|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
sunnudagur, febrúar 06, 2005
Kominn nýr meðlimur í SAAB klúbbinn!
Hann Baldur súkkueigandi með meiru er genginn í klúbb hinna æðri því að hann verslaði sér SAAB 9000 túrbó árg. ´88 í kvöld. Þetta er hinn besti vagn sem þarf lítið að gera við, aðeins að gera honum gott og sjálfsagt verður eitthvað átt við apc búnaðinn í honum til að leifa honum að keyra enn hraðar en hann gerir nú þegar. Það verður gaman þegar við tökum spyrnu saman ég á mínum brúna fína og Baldur á sínum, hehe.......
Til hamingju Baldur, þetta er án efa mikið gæfuspor fyrir þig.
Og allir saman nú þrefalt húrra fyrir Baldri, húrra, húrra, húrra.
Við fjölskyldan fórum stóran rúnt á AEROnum í dag og var það að sjálfsögðu rosalega gaman, það var farið út í Hafnarfjörð og í áttina að Krýsuvík, svo upp í Mosfellsbæ og þaðan niður í bæ og svo í Kópavoginn, skemmtilegur rúntur en veðrið hefði mátt vera betra eins og margir vita.
Í gær fórum við Birkir með gamla bílinn hans Svabba bróður niður í hringrás eftir að búið var að hirða það sem talið var skifta einhverju máli.
Ég er ennþá að velta því fyrir mér hvort ég á að keppa eitthvað í sumar eða ekki, þetta er mikið að veltast í hausnum á mér hvort ég verði á einhverju sjálfskiptu og öruggu í 13.90 eða í RS eða GT eða hvað, kannski með 99u eða bara í keppnishaldinu. Maður verður bara að reyna að komast að niðurstöðu miðað við heimilisbókahaldið og tíma og og og og og og og og og........endalausar afsakanir.
Óli er alveg að fara að kaupa sér kúpplingu í hjólið og þá er þetta farið að rúlla helvíti flott, hann verður með í 2 flokkum í sumar. (broskall)
Gunni er auðvitað alveg klár þegar hann er búinn að skrúfa túrbínuna í og heimta 30 ára afmælisgjöfina sína, Gunnar það er bara hollt og gott að brjóta nokkra kassa.
Já það verður gaman í sumar það er engin spurning, sérstaklega þegar Birkir verður búinn að setja saman bílinn sinn. Hann var einmitt að taka saman myndir sem hann ætlar að láta mig hafa og þá get ég sett þær hér inn til að menn geti séð að það voru alvöru menn á ferð við að gera við ryð í þessum SAAB. Þetta verður án efa flottasti 900 SAAB á landinu öllu og ekki sá latasti, hann keypti nefnilega í hann T3 súper 60 sem getur gefið manni 380 hross og það er alveg mátulegt til að prófa með 8 ventla heddi.
Fleira var það ekki í SAAB fréttum og verður meira blaðrað seinna.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:10:19 PM
|

|