Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

þriðjudagur, maí 31, 2005

Klúbburinn hefur verið stofnaður!


Stofnaður hefur verið SAAB klúbbur og eru þar rétt um 30 meðlimir skráðir. Einhverjir melduðu sig en komust ekki og báðu um að vera skráðir í klúbbinn. 15 bílar mættu með eigendum sínum á laugardag og var það afar hressandi að sjá alla þessa SAABa samankomna. Teknar voru myndir af SÖÖBunum og öllum sem komu með og eru þær á síðunni hans Þóris http://81.15.46.15/gallery/saabklubbur njótið vel. Þegar myndatöku lauk var farið í hópakstur niður í bæ, niður Kringlumýrarbraut og Sæbraut og Lækjargötu, yfir tjörnina og upp á Suðurgötu og upp Hringbraut, Miklubraut og endað í Húsgagnahöllinni þar sem fenginn var kaffisopi og tekið létt spjall. Feyknarlega vel heppnaður fundur og gaman hjá öllum að mér sýndist.
Opnað verður fyrir spjallsíðu á allra næstu dögum þar sem við getum spjallað saman um SAABana og það sem er þeim gott.

Takk fyrir mig, Nóni

Bloggað klukkan:11:15 AM

miðvikudagur, maí 25, 2005

Stofnun SAAB klúbbs!



Við félagarnir eru svo hrifnir af SÖÖBunum okkar og finnst þeir svo æðislegir bílar að viljum gera kunnugt að fyrirhugað er að stofna SAAB klúbb. Þetta er það merkilegt að okkur félögunum finnst að við viljum endilega að heimsbyggðin heyri. Komið verður saman fyrir aftan hús verslunarinnar, vestan við húsið og austan við Kringlumýrarbraut kl. 15:00 á laugardaginn 28.05.05

Allir SAAB eigendur eru velkomnir og einnig þeir sem ekki eiga SAAB en hafa óbilandi áhuga á bílategundinni. Fyrrverandi, núverandi og komandi SAAB eigendur. Ef þú lesandi góður þekkir einhvern sem á SAAB eða þekkir einhvern sem þekkir einhvern sem á SAAB þá verður þú að láta þetta boð berast fljótt og vel. Ekki láta ykkur detta í hug eitt andartak að allir viti bara af þessu, heldur leyfið öllum að heyra.

Gaman væri ef menn tækju upp á einhverju skemmtilegu eins og að taka saman myndir ef til eru af gömlum SÖÖBum hvort sem þeir hafi átt þá eður ei. Allar SAAB sögur og spjall velkomið.

Kv. Nóni


Bloggað klukkan:9:27 PM

föstudagur, maí 13, 2005

Kvartmíluklúbburinn!


