|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
sunnudagur, nóvember 27, 2005
Bara minna á blaðrið!
Ekki vantar fjörið hér á þessari síðu, :-) mig langaði bara til að minna menn á að það er ekkert mál að segja sína skoðun eða spyrja gáfulegra eða bjánalegra spurninga. Ekkert er of ómerkilegt ef það er eitthvað um SAAB. Ég set þetta fram vegna þess að það kom upp eitthvað á L2C að maður var að leita að vél í SAABinn sinn og auðvitað þurftu einhverjir Imprezu eigendur að reyna að drulla yfir hann. Alveg er það merkilegt að menn þurfi að drulla yfir aðra, geti ekki bara verið ánægðir með sína bíla og látið aðra í friði? Þetta er sennilega eitthvað sem menn eru í vandræðum með hjá sér sjálfum og þurfa að láta einhvern óbjóð eða leiðindi ganga yfir aðra. Kannski er það málið að einhver getur ekki skift um vél eða kassa eða yfir höfuð eitthvað í bílnum hjá sér og þegar einhver ætlar að gera það þá verða menn sjúkir af öfund.
Annars er von á nokkrum nýjum SÖÖBum á næstunni upp í IH þannig að það er um að gera að vera á vaktinni hvort þeir hafi fengið 9 3 sport kombi. Ekki væri ónýtt að kíkja á einn svoleiðis. Sennilega get ég nú samt ekki látið verða af því að kaupa mér einn ennþá og verð meira að segja sennilega að selja Aeroinn vegna annarra fjárfestinga, ehemm..... meira um það seinna.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:11:26 PM
fimmtudagur, nóvember 10, 2005
Skemmtilegur fundur, takk fyrir mig!
Já það var nú aldeilis gaman að kíkja á alla SAABana samankomna á sunnudaginn var, ekki skemmdi nú að vera á einum nýjum sjálfur. Ég var svo heppinn að mér áskotnaðist einn SAAB 90 ´85 um helgina síðustu sem er svona líka ljómandi fínn, hvað annað? Myndir af samkomunni eru komnar inn hjá Þóri, http://82.221.56.31/gallery/album05
Annars verður hann Davíð minn eins árs á sunnudaginn og verður þá mikið um dýrðir og margir gestir. Bryndís er búin að vera algjör hetja í vikunni, búin að vera að baka og mála herbergið hans Davíðs og ég veit ekki hvað, jú vera í vinnunni líka. Algjör þönderskvísa.
Meira seinna, Nóni
Bloggað klukkan:10:58 PM
miðvikudagur, nóvember 02, 2005
Samkoma á sunnudag 6. nóv. kl. 16:00 í Borgartúni 21, bílastæðahús.
Það verður mikið um dýrðir hjá okkur þegar Birkir kemur akandi á nýsprautuðum 900 túrbó ´83 en eins og margir vita er Birkir ekki búinn að sitja auðum höndum á síðasta eina og hálfa ári heldur hefur hann notað tímann vel. Þetta geta allir séð á sunnudaginn kl. 16 í bílastæðahúsinu aftan við Höfðaborg (Borgartún 21). Annars er það að frétta að hann Óli vinur minn er búinn að kaupa sér SAAB, já þetta hafðist loks á endanum hjá mér að koma honum í réttan farveg í bílamálum. Hann komst yfir þennan líka fína 9000 túrbó frá ´86 sem hann Hannes Wöhler átti, smá ryðskemmdir eru í sílsunum á honum en ekkert sem talandi er um fyrir menn sem lækka toppa og smíða bíla og mótorhjól. Frábær bíll sem er nánast eins og nýr að keyra, til hamingju Óli.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:11:54 PM
|

|