Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

fimmtudagur, september 29, 2005

Fyrsti sunnudagur í október.

Senn líður að SAABfundi, þ.e. á sunnudaginn 2. október, í þetta skiftið ætlum við að hittast í bílastæðahúsi fyrir aftan Borgartún 21 kl. 16:00 vegna þess að það er spáð rigningu. Þeir sem mættu þarsíðast upp að Húsgagnahöll muna eflaust eftir þeim ósköpum sem við þurftum að þola þar.
Annars er það að frétta að nú á ég tvo 8 ventla túrbó 900 bíla, allt í einu komu þeir upp í hendurnar á mér þannig að ef einhvern vantar svona 900 með bilaðan gírkassa til að gera við þá eru þeir hér heima hjá mér, bara koma og ná í þá. Bryndís er ekkert sérlega upprifin yfir þessu en tekur þessu þó með mestu rólegheitum, er að velta því fyrir mér hvort það sé lognið á undan storminum :-)

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:12:32 AM

föstudagur, september 23, 2005

Ekkert smá gaman að eiga SAAB!

Já það er geggjað að eiga SAAB, mér finnst bara svo rosalega gaman að keyra á mínum brúna 9000 túrbó ´89 með sem ég held mikið upp á. Þegar maður finnur túrbínuna koma inn og hreinlega troða loftinu inn í sýlendrana og vélin skyndilega breytist í 4.0 lítra sleggju og togar allt í heiminum, á svona sirka 2000 snúningum fær maður fullt trukk og hann bara togar sig upp hvaða brekku sem er í efsta gír.
Ég var að kíkja á eitthvað myndband áðan með þeim stórskemmtilega söngvara Robbie Williams og hann er auðvitað snillingur en nú tók gjörsamlega steininn úr, í þessu myndbandi sem ég var að horfa á á danska ríkissjónvarpinu keyrir Robbie á gömlum SAAB 95 station og það sem meira var að mér sýndist þetta vera twostrókari, bara geggjað flott hjá honum.

9 5 er að fá facelift árið 2006, sá mynd af honum í dag og það er nú bara nokkuð flottur framendinn enda kemur hann frá 9 x bílnum sem er concept bíll hjá SAAB og hefur ekki farið í framleiðslu, afturendinn hins vegar er algert slys að mínu mati. Þetta á þó aðeins við um sedan bílinn því að þeim virðist hafa tekist betur til með combi útgáfuna. Á þessum vef er hægt að kíkja á nokkrar myndir af svona nýjungum, http://www.netcarshow.com/saab/ Einnig er hægt að sjá þetta facelift á öðrum heimasíðum SAAB svosem .dk eða .com eða .de eða bara hvað sem er nema .is því ekkert hefur gerst þar síðan árið 2003, leiðinlegt.

Annars er allt dásamlegt, Ágúst er búinn að fá sér 9000 cd túrbó árgerð ´89 og er það vel.


Kveð að sinni, Nóni


Bloggað klukkan:11:22 PM

miðvikudagur, september 21, 2005

Rosa gaman í SAAB klúbbnum.

Svakalega er gaman að sjá að það er svona mikill áhugi á SAAB spjalli hér á síðunni, kannski maður láti verða af því á næstunni að starta spjallborði. Hér eru myndir af síðustu samkomu fyrir þá sem ekki sáu þær á blaðrinu, http://81.15.46.15/gallery/samkoma3
En það er mikið að gerast hjá okkur núna, Kvartmíluklúbburinn er að fara að halda sýningu núna eftir mánuð eða svo og þá verður nú aldeilis gaman að hafa bílinn hans Birkis á sýningunni nýsprautaðan......harrrharrrrr. Nú auðvitað hjólið hans Óla líka og kannski einhverjar túrbínur og svona bara til gamans. Allar hugmyndir og ábendingar um bíla á sýninguna eru vel þegnar.
Ég veit um bíl sem þarf að komast í hendur á snillingi, bíll sem þarf smávægilegar ryðbætur í sílsum og þá er hann geggjaður ´86 módel 9000 túrbó beinskiptur, þessi bíll lítur mjög vel út að öðru leiti en því að sílsarnir eru slæmir, aðeins ekinn 17x.xxx km. Þeir sem vilja forvitnast um þetta eitthvað frekar mega vinsamlegast hringja í mig í síma 848 8368. Brynjar má hringja í mig, því að ég týndi númerinu hans.
Ég er strax farinn að hlakka til næsta SAABfundar sem við ætlum að halda fyrsta sunnudag í október eins og ákveðið var um daginn. Sennilega verður orðið eitthvað kalt en örugglega ekkert sem SAABarnir ráða ekki við. Vonandi koma margir.

Hvernig líst mönnum á hringakstursbraut? Ég er að tala um kappakstursbraut með beygjum. Vel er það ekki? Datt mér ekki í hug, þetta er nú eitthvað meira fyrir SAABinn heldur en einhver helvítis kvartmíla. Mig langar allavega rosalega að koma mér upp skemmtilegum brautarSAAB, það væri geðveikt. Við verðum að fara að smíða svona braut hérna, ha........?????


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:10:49 PM

þriðjudagur, september 13, 2005

Davíð orðinn 10 mánaða


Já það var aldeilis flottur fundur hjá okkur á sunnudaginn 4. september þegar við komum saman á 10 SÖÖBum og dáðumst að þeim, túrbóarnir voru nú í meirihluta en við fengum þó ansi flotta 96u sem sló rækilega í gegn hjá samkomugestum. Hann Sindri Snær var nýbúinn að sprauta þetta glæsilega ´78 módel grænt og ekki er hægt að segja annað en að þeir feðgar hafi vandað virkilega til verksins.
Nú eru 12 búnir að skrá sig á póstlistann sem við bjuggum til á yahoo og hvet ég menn hér með til að skrá sig upp til að hægt sé að fara að senda fjölpósta.

Ég vil nú nota hér tækifærið og óska honum Þór til hamingju með nýja SAABinn, hann fékk sér 900 T8 ´87 sem er svona líka flottur.

Davíð sonur okkar Bryndísar er 10 mánaða í dag og er byrjaður að sleppa sér aðeins frá borðinu þannig að hann er ekkert að slóra við þetta.


Takk fyrir að kíkja við á síðunni, Nóni

Bloggað klukkan:11:29 PM

laugardagur, september 03, 2005

Fundur á sunnudag kl. 14:00


Við í stjórninni höfum ákveðið að hittast á sama stað og klúbburinn var stofnaður, þ.e.a.s. fyrir aftan hús verslunarinnar kl. 14:00 á sunnudaginn 4. sept.


Kv. Stjórnin

Bloggað klukkan:4:54 PM