|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
mánudagur, apríl 18, 2005
Jájájájájájájájájájájájájá.............! Er það ekki bara CDinn hans Þóris, ´92 módel og 2,3 túrbó.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:11:01 PM
sunnudagur, apríl 17, 2005
Flottir SAABar!
Það verður nú að setja inn myndir af flottum SÖÖBum af og til, er það ekki? Jú ég er allavega í stuði fyrir svoleiðis og hér koma myndir af CSEinum hans Sigurbjörns sem er árg. 1994 og er með 2.0 l og lágþrýstiforþjöppu. Þessi bíll er með plussi, sérstaklega vel með farinn og er ekki ekinn nema ca. 120.000 km. Sigurbjörn leiðréttir mig væntanlega hér ef þetta er rangt. Njótið.

Set bræðurna hérna, keypti nefnilega (eða var gefið) bróðir fína SAABs sem er JX-113, nefnilega JX-114 sem er alveg eins bíll, bara með annan lit og ekki leður. 
Þá er ekki úr vegi að hafa Svabba bróður með. 
Svo væri nú ekki úr vegi að sýna ykkur draumaplanið, ha.........?? Ein undantekning þó. 
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:12:39 PM
miðvikudagur, apríl 06, 2005
Ekkert sérstakt, og þó....!
Hann Davíð minn er nú kominn með tvær tennur og er ekki eins gaman að láta hann bíta í puttana á sér eins og áður, hann er byrjaður að gera bílahljóð með munninum og setur tunguna út úr sér þegar hann byrjar að keyra.
Ég er orðinn nokkuð viss um að ég verð ekki með í keppni í sumar nema til málamynda, ekkert fjármagn hefur hoppað upp í hendurnar á mér eins ótrúlegt og það kann að hljóma og er þess vegna áætlað að taka frí frá öllu “days before race repairs” kjaftæði og hvíla sig aðeins. Hins vegar ætla ég ekkert að hætta að hugsa um SAABana mína og fjölskylduna, farið verður norður á Akureyri á Bíladagana og mun SAAB klúbburinn fjölbíla þangað með stolti. Gaman verður að stilla SÖÖBunum upp á einhverju planinu og monta sig og dást að öðrum SÖÖBum, vonandi verður Birkir tilbúinn með sinn. Þórir fer væntanlega á Tanngnjósti til að taka þátt í götuspyrnunni og ég annaðhvort á AERO eða fínaSAAB (´89 9000T), Andri fer væntanlega á svarta 900T16 og örugglega Sigurbjörn á CSEinum, ( ég er alveg að fara að setja myndina inn félagi). Kannski fer Grétar á 900S og Davíð sni*** á bilaða 900 bílnum sínum, kannski verður Orri búinn að græja 900 bílinn sinn og Ágúst verður væntanlega á 9-3 bílnum sem hann keypti á ebay, nú eða gamla 900T8.
Það kemur til með að verða fjör í mílunni í sumar því að við vorum að panta tölvu fyrir mann sem er með stóra 8 sílendra vél í bílnum sínum og tvær túrbínur, taraaaaa........ hann verður ógurlegur.
Fór og skoðaði nýja trial hjólið hans Sölva um daginn og þetta er ekkert smá flott græja, ég væri bara alveg til í eina svona græju. Til hamingju Sölvi.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:11:41 PM
|

|