Þá er búið að halda fyrstu kvartmílukeppni sumarsins og verður ekki annað sagt en að hún hafi verið heldur döpur þátttakan, spekingar allmargir telja sig hafa svör við keppendafæð þessari og kunna ráð við því. Ekki ætla ég að fara að gáfumannast og telja upp ástæður, ég hef þær heldur ekki á takteinum, en það er greinilegt að þeir gömlu keppendur sem borið hafa uppi keppnir síðastliðinna 30 ára virðast vera orðnir þreyttir á að keppa eða að þeir eru að gefa skít í störf okkar stjórnarmanna. Það hefur ekki verið framkvæmt eins mikið uppi á kvartmílusvæði í áraraðir og er aðstaðan betri en hún hefur nokkurn tíma verið, búið er að jafna um alla hóla og kletta sem stóðu upp úr jörðinni við hlið brautarinnar, steyptur pittur, afgirt keppnissvæði, nýr tímatökubúnaður þar sem menn geta nú séð sinn 60 feta og 1/8 tíma auk viðbragðs. Er það kannski þess vegna?
Það er hins vegar annað sem ég vil vinna í og það er nýliðun Kvartmíluklúbbsins, ég vil ganga til viðræðna við unga menn um að koma upp á braut og skoða það sem við höfum upp á að bjóða, það eru til svo margir spyrnuglaðir ungir menn sem vilja spyrna við allt og alla að það tekur engu tali. Maður keyrir ekki svo Miklubraut eða Sæbraut eða hvaða aðra tvíbreiða götu á höfuðborgarsvæðinu án þess að sjá unga graða snáða stígandi bensíngjöfina niður úr gólfinu á bílunum sínum. En hverning gerum við þetta? Er hægt að ná til þeirra á einfaldan hátt? Eru þeir við tölvuna sína á kvöldin? Svarið er já, þeir eru við tölvuna og vita af brautinni, þetta verður örugglega auðveldara þegar við verðum komnir með félagsheimilið í stand og það verður búið að gera þetta svolítið vistlegt og skreyta aðstöðuna með myndum af Hondum, VW, Subaruum og túrbínum og svoleiðis. Kannski setja upp einhverjar græjur og eitthvað bling bling, svo þegar fleiri ungir menn verða þarna verður það auðveldara en ella. Ég man bara þegar ég og Gunni fórum þarna fyrst upp í klúbb, þá sátum við eins og illa gerðir hlutir og enginn talaði við okkur og við töluðum við engan. Þegar við komum fyrst vorum við spurðir hvort við værum með einhver tæki og við svöruðum að við værum með SAAB og Subaru, þá nennti enginn að tala við okkur meir. Það er misjafnt hvað menn segja í klúbbnum, sumir segja að það sé búið að gera allt til að reyna að fá þetta fólk í klúbbinn en staðreyndin er nú önnur, menn hafa verið rakkaðir niður úti á braut og á netinu og það er klúbbnum til vansa. Nú er ég ekki að segja að endilega hafi verið klúbbmeðlimir að verki en það skiftir ekki máli heldur skiftir það máli að þessir menn sem byggðu jú brautina í gamla daga og þeir sem eiga ameríska bíla telja sig eiga hana skuldlaust. Nú er þetta ekki svona heldur eiga þeir sem borga félagsgjaldið brautina, alveg sama hvort þeir eru að gera það í fyrsta sinn eða tuttugasta.
Það er um að gera að koma og prófa bílana sína áður en breytingar eru framkvæmdar á bílunum , koma svo aftur þegar búið er að setja nýtt púst eða loftsíu til að vita hvort þær hafa skilað árangri. Þegar maður fer svo að spyrna þá fær maður delluna og byrjar að tjúna, það er rosa gaman.
Ef einhver hefur eitthvað um málið að segja þá er þeim velkomið að blaðra um það hér að neðan og reyna að koma með hugmyndir að einhverju sem nota mætti í þessu máli.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:7:58 PM

mánudagur, maí 02, 2005

Fyrsta æfingin!


Æfingin á fimmtudagskvöldið var vel heppnuð að flestu leiti, smá vandræði með tímatökubúnaðinn í fyrstu en svo gekk þetta smurt. SAABarnir voru í meirihluta bíltegunda, alls 3 SAABar að spyrna. Ég var með Aeroinn og Birkir var með brúna fína (´89 9000 turbo) og Baldur var með sinn 9000 turbo ´87, hann var ekkert að spara hann heldur skrúfaði vel upp í APC boxinu sínu og kom bílnum niður um heila sekúndu á hálftíma. Já það er auðvelt að tjúna SAAB, bíllinn sem er sjálfskiftur fór úr háum 15 niður í háar 14 og geri aðrir betur eftir hálftíma breytingar, nú þarf hann bara að bæta við smá bensíni og rífa pústið undan og þá er hann kominn niður í háar 13. Ég fór eina spyrnu við hann í byrjun kvölds á mínum ´89 9000 túrbó og hann er með lítilli mitsu túrbínu en Baldurs bíll er með Garrett T3, ég tók hann rækilega í startinu en hann vann á mig þegar við nálguðumst endalínuna. Ég fór á 15.68 á 84 mílum en hann á 15.91 á 88 mílum og er það mjög gott miðað við kílómetrastöðu bílanna og það að þeir séu óbreyttir með öllu. Svo fór Baldur auðvitað að skrúfa í APCinu. Svo tókum við Birkir spyrnu á Aero og 9000 turbo ´89 og þeir voru alveg hnífjafnir upp í 100 km hraða og svo seig Aeroinn framúr mjög rólega, hann fór á 15.455 á 90 mílum en gamli á 15.9 á 85 mílum og sést á þessu að Birkir hefur ekki beitt honum nóg í startinu því að hann hafði jú farið á 15.68 áður.
Þetta var rosa gaman, við fórum nokkrar ferðir og margir gengu í klúbbinn til að mega spyrna.

Meira seinna, Nóni

Bloggað klukkan:11:02 PM