|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
þriðjudagur, desember 28, 2004
Þetta er málið fyrir mig í sumar!
http://hem3.passagen.se/cat55/toppola/bild/saab9000bak.jpg
Þetta þarf auðvitað að vera til á hverju heimili.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:1:03 AM
laugardagur, desember 25, 2004
Gleðileg jól
Já gleðileg jól öll þið sem einhverntíma rekið hér inn andlitið, þetta var meiriháttar aðfangadagskvöld því að Kristinn fékk tvöfaldan skammt af pökkum. Davíð var jú ekki alveg tilbúinn til að rífa utan af þessu öllu ennþá. Ég held þó að sá eldri hafi vorkennt aðeins litla bróður sínum að fá alla þessa mjúku pakka, já Davíð fékk föt og nokkra bangsa enda ekki nema 6 vikna gamall. Kærar þakkir til allra.
Það var naut (entré code), hrikalega gott og mjög vel heppnað hér á boðstólnum á aðfangadagskvöld og allskonar meðlæti, rækjukokteill í forrétt og ísterta með jarðaberjum og rjóma á eftir. Sem sagt allt æðislegt.
Það hafa eflaust einhverjir orðið varir við að minn góði kappakstursbíll er kominn á annan stað í Kópavoginum eða til hans Gunna vinar míns. Margir gætu haldið að Gunni hefði keypt bílinn en svo er nú ekki, þrátt fyrir að Gunni sé búinn að þrábiðja mig að selja. Nei ég lét einungis eftir honum að hafa hann hjá sér rétt á meðan að ég ákvæði hvað ég ætlaði mér með hann, hvort að ég flikkaði eitthvað upp á hann eða sliti úr honum vélina og léti svo einhvern annan hafa hann. Þá getur Gunni svosem fengið hann.
Jólakveðja, Nóni
Bloggað klukkan:1:14 PM
mánudagur, desember 06, 2004
Fleiri myndir!
Já góðir gestir hér er ekki mikið að gerast í bílamálum en hins vegar maður sem er að springa úr monti yfir að eiga svona flotta stráka. Meira um SAABa seinna, hér koma myndir.
Þessi síðasta lýsir svolítið heimilislífinu hér síðustu vikur.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:1:52 PM
|

|