|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
mánudagur, janúar 31, 2005
AEROinn kominn á götuna!
Já gótt fólk nú er hann kominn á götuna með öllu tilheyrandi AEROinn sem við Bryndís keyptum á Ebay og hann er auðvitað alveg svakalega flottur, svartur með ljósu leðri og Harman/Kardon hljóðkerfi og auðvitað 230 hestöfl og 350 newtonmetrar, ekkert slor skal ég segja ykkur. Hér eru myndir af ebay en ekki hefur gefist tími í að þrífa hann fyrir myndatöku síðan hann kom. 
AERO kveðja, Nóni
Bloggað klukkan:10:52 PM
sunnudagur, janúar 23, 2005
Til hamingju með afmælið Svabbi
Svabbi bróðir átti afmæli á föstudaginn 21. jan. og hélt hann alveg magnaða tónleika á Rósenberg, Birkir tók aðeins í trommurnar þegar Jón Geir þurfti á pissiríið og gerði hann það gott á trommunum að mínu mati. Helst til of mikið af öli fyrir daginn eftir en ekkert sem ekki var hægt að hrista af sér.
Birkir kom með 8 ventla túrbóvélina sína og byrjaði að slíta í sundur hérna í skúrnum og eins og við var að búast var hún nánast eins og ný og þess vegna hinn mesti óþarfi að fara að eyða vinnu í hana eða peningum, það er hins vegar svona þegar menn ætla að gera allt eins og nýtt í bílnum og ætla líka að keyra rosa hratt með T3 og súper 60 og jafnvel Autronic líka að þá er nú betra að hafa þetta allt í topplagi. SAABinn hans Birkis verður pottþétt flottasti 900 bíll á Íslandi og þó víða væri leitað, hann verður líka örugglega yfir 300 hestöfl þegar við í Hestaflabúðinni erum búnir að fara höndum um hann.
Skifti um bremsurör í þeim gráa um daginn og tók af honum framsvuntuna því að hún var hálfgerður snjóplógur og var hálf laus á líka. Það var óhemju af vatni í botninum á honum þannig að eftir að ég þurrkaði það þá er hann töluvert léttari.
Aeroinn er kominn til landsins og kemur sennilega úr tollinum seinnipart í næstu viku.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:1:33 AM
föstudagur, janúar 07, 2005
Svabbi bróðir!
Svabbi bró varð fyrir því óláni um daginn að drukkinn ökumaður keyrði aftan á hans góða 9000i og gersamlega eyðilagði hann, myndir hér http://www.simnet.is/muzak
Við ræddum við tryggingafélag drukkna ökumannsinns og þeir afréðu að greiða sanngjarnar bætur, fyrir tilstilli mikilla þjáninga okkar bræðra sem fórum báðir að betla. Strax daginn eftir auglýsti einhver heppinn/óheppinn maður SAABinn sinn og við vorum ekki seinir á okkur og keyptum hann, þetta er þessi líka flotti SAAB 9000i árg´88 og ekki ekinn nema 316000 km. hinn var ´87 en hann var á móti ekki ekinn nema 215000 km. Þessi flotti SAAB er töluvert minna ryðgaður en sá gamli og betur út lítandi og fyrri eigandi var að sjálfsögðu óheppinn að vera að selja SAABinn sinn en jafnframt heppinn að selja bílinn sinn strax. Þetta eru einfaldlega æðislegir bílar og allir ættu að eiga einn (eða tvo).
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:8:59 PM
mánudagur, janúar 03, 2005
Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég á afmæli sjálfur.........
Gleðilegt ár öll þið SAABsjúklingar og annað fólk. Já það er satt, í dag á ég afmæli og af því tilefni ætla ég að sýna ykkur nýjasta meðliminn á heimilinu, eins og einhver ykkar getur rétt til er þetta einmitt SAAB og það gamall 900 T16 með spiolerum frá ´91. Svona vagnar eru jú frekar sjaldséðir hér á landi í það minnsta og læt ég því fylgja eina mynd með.

Kv. Nóni
Bloggað klukkan:10:27 PM
|

|