé of þung og að drifið sé öfugu megin og hvað ekki. Þetta er ertfitt því að nú er búið að skera niður fjárframlög til kvartmílu svo um munar og ekki útlit fyrir að bætt verði úr á fjáraukalögum, þannig að maður verður að moða úr því sem maður hefur í húddinu og skúrnum. Kannski verðum maður bara í tíminu hjá Óla með hjólið.

Svo er það auðvitað aðalfundurinn og lokahófið á laugardaginn, þar verður nú auðvitað aldeilis húllumhæ og hó, ef það mætir einhver það er að segja.


Meira seinna, Nóni




Bloggað klukkan:1:16 AM

sunnudagur, nóvember 14, 2004

Við erum búin að eignast stóran dreng!
Drengurinn hefur fengið nafnið Davíð og hér eru myndir af honum á spítalanum með Kristni stóra bróður og mömmu sinni.

Já gott fólk, þar kom að því að hann fæddist drengurinn sem við vorum að bíða eftir og enginn smá bolti, 4600 gr. og 54,5 cm. Hann er ekki minna fallegur en eldri bróðir hans var því að hann er eiginlega alveg eins.

Kv. Nóni og Bryndís (í sjöunda)

Bloggað klukkan:2:06 PM

mánudagur, nóvember 01, 2004

Nú langar mig hrikalega mikið í 99 turbo!


Já það er satt mig langar rosalega mikið í gamla 99u með túrbó mótor, þessir bílar komu frá 1977 til 1981 og meira segja nokkrir hingað til lands. Ef einhver svo mikið sem minnir að hann viti um svona bíl þá má hann láta mig vita, ég var nefnilega að selja bláu GL 99una sem ég átti, það var sárt að sjá á eftir henni en málstaðurinn var góður því að maðurinn sem keypti ætlar að gera hann flottan og gefa á bílasafn.

Kv. Nóni icesaab@simnet.is eða 848 8368

Bloggað klukkan:1:31 AM