|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
föstudagur, desember 30, 2005
Keyrum saman á Gamlársdag!
Jæja félagar, þá er enn eitt SAABárið liðið og ekki úr vegi að líta fram á veginn og keyra SAABinn sinn um á gamlársdag til að kveðja árið. Þess vegna ætlum við að keyra frá húsi verslunarinnar, (við hlið moggans) um eittleytið á gamlársdag.
Þegar að búið er að tala svona mikið um kveðskap er ekki úr vegi að birta SAABorðin og SAABvorið sem ég datt einu sinni um á vef Menntaskólans á Akureyri um árið.
SAAB boðorðin 9.9 SAAB er bíll þinn og þú skalt eigi aðra bíla hafa. Eigi skal leggja nafn hins fullkomna bíls við hégóma Heiðra skaltu SAAB þinn og þrífa Þú skalt ekki SAAB skemma Þú skalt ekki girnast SAAB náunga þíns.(of mikið) Þú skalt ekki SAAB þinn selja(nema að þú kaupir annann í staðinn). Þú skalt ekki girnast sæti, innréttingu né topplúgu í SAAB náunga þíns. Eigi skaltu hlífa SAAB við fjöllum. Eigi skaltu SAAB þinn festa
SAAB vor, þú sem ert á bílastæðinu Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á vegi sem í ófæru Gef oss í dag vorn daglega túr. Fyrirgef oss þínar rispur, svo sem vér og lögum vorar rispur. Og eigi leið þú oss í meiðsli, heldur haltu þig á vegi. Því að þinn er vegurinn, fjallvegurinn og ófæran að endamörkum, Brumm brumm
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:8:55 PM
sunnudagur, desember 25, 2005
Gleðileg jól elskurnar mínar!
Já það er ekki laust við að maður minnist gömlu tímanna þegar maður var ungur og 24. des. snerist um að opna pakka. Minn ástkæri 5 ára sonur hefur farið á kostum í dag og þreyttist ekki á að spyrja um hvenær mætti setja pakkana undir tréð, þegar því var lokið var farið í jólabaðið og þá pakkaði í sleðanum inn í pappír og allt fór vel. Það þarf ekki að segja það tvisvar að borðhaldið gekk fljótt fyrir sig og þessi dýrlega lambasteik rann niður á mettíma og eftirrétturinn var látinn bíða fram yfir pakkana, minn maður var sérlega ánægður með þá sameiginlegu ákvörðun. Það tók heldur ekki langan tíma að afgreiða pakkana þrátt fyrir ótrúlegan fjölda þeirra undir trénu í þetta skifti. Sá yngri var hins vegar rólegri yfir þessu öllu saman enda ekki nema rúmlega 1 árs, hann var hæstánægður með að sá eldri opnaði þetta allt enda er hann með áralanga þjálfun að baki.
Ég er ekki viss um að það sé stemmari fyrir SAABsamkomu fyrsta sunnudag janúarmánaðar vegna þess að hann ber upp á nýársdag, hins vegar væri ekki úr vegi að keyra saman á gamlársdag eins og Þórir er búinn að stinga upp á. Hann mun kannski taka frekar undir það hér.
Jólakveðja, Nóni
Bloggað klukkan:12:59 AM
miðvikudagur, desember 07, 2005
AEROinn er til sölu!
Já félagar, nú er komið að því að ég verð víst að láta þennan eðalbíl, maður getur víst ekki gert allt í einu þannig að.......veit ekki hvað ég þarf að segja ykkur um hann en get svosem sagt eitthvað, 17" sumar og 16" vetrar, ekinn 61.000 mílur. Harman/Kardon 240 watta sound system og fleira. Til dæmis er AERO týpan með fjöðrun sem matsar kraftinn og bremsur sem eru talsvert stærri en í hinum 9-5 bílunum. Geggjuð lúxustýpa með gott spark. Verð er 2.300.000-kr. Fer vel við 2,3 lítra vél sem er 230 hestöfl en er umsemjanlegt eins og annað og ég er opinn fyrir uppítöku (annaðhvort annan SAAB eða eitthvað sem hægt er að losna við fljótt og vel). Myndir af yndinu eru inni hjá honum Þóri http://82.221.56.31/gallery/
Takk fyrir mig, Nóni icesaab@simnet.is og 5577696
Bloggað klukkan:10:48 PM
laugardagur, desember 03, 2005
SAABkoma á morgun, sunnudag 04.12.05 kl. 14:00
Já félagar, þá er komið að því sem eflaust margir hafa beðið eftir með óþreyju, SAABkoman mánaðarlega verður haldin á sama stað og síðast þ.e. Borgartún 21 (Höfðaborg) bílastæðið fyrir aftan kl. 14:00. Við viljum vera svona snemma til að sjá hvorn annan og SAABana. Þarna er hægt að vera uppi ef það er gott veður en niðri ef veður er vott. Ef fer sem horfir verður farið í hópakstur og skoðaður gamall eðalvagn af gerðinni 96 árg. ´72 og þarf að fá nýjan eiganda.
Nú er úti veður vott verður allt að klessu, SAABnum finnst ei nema gott að keyra um í þessu.
Sjáumst hressir á morgun,
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:4:46 PM
|

|