|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
miðvikudagur, ágúst 31, 2005
Eins og ákveðið var á síðasta fundi var skal hittast fyrsta sunnudag hvers mánaðar og mun það vera sá næsti 4. september. Vonandi verður betra veður en síðast þegar við komum saman, ekki var þurr þráður á mönnum sem gægst höfðu ofan í húdd næsta manns. Þegar allir voru komnir og búnir að fá nóg af þessari rigningu var farið í skúrinn til Birkis og dáðst að flottheitunum. Það mætti bara finna betri stað fyrir hittinginn heldur en Húsgagnahöllina, það var dáldið kráded þarna síðast þannig að kannski væri bara betra að koma saman niðri í bæ? Tillögur vel þegnar. Ekkert smá pirraður núna vegna þess að mennirnir í Ingvari Helgasyni ætla ekki að gera neitt meira með SAABinn, bara selja, ekkert happening. Það fer í taugarnar á mér þegar menn koma til mín og segja gera gera gera, og svo gerist ekkert. Svo sem ekkert nýtt að þeir sinni þessu ekki, það var hins vegar búin að byggjast upp spenna og tilhlökkun hjá SAAB mönnum eins og mér og fleirum. Gleðilegt er hins vegar að segja frá því að hann Þórir vinur (linkur hér til vinstri) minn er búinn að pósta link á heilmikið safn af SAAB videoum, sennilega stærsta safn í heimi því þar eru heil 23 Gb af SAAB tengdu efni, www.saabvideo.com . Það gekk nýr maður í klúbbinn um daginn á þessu líka fína 96 SAAB ´78 módel. Annað hvort er þessi bíll nýuppgerður eða þá að hann hefur aldrei verið hreyfður. Ég hef alltaf ætlað að setja inn félagatalið í klúbbnum okkar og geri ég það nú og hér. Menn geta þá komið til mín leiðréttingum ef með þarf.
Arnþór Gíslason Andri Gunnarsson 900 T16 ´88 Anton Eggertsson 900 T8 ´88 Axel Viðar Hilmarsson 9 3 ss ARC ´04 Ágúst Agnarsson 900 T8 ´88 Baldur Gíslason 9000 T ´88 Birkir Friðfinnsson 900 T8 ´83 (ameríkutýpa) Bjarki Þór Clausen 9000 CD T 2,3 ´94, 9000 CS ´92 Bryndís Jónsdóttir 9 5 Aero ´01 (ameríkutýpa) , 9000 T ´89 Brynjar 9000 T ´91 Börkur Bóasson milli SAABA Davíð Stefánsson 900 T16 ´86 og T8 ´87 ( misgóðir ) Doddi 900 T16 ´86 (til sölu) Einar Hilmarsson 900 GL ´82 E. Orri Sverrisson 900S ´96 Grétar Dór Sigurðsson 900S ´96 Guðjón Jónsson 900i ´88 ofl. Guðrún Þorvaldsdóttir Vatni 900 ´90 Hafliði Jónsson sölumaður Halldór Guðmundsson 900 T8 ´83 Hermann Ólafsson 99 ´82 G 342 Hrafn Sveinbjarnarson Ingimundur Einarsson 900S ´94 Jens Pétur Clausen 90 ´85 Jón Gunnar Kristinsson ýmsir SAABar (Nóni) Jón Einar Sverrisson 900i ´90 Jón Davíð Þorsteinsson 9 5 ´98, 9000 T ´91 Katrín Pálsdóttir 900 T16 SPG (ameríkutýpa) Kjartan Páll Þórarinsson 900i ´90 Kristinn Jónsson nokkrir plast saabar Lars Persson 900 turbo ´90 Magnús K. Guðmundsson 96 ´65 María Sigmundsdóttir Ólafur Þór Arason SAAB mótorhjól Óli Hilmar Jónsson ´90 ´87 Óskar Lárusson 90 ´87 Pétur Eggertsson Háaleitisbraut 155 (90 ´87) Sighvatur Cassata 900 T16 ´87 Sigurður Jóhannsson 9 5 wagon ´01 Sigurður F. Stefánsson 96 ´63 Svavar Knútur Kristinsson 9000i ´88 Sindri Snær 96 ´78 Sigurbjörn Helgason 9000 CSE´94 2.0 lpt. sjálfskiftur grænn og glæsilegur. Sæmundur Erik Pálsson 900 T16 Aero ´87 Trausti 900 i ´90 Valgeir Þorvaldsson Vilmundur Torfi Kristinsson Þorvaldur Stefánsson Sonett ´71 Þór Sveinsson 900 T8 ´86 Þórður Hansson 9000 T ´88 Þórir Haraldsson 9-5 ca. 2004 Þórir Már Jónsson 9000 CD 2,3 T ´92, 900 GLE T16 ´83, 99 ´79 Ævar Sigurdórsson 96 ´61
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:5:12 PM
föstudagur, ágúst 19, 2005
Gleymdi smá fréttum af kraftaSAABinum og fleiru!
