|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
sunnudagur, júlí 24, 2005
ÆÆÆÆÆÆ.........Kassinn fór ekki rétt saman!
Þetta var frekar vandræðalegt hjá mér, fór á öðru hundraðinu af stað á föstudag og sótti bílinn og trauð honum í skúrinn, sótti svo númerin og tryggingaviðauka, gerði svo og gerði með hjálp Óla og Gunna þangað til bíllinn var tilbúinn og viti menn, klikkaði samsetningin á skiftibúnaðinum í kassanum þannig að hann skifti ekki um gír.
Ætlaði að vera í fríi frá kvartmíluhaldi en fór svo út á braut í sparigallanum og hjálpaði til við að láta þetta gerast og það lukkaðist nokkur veginn.
Nóni, alltaf hress.
Bloggað klukkan:6:20 PM
föstudagur, júlí 22, 2005
RaceSAAB að lifna við!
Já fyrir þá sem hafa beðið í óþreyju eftir að sjá RaceSAABinn keyra styttist nú heldur betur í að glaðni yfir þeim, hann er nefnilega kominn inn í skúr og upp á búkka. Stefnan er tekin á morgundaginn, það þýðir ekkert annað en að taka þetta með trukki þegar það á að gerast.
Ekki verður af SAAB sýningunni sem IH ætlaði að halda í næstu viku heldur er henni frestað þangað til eftir verslunarmannahelgi. Við vonum bara það besta og að þeir renni ekki á rassgatið með þetta.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:12:26 PM
þriðjudagur, júlí 12, 2005
Góðar fréttir fyrir SAAB fíkla
Já það er satt, það eru góðar fréttir úr herbúðum SAAB innflytjenda á Íslandi. Menn ætla sér að bjóða þessa sænsku eðalvagna á viðráðanlegu verði í framtíðinni, þetta hefur svosem verið eitthvað sem hefur hvissast út en nú er það staðfest. 9 3 linear með 1,8 og engu túrbó verður rétt yfir 2,6 mills og 2,0 túrbó verður rétt yfir 3 mills, ódýrasti 9 5 verður á rúmar 3,1 og eru það að mínu mati rosa fín kaup, ég er samt varla að tíma AEROnum uppí. Fór á smá fund með sölustjóra SAAB á Íslandi og hann er greinilega mjög ákveðinn í að gera þessa bíla algenga á götum landsins aftur, hann var líka mjög hrifinn af okkar framtaki að stofna SAAB klúbb og vildi gjarnan eiga við okkur samstarf. Það samstarf byrjar með því að við fjölmennum og komum með flotta SAABa á sýningu sem verður eftir 2 vikur, mér var falið að tala við menn sem eiga flotta gamla fá þá til að koma með þá. SAABinum verður þá formlega launchað með pompi og pragt, ekkert verður til sparað að þeirra sögn og er það vel. Þetta allt saman gleður að sjálfsögðu mitt stóra SAAB hjarta alveg ósegjanlega mikið og er ég alveg í 7unda himni yfir þessu öllu saman og hlakka rosa mikið til. Svo verðum við auðvitað að kíkja á opnun nýja salarins hjá IH á föstudaginn, fór með Hafliða þarna inn og hann er orðinn hreinlega geðveikur þessi salur.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:11:31 PM
mánudagur, júlí 04, 2005
Sumarfrí
Fátt jafnast á við gott sumarfrí, við fjölskyldan erum nú í fríi og njótum hvers dags að fullu, fórum á ættarmót um daginn með tjaldvagn um daginn á þeim brúna austur fyrir fjall og fannst honum alveg sérlega skemmtilegt að hafa eitthvað að draga. Upp á Hellisheiðina og svo kambana til baka fannst honum bara skemmtilegt að hafa fullt trukk inn á sig. Lánaði mömmu Aeroinn austur á Flúðir í bústað því að hún þurfti að taka fullt af fólki með sér og búnaði, gömlu fannst ekkert leiðinlegt að þeysa austur á þeim svarta. Vorum svo í bústaðnum hjá mömmu í síðustu viku og höfðum það gott. Á fimmtudag komum við í bæinn og fórum á Duran Duran tónleika sem voru auðvitað tær snilld að mínu mati og að ég held flestra annara sem þar voru. Davíð er lasinn, búinn að vera með hita síðan á laugardag, hann er nú að lagast og orðinn aðeins hressari. Hann byrjaði að skríða þegar við vorum í sumarbústaðnum og er alveg að verða 8 mánaða.
Þórir kominn af festivalinu í Svíþjóð hlaðinn ýmiskonar gotteríi í farteskinu allt frá pakkningum upp í túrbínur, afturhjólalegur handa mér :-) Gaman að sjá að hann hefur lagt mikið á sig til að burðast með allt gullið í lestina, sennilega hefur hann verið með hátt í eina og hálfa þyngd sína á bakinu.
Í dag þriðjudag fæ ég stuðara með spoiler framan á þann hvíta stuðarinn sem var á honum var eitt sinn sagaður í sundur af einhverjum vanvitanum, ekki var aldeilis ókeypis að fá hann sendan til landsins úfffff........yfirstaðið. Þá er nú bara að fara að huga að því sem hefði mátt vera búið að gera fyrir löngu síðan, skiftingunni og legunni og dekkjunum og og og og.........nei nei, það er ekkert svo mikið sem ég ætla að gera, bara gera hann ökuhæfan. Svo er það eiginlega draumurinn að setja í hann beinskiftingu og DI og hafa hann svona 250 hö og nota hann á sumrin.
Endilega blaðrið þið eitthvað hér að neðan ef þið hafið eitthvað að segja.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:10:33 PM
|

|