|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
föstudagur, mars 11, 2005
Dyno video!
Það gengur eitthvað video af dyno testum úr Borgó á spjallrásum landsins, mér datt í hug að pósta líka finnst að Gunni er búinn að uplóda dyno testinu af SAABinum sem var tekið úti í Hafnarfirði. Þetta er hörkugott myndskeið og megi hver njóta vel. Hér mælist hann 405 hestöfl og það er ásafl. Ekki reyndist unnt að mæla snúningsvægi vegna þess að gæinn kunni ekki á að tengja snúningshraðalesninguna við "wasted spark" og hafði ekki tíma til að leyfa okkur að gera það sjálfum. Hraðamælirinn í bílinum sýndi 190 km/klst. hraða þó að útprentunin hafi aðeins sýnt 148 km/klst. Þessi 405 hestöfl eru því ekki allur sannleikurinn.
Svona tjúnar maður með Autronic.
http://forum.vwsport.com/pics/data/500/220MVI_0003.AVI

Hestaflakveðja, Nóni
Bloggað klukkan:9:16 PM
þriðjudagur, mars 08, 2005
Jæja alltaf í SAABinum!
Úff hvað ég er búinn að vera óduglegur við að skrifa, bið ég dygga lesendur síðunnar afsökunar á því. Það hefur hins vegar verið yfirlýst stefna mín að vera ekki að skrifa hér mína daglegu þanka eins og sumt fólk gerir, þetta er þó engin afsökun. Hann Þórir keypti sér 9000 CD um daginn og það var sko engin slortýpa, nei það var sko ekkert annað en 2,3 túrbó með öllu og ekki ekinn nema 112 þúsund km. sem er skammarlegt og ekkert annað en vanræksla á góðum bíl að leyfa honum ekki að keyra meira, eins og þeim finnst það skemmtilegt. Þetta er ekki það eina, nei ekki aldeilis því að Birkir lét vin sinn hann Grétar skifta toyotunni sinni upp í þennan fína SAAB 900S ´96 sem er líka með 2,3 og alveg sérdeilis fín kerra. Grétar er líka búinn að skrifa um SAABinn og setja inn myndir af honum á http://www.saab900s.blogspot.com Fengum hjá Davíð (SAAB Racer) 8v túrbóvél sem hann ætlaði ekki að nota og Birkir tók henni fegins hendi vegna þess að einhver vanviti hafði geymt vatn í sílendrunum á vélinni hans og þar með valdið tæringu í þeim sem ekki leit vel út. Gamla vélin var ekki slitin, alls ekki (punktur). Nú man ég ekki hvað ég ætlaði að segja lengur nema hvað að hann Kristinn minn varð 5 ára á sunnudaginn, þetta er alveg ótrúlega fljótt að gerast, hann var bara 3ja ára um daginn og þar áður 2ja og mér finnst svo stutt síðan.
Við komum saman ég Birkir og Þórir og fórum að spá í nafn á SAAB klúbbinn sem við ætlum að stofna ásamt mörgum öðrum, við settum niður á blað hverja við þekktum sem við vissum að ólmir vildu vera í klúbbnum og voru þetta rétt um 40 menn og konur. Þeir sem hafa á þessu brennandi áhuga eru vinsamlegast beðnir að senda línu á icesaab@simnet.is og láta nafn og símanúmer fylgja, þó að ég þekki ykkur eða kannist við þá er ekki þar með sagt að ég hafi símanúmerin ykkar eða netföng, allir eru velkomnir og engin skilyrði sett fyrir meðlimsskap, (allavega ekki ennþá). Þá eru allar tillögur um nöfn vel þegnar en það verður að vera eitthvað vit í þeim og það verður helst að sameina SAAB menn hvort sem er túrbó eða twostroke.
Meira seinna, kv. Nóni
Bloggað klukkan:10:34 PM
|

|