|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
laugardagur, júní 18, 2005
Eitt orð, SAABFESTIVAL !
Já það verður ekki ofsögum sagt að hann Þórir er snillingur, það verður seint logið upp á hann einhverju öðru. Haldið þið ekki að hann sé búinn að setja inn myndirnar sem hann er búinn að taka í Svíþjóð á festivalinu, 99 sinnum húrra fyrir honum, eða kannski bara 90 sinnum, nei það er betra að hrópa bara 9 sinnum. Flottar myndir hjá þér Þórir, þetta eru smá sárabætur fyrir okkur hina sem höfðum ekki nógu stórar klúlur til að fara, (eða ekki nógu feitan yfirdrátt). Hallast samt frekar að því að þetta sé frekar eins og að nudda salti í sárin á okkur. Allavega hér er þetta:
http://81.15.46.15/gallery/Saabfestival
Eitt enn, hann Gunna Sæm vin minn vantar SAAB, einhvern góðan og ekki mjög dýran, ca. 100.000 kr. Flest kemur til greina en að sjálfsögðu er ekki verra að það sér túrbó vegna þess að Gunni er með blýfót. Kv. Nóni
Bloggað klukkan:12:00 AM
þriðjudagur, júní 14, 2005
Sumar með SAAB! Það verður víst ekki farið norður á þessari helgi, menn eru eitthvað að spá í að fá að sjá hvernig höfuðborgin lítur út á þjóðhátíðardaginn í sól og blíðu. Það er líka dáldið misgáfulegt að keyra yfir hálft landið bara til að finna rigningu. Allavega vonum við bara að þetta verði ekki síðustu bíladagarnir sem haldnir verða þannig að við getum reynt aftur.
Kv. Nóni
Það er ekki tekið út með sældinni að vera SAAB aðdáandi, maður kvelst á dögum eins og þessum. Þórir vinur okkar er þarna í fyrirheitna landinu í góðum fíling að horfa á alla SAABana og ég er bara hér heima og horfi á mína gömlu (sem er nú samt æðislegt). Þórir er á leiðinni á þetta hérna http://www.saabfestival.se sem er fyrir menn eins og okkur bara HEAVEN, það er nokkuð ljóst að maður myndi ekki sjá eftir þeim pening sem það kostaði að koma sér þangað og vera þar vistaddur. Hins vegar yrði heimilisfriðurinn sennilega ekki upp á marga fiska eftir að maður kæmi heim með fangið fullt af gulli og svo birtist pósturinn nokkrum dögum seinna með annað eins eða meira í fanginu. En vel á minnst, hvað er að frétta af Þóri? Það hefur ekkert heyrst í honum, Þórir ef þú ert að lesa þetta þá máttu endilega blaðra og segja okkur frá SÖÖBunum sem þú hefur séð í Svíþjóð, nú eða einhverju öðru skemmtilegu.
Það hringdi maður í mig í morgun alveg í öngum sínum vegna þess að SAABinn hans fór ekki í gang, þetta var gamall ´86 T16 4ra dyra sem hann var nýbúinn að skifta um gírkassa í. Þegar ég kom hélt ég að það þyrfti bara að tíma hann inn en það var nú eitthvað annað, já mótorinn snérist bara alls ekkert heldur tikkaði bara í startaranum. Nóni hugsaði smástund og horfði aðeins á þetta allt saman og mundi þá allt í einu að hann var úr sveit og tók sér hamar í hönd og barði í startarann, viti menn B202L var ekki búin að snúast nema 3 snúninga þegar nú rauk í gang enda var hún búin að bíða í heilt ár eftir að fá að snúast. Það var nú sennilega líka þess vegna sem startarinn mundi ekki lengur hvernig átti að snúa sér í hringi.
Það er verið að ræða einhverja hópkeyrslu norður til Akureyrar eða allavega eitthvað norður á bóginn um næstu helgi og veit ég fyrir víst að það eru Birkir sem ætlar að aka á Tanngnjóst, Gunni Sæm á fína SAAB (9k T ´89) og sennilega við Bryndís á Aero. Ekki væri nú ónýtt að fara norður með bílakerru og koma við á ákveðnum bæ og ná í gullmola sem þar stendur, meiri upplýsingar um það seinna.
Bloggað klukkan:12:42 AM
föstudagur, júní 10, 2005
Varðandi greinina í Mogganum!
Fyrst vil ég þakka Guðjóni bílablaðamanni á Mogganum fyrir að vilja taka viðtal við mig og forvitnast um þetta framtak okkar. Mér finnst hins vegar ekki að neitt niðurlægingarskeið hafi átt sér stað hjá SAAB, ég sagði það ekki við hann Guðjón, ég sagði að mér hefði fundist að þá hefði sett niður þegar General Motors hefði eignast 50% hlut í fyrirtækinu og svo fannst mér það einnig slæmt þegar þeir eignuðust allt fyrirtækið árið 2000. Mér fannst verst að þeir ætli að flytja framleiðslu bílanna til Þýskalands. Þá hef ég enn ekki gert neitt kvartmílutæki úr 900 bíl ennþá.
Takk fyrir, Nóni
Bloggað klukkan:9:13 PM
mánudagur, júní 06, 2005
SAAB spjall!
Já það er satt sem Hvati segir, það gengur eitthvað hægt að koma upp síðu. Þetta er nú samt í vinnslu allt saman, hvernig væri nú bara að byrja að spjalla létt hérna á síðunni? Hvað finnst mönnum til dæmis um þessa síðu hérna http://www.900aero.com ? Að mínu mati er hér ein flottasta SAAB síða sem ég veit um, vinnan sem liggur að baki þessu öllu, bæði pælingar um bílinn og uppsetning á síðunni, myndir af hlutum og annað. Þarna er hægt að sjá hvernig maður moddar APCið sitt sem ég veit að einhverjir hafa gert, en hverjir? Það væri gaman ef menn segðu frá hvað þeir hafa gert til að leyfa SAABinum að keyra hraðar.
Blaðraðu af bestu lyst, Nóni
Bloggað klukkan:11:49 PM
|

|