Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

laugardagur, október 22, 2005

Sjáið þetta.............

Þetta er bara sjúklegt, www.saabturbo.blogspot.com þetta er bara sjúklega flott.


Annars vil ég benda fólki á bílasýningu Kvartmíluklúbbsins að Tangarhöfða í gamla Á.G. húsinu, þetta er fjáröflun klúbbsins og þar gefur að líta helstu kagga landsins og auðvitað þennan líka eðalfína SAAB sem er að mínu mati með flottari bílum þarna.


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:10:08 PM

þriðjudagur, október 11, 2005

Það er allavega einn maður hamingjusamur í dag, og það er hann Birkir http://www.saabturbo.blogspot.com/. SAABinn hans fór nefnilega í gang í gærkvöldi. Ekki var nú mikið að þessari kerru, einungis þurfti að saga aðeins í kveikjuna til að tölvan fengi aðeins eitt merki í stað fjögurra. Ehemm.....það má kannski skrifa þetta á mig, ég gleymdi eitthvað að segja þeim frá þessu litla atriði. Allavega er þetta þriðji SAABinn og fjórði bíllinn sem fer í gang með Autronic tölvu hér heima á skerinu, Birkir er líka með rosa flotta Garrett T3 súper 60 túrbínu sem hann getur létt sett í 300 hö. Þetta er virkilega töff pródjekt vegna þess að Birkir tók þá ákvörðun að halda sig við 8 ventla heddið sem er kúl því það eru ekki margir sem hafa gert það, þ.e.a.s. setja rafeindainnspýtingu í á þannig vél.
Bíllinn er líka allur hinn flottasti og skora ég á alla að skoða myndasíðuna hans Þóris http://81.15.46.15/gallery/ þar sem Birkir er með ágætis ágrip af uppgerðinni. Hann verður aldeilis glæsilegur á bílasýningunni hjá Kvartmíluklúbbnum.

Skrapp norður í Siglufjörð á fimmtudaginn, fór á mínum góða 9000 túrbó ´89 og var það mjög skemmtilegt, SAABinn keyrði mjög vel enda ekki við öðru að búast af slíkum eðalbíl. Virkilega gott að keyra hann á svona langkeyrslum, auðvitað í bænum líka.
Eitt er það sem ég ekki skil öðru fremur og það eru Héðinsfjarðargöng, Siglfirðingar eru búnir að fá þessi göng í gegn um kerfið og það verður víst ekki aftur snúið segja menn. Þrátt fyrir röksemdir manna um að aðrir kostir kunni að vera betri í stöðunni eins og til dæmis göng yfir í Fljót og síðan upphækkaður vegur um Lágheiði hafa menn skellt við skollaeyrum og segja annaðhvort að verið sé að veitast að landsbyggðinni eða þá að búið sé að ákveða þetta og ekki verði aftur snúið. Þetta er auðvitað fáránlegt að það sé ekki hægt að fá fólk til að sjá þetta í víðara samhengi, til dæmis það að göng yfir í Fljót myndu koma sér vel fyrir skagfirðinga líka, einnig myndu Siglfirðingar fá meiri verslun frá Fljótum og austanverðum Skagafirði.
Vegurinn norður í Siglufjörð frá Fljótum er nú alveg sér kafli í allri þessari vitleysu, þar er mikið jarðsig og mikill snjór á vetrum, þar að auki er þessi vegakafli stórhættulegur. Þessi vegakafli er mjög dýr í viðhaldi og rekstri og verður að sjálfsögðu viðhaldið eftir opnun Héðinsfjarðarganga, þetta er nú þeirra leið til Reykjavíkur.

Þurfti aðeins að blása þessu út þó að ég hafi nú haft þá stefnu að halda pólitík utan við þetta blogg mitt, tel þetta nú varla heldur pólitík heldur frekar heilbrigða skynsemi.


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:11:10 PM

Ekkert hægt að blogga heima!!!

Þoli ekki þetta vesen á tölvunni minni, aldrei hægt að treysta á hana. Þetta er eins og augljóst er, skrifað í vinnunni.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:2:53 PM

sunnudagur, október 02, 2005


Flottur fundur í dag!

Flottir bílar og skemmtilegir menn sem komu saman í dag, hann Lars kom með sinn flotta 900 T16 árg. ´90 sem er svartur og svakalega vel farinn þó að hann sé keyrður 195.000 km. Bíllinn er nánast eins og nýr. Þarna kom líka skáldið góða á sínum fína CD sem er nánast óekinn og á mikið eftir. Hvati mætti með rauða ameríkutýpuna og bakarinn með sinn gamla 900i, nú þá mætti ritari klúbbsins en gleymdi víst að hafa með sér bílinn svo að hann kom bara með sig sjálfan. Ekki má gleyma Þóri og Birki sem komu á CDinum hans Þóris, Þór og vinur hans komu á ´87 túrbó og Anton á sínum 8v túrbó. Síðast en ekki síst mætti svo ég sjálfur á Aeronum með alla familyuna.


Þannig var það félagar, það kom fram skemmtilegt atriði á fundinum, einn félaganna taldi sig hafa orðið fyrir SAAB fordómum. Hann var sem sagt fórnarlamb SAAB fordóma á Íslandi, einhver sem hann þekkti spurði hvort hann væri að fara á stuðningsfund, hvort þetta væri eitthvað 12 spora kerfi. Þá varð einhverjum á orði að þetta væri nú sennilega meira svona 9 spora kerfi. SAAB húmor, gott mál.

Takk kærlega fyrir að koma félagar, þetta var hressandi.

Kveðja, Nóni


Bloggað klukkan:11:37 PM

Samkoma í dag kl. 16:00

Já félagar, ég minni fyrst á samkomuna í Borgartúrni 21 kl. 16:00

Nú vantar mig gírkassa í 99 eða 900, þarf að fixa eitthvað af þessum 3 SÖÖBum sem ég fékk í síðustu viku. Væri nú heldur ekkert verra ef einhver sem á kassa vill koma og taka einn af þeim í fóstur og fixa sjálfur.
Rakst á svaka flott á foruminu á saabcarsonline.com, þar var einn sem fann á ebay í sumar svaka flottan hlöðufund, hér eru item númerin, 4562979428 og 4562981682 peistið bara númerin inn í leit á ebay og þá kemur þetta upp. Þetta eru auðvitað búin uppboð og bílarnir voru ekki til sölu þarna en það var bara verið að benda á þetta og auglýsa.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:1:45 PM