Fórum nefnilega með hann út á kvartmílubraut á laugardaginn fyrir viku og reyndum við 11 sekúndur en allt kom fyrir ekki, það var heldur ekki til að hjálpa að það var ekki búið að hreyfa hann síðan í fyrra og hann lá útí bremsunum að aftan og var eitthvað hálf stirður. Fórum samt á 12,6 sem er nú alveg ljómandi tími en ekki svo góður hraði eða 112 mílur. Þið kannist eflaust við þetta, vera að vinna geðveika erfiðisvinnu langan vinnudag og fara svo að sofa og þegar maður vaknar má maður ekki fara strax í að hlaupa og djöflast í puði, gott er að minnsta kosti að fá sér morgunmat og kaffi og byrja svo daginn rólega.
Svo var það með SAAB sýninguna, ég gleymdi gjörsamlega að setja hér inn að það yrði frestun á þessu en það kom ekki að sök því enginn missti af neinu. Nýjustu fréttir eru hins vegar þær að það eigi að blása til fagnaðar seint í september þegar þeir fá fleiri nýja bíla þannig að við bíðum bara spenntir og spenntar, haa......er það ekki?
Annað er það að ég er búinn að týna símanum mínum, þetta leiðinlega atvik átti sér stað þegar ég og Snorri vinur minn fórum í bæinn á laugardagskveldið og dönsuðum á 22 fram undir morgun. Það er hins vegar hægt að ná í mig hér á síðunni með því að blaðra eða senda e-mail, nú eða bara fara í símaskrána og finna Nóna, nei það er víst ekki svo gott því að ég heiti víst Jón Gunnar Kristinsson eins og margir vita en þó ekki allir því að það hefur nokkuð verið kvartað yfir þessu. Til að spara þeim sporin sem eru að reyna að ná í mig þá er síminn 557 7696. Ég er ekki viss um hvaða síma ég á að kaupa þannig að ég verð ekki í sambandi alveg strax.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:11:18 PM
þriðjudagur, ágúst 16, 2005
Skemmtilegur fundur á sunnudaginn!
Þakka öllum sem mættu, þarna voru 9000 bílar í algjörum meirihluta og allir túrbó, aðeins 900 bílarnir þeirra Grétars og Kjartans voru ekki túrbó. Þarna komu Sigurbjörn á sínum CSE túrbó ´94 Þórir á CDinum sem er 2,3 túrbó Arnþór á ´88 9000 túrbó. Brynjar á sínum ´91 9000 túrbó Grétar á ´96 900 s Kjartan á ´89 900i og ég á mínum RaceSAAB, einnig mættu Kiddarnir og að sjálfsögðu Birkir. Eftir að hafa farið í sturtu á planinu hjá húsgagnahöllinni var ekið í skúrinn hjá Birki og dáðst að vinnunni sem hann er búinn að leggja í sinn SAAB sem er ´83 900 túrbó, myndir hér: http://81.15.46.15/gallery/album01 Birkir er búinn að vinna þennan bíl frá grunni, hann hefur strípað hann gjörsamlega og klippt allt ryð úr og soðið í nýtt járn. Bíllinn var svo sprautaður á verkstæði og er hinn flottasti SAAB á þessu skeri, leyfi ég mér að fullyrða.
Kveðja, Nóni
Bloggað klukkan:8:46 PM
föstudagur, ágúst 12, 2005
SAMKOMA Á SUNNUDAGINN KL. 14:00
Við ætlum að hittast á sunnudaginn kl. 14:00 hjá Húsgagnahöllinni, gaman væri ef sem flestir létu sjá sig og bílana sína. Ég ætla allavega að mæta með eitthvað af mínum.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:7:25 PM
|

|