Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

laugardagur, janúar 21, 2006

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Til hamingju með afmælið Svabbi minn (30), pabbi (53) og amma (74), Kalli (6). Það er alltaf gaman á þessum degi því að þá minnist maður þess að margt ótrúlega skemmtilegt fólk fæddist. Mikið að gerast í dag, smá samvera heima hjá mömmu á eftir og síðan afmæli hjá Kalla, þar á eftir er þorramatur heima hjá tengdó og svo tónleikar með tilHraun á Rósenberg í kvöld.

Þetta var nú aldeilis gott ár, SAAB klúbburinn stofnaður og ýmislegt brallað. Í byrjun árs eignaðist ég 9 5 Aero sem ég flutti sjálfur inn frá Bandaríkjunum og hefur hann reynst okkur svakalega vel, ekkert bilað og verið hinn besti. Eignaðist nokkra aðra SAABa svosem 90 sem ég lét skoða og seldi svo, (grrrrr.....maðurinn eyðilagði í henni gírkassan og klessti). Svo eignaðist ég annan 90 sem er hinn besti og hef ég ekkert flikkað upp á hann enda þurfti ekkert að gera, hann var skoðaður fram í mars og hálfur af bensíni, (gat ekki sagt nei). Fékk líka 900 túrbó ´83 sem þarf aðeins að hressa við, 9000 túrbó ´89 sem er bróðir fína SAABs (númerið er JX-114 á móti JX-113 á fína, gat ekki sleppt því). Held að ég hafi ekki fengið fleiri, er ég kannski að gleyma einhverjum????? Keyrði nokkrar bunur á RaceSAABinum, það var rosa gaman, fékk samt ekki komist niður fyrir 12 sekúndur, deeeem........kannski hefði verið betra að vera aðeins undirbúinn líka. Já góðir gestir það var gaman að rúnta um bæinn í samfylgd 5 annarra SAABa, Hannes Wöhler kom á 9 5 Combi ´04, svo kom auðvitað ÖkuÞórir og Birkir, Hvati kom og Sigurbjörn og auðvitað ég sjálfur og mínir menn (Villi bróðir, Kristinn og Davíð). Hitti konu um daginn sem heiti Birna og er systir hans Óla bónda, hún var nýbúin að fá afhentan nýjan SAAB 9 5 Aero. Þessi bíll er hreint og beint geeeeeeðveikur, 260 hö. og virkilega vel búinn og flottur og á rosa flottum felgum, óska ég henni mikið vel til hamingju með þennan eðalgrip.Frábær lækkun á SAAB hjá IH um síðustu helgi, allt seldist upp, ég ætlaði að kíkja í reynsluakstur á svona 1.8i á fimmtudag og þá var allt farið en von á annarri sendingu síðar. Þetta er auðvitað ekkert verð fyrir svona bíl sem er einn öruggasti bíll í heimi og hefur fengið verðlaun fyrir það bæði frá EuroNcap og IIHS þarna í USA en um þetta má lesa hér http://www.saabnet.com/tsn/press/041016.html
Kannski verður málbeinið lausara á þessu ári heldur en því síðasta en ég er hættur í bili.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:12:06 PM