|
|
Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.
fimmtudagur, febrúar 23, 2006
Among Celebrities Það vantar ekki að Nóni er á kafi í ruglinu þessa dagana, á laugardaginn fórum við Bryndís á árshátíð Tryggingastofnunar og fengum við þar dýrindis mat og skemmtun og fékk Nóni í nefið hjá forstjóranum sem er sá frægi maður Karl Steinar Guðnason. Ekki minnkuðu merkilegheitin hjá mínum okkur á sunnudaginn þegar við fórum í skírn hjá okkar góða vini Helga Róberti, þar var hin umtalaða Sylvía Nótt í stóru hlutverki sem skírnarvottur. Reyndar var það jú Ágústa Eva Erlendsdóttir sem er systir konunnar hans Helga og vottaði skírn Emanúels Antons. Þarna var hún þessi geðþekka stúlka að bera fram kaffi og kökur í skírnarveislu litla frænda síns, ein og ein gretta fyrir litlar frænkur spillti ekki fyrir. Á mánudaginn gerðist það svo að ég skrapp út á geymslusvæði að ná mér í eina rúðu og þá er þar Ómar Ragnarsson sem gefur sig á tal við mig, hann var þar að huga að súkkunum sínum sem hann á þar, sérlegur áhugamaður um smábíla. Ómar spyr mig hvort ég sé á leið til Reykjavíkur og ég laug því til að ég væri það, enda ekkert annað að gera í stöðunni en að skutlast með kallinn ef hann vildi far sem hann og bað um. Ég sagðist þurfa að fara eldsnöggt upp á kvartmílubraut og hitta menn sem vildu prófa Blowkart, já ég sagði Blowkart því þessir menn voru með seglbíla sem þá langaði til að prófa á brautinni. Ómar var hinn hrifnasti og kom með og tók viðtal og myndir og allt. Svo skutlaði ég honum upp í útvarpshús og við spjölluðum um virkjanir, álver, Héðinsfjarðargöng og gamla bíla. Ómar var hrifinn af gamla 90 SAABinum sem ég var á og hrósaði honum. Við vorum líka sammála um að Framsóknarflokkurinn væri mesta krabbamein á íslenskri þjóð sem til væri. Þegar við komum í útvarpshúsið heimtaði hann að sýna mér Prinzinn sinn, jú hann á einmitt NSU Prinz sem er 480 kg smábíll sá eini sinnar tegundar á landinu. Ég keypti svo af honum eina mynd, (In memoriam? (Á meðan land byggist á íslensku)) sem hann var með í kassa í farangursrými bílsins og fór svo mína leið. Ég meina bara, er ég ekki á kafi í fræga fólkinu? Ég meina “how high can you fly?”
Að öðru, það er maður sem á SAAB 900i árg. ´87 sem vill losna við hann fyrir lítið og hann heitir Friðrik og þeir sem vilja geta hringt í hann og skoðað bílinn sem fer ekki greiðlega í gang en þó með hörkunni. Síminn hjá Friðriki er 863 2621
Við Bryndís fengum lánaðan 9000 túrbó ´87 sem er ekki ekinn nema 100 þús. km. og er alveg ótrúlega massíft að keyra hann þannig að við erum aldeilis í 7unda himni á meðan að verið er að laga fína SAAB. Aðeins ein hjón hafa átt bílinn alla tíð og ætti hann auðvitað heima á safni annaðhvort á Ystafelli eða í Skagafirðinum rétt hjá Sleitustöðum eða bara á Skógum, ég held að það vanti einmitt SAAB á Skóga.
Takk fyrir að lesa, Nóni
Bloggað klukkan:10:47 PM
mánudagur, febrúar 13, 2006
AEROinn er seldur.........búhúhú.
Það er ekki laust við að maður sakni hans strax nú þegar hann stendur ekki lengur hér í hlaðinu og ekki er hægt að fara á rúntinn á honum og líða um eða stökkva fram úr einhverjum. Frábær bíll sem nýr eigandi verður ekki svikinn af. Nú er hins vegar bara að drífa í að laga þann "fína", "brúna" eða bara "leðurSAABinn" eins og hann er stundum kallaður, hann er búinn að fá nýja diska og klossa að aftan og nú er bara að skella undir hann að framan líka þannig að bremsurnar verði flottar. Svo er líka áætlað að gera smá cosmetics og pínu þetta og pínu hitt, eitthvað sem þarf að gera svo að Bryndís mín verði ánægð með hann, hann tekur jú við hlutverki frúarbílsins for now. Gamli 90 SAABinn er núna eini heimilisbíllinn og það er ekki laust við að hann keyri enn betur eftir að AEROinn seldist, það er eitthvað sem hann skynjar.
Til hamingju Birkir með að vera farinn að keyra um á fína SAABinum, hann verður nú ekki verri þegar loksins er kominn í hann góður millikælir.....:-) Geðveikur bíll og vel unninn.
Aðalfundur í Kvartmíluklúbbnum á laugardaginn var, ný stjórn kosin og er ég sá eini sem eftir er af gömlu stjórninni. Þetta lítur bara vel út sýnist mér, gott fólk kom inn í stjórnina og bjartsýni ríkir.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:5:55 PM
laugardagur, febrúar 04, 2006
Fundur 05.02.2006 kl.1600 í Borgartúni 21
Ekki er um að villast að það er fyrsti sunnudagur í febrúarmánuði og tími kominn til að hittast á SÖÖBUM þeim sem eru ökuhæfir. Ég biðst afsökunar á því að hafa ekki sett neitt hér inn fyrr, haf bara verið hrikalega upptekinn uopp á síðkastið. Við komum samt saman á morgun kl. 16:00 þarna aftan við Borgartún 21 þar sem er húsið Höfðaborg. Mætum sem flest og fögnum febrúar J
Birkir er á fullu að skipta um vél í sínum fína svarta því að vélin var eitthvað biluð og þjappaði ekki rétt, allt er á fullu í Skipholtinu núna og það kæmi mér ekkert á óvart þó að hann kæmi bara keyrandi á morgun á honum.
Kv. Nóni
Bloggað klukkan:9:10 PM
|

|