Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

sunnudagur, mars 26, 2006





Sjáið fína bílinn hans Gunna Sæm!

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:8:38 PM

föstudagur, mars 10, 2006

Það er ekki laust við að maður sé ánægður þegar maður fyllir á tankinn á gamla 9000 bílnum hans Svabba bróður sem ég er búinn að vera með í fóstri í nokkurn tíma núna. Ég var búinn að keyra 533 km og fannst tími kominn á að setja bensín á hann, renndi inn á Atlantsolíu og kom ekki meira en 53 lítrum á hann. Þetta finnst mér lítil eyðsla á svona stórum bíl sem er ekkert sérlega latur í þokkabót, já hann er nefnilega nokkuð seigur bara og ekinn 324 þúsund á mælinum sem b.t.w. var bilaður þegar Svabbi keypti hann og stóð í 312 þúsund. Við vitum ekkert um hvað hann var lengi bilaður áður en við fengum hann en það liðu allavega 3 mánuðir áður en ég lagaði þetta (Nóni framtakssamur). Fór svo með hann í skoðun um daginn og fékk athugasemdalaust ´07 miða, bottomline, frábær bíll. Svabbi minn, Þú verður að hugsa betur um hann, þrífa og taka til í honum öðru hverju, það eykur tiltrú fólks á bílnum og fólki finnst bíllinn æðislegur sem hann og er.

Kvartmíluklúbburinn verður að byggja kappakstursbraut, það verður að koma braut sem hægt er að keyra hratt og læra að keyra og hvernig bíllinn hagar sér, bætt tímana sína annað hvort með því að keyra betur eða ef maður er geðveikur dræver og það er ekki hægt að keyra hraðar að fara þá að bæta fjöðrunina eða stækka bremsurnar, fá sér betri dekk, nú eða hvað er að því að skrúfa upp í túrbóinu? Ég segi ekkert. Ég sá lækkunargorma í 9000 á ebay og líka 17 og 18 tommu felgur, það væri nú ekki leiðinlegt með svona sirka 400 hestöflum.........úhahahahahah.
Eins og ég hef sagt áður þá mun ég róa að því öllum árum að koma upp slíkri braut og þigg alla góða hjálp við það og ráð, og hananú.


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:10:38 AM

þriðjudagur, mars 07, 2006

Mig langar alveg svakalega að fara að keyra á etanóli, hvern langar það svosem ekki. Hægt er að hafa kveikjuna töluvert fljótari og auka búst, namminamm.......Svíjarnir eru farnir að keyra á því í stórum stíl, allavega er selt töluvert af SAAB og Volvo sem brenna etanóli, einnig er Ford farinn að framleiða Focus sem gerir það líka. Etanól er lítið mál að búa til í verksmiðju hér á landi og er unnið að þeim málum í Íslenska lífmassafélaginu, það yrði þá ræktuð lúpína á stóru svæði eins og söndum fyrir austan og notuð jarðgufa til að eima etanólið úr. Draumar? Kannski, en hvar værum við ef við hefðum ekki þá.

Gunni vinur minn er búinn að setja túrbínuna í Golfinn, ekki nóg með það því að hann er líka búinn að fara með mig út að keyra smá spotta. Það var ekki laust við að túrbófílingurinn kikkaði inn þegar Gunni lét hann snúast, greinilega flott setup hjá honum. Túrbínan er nú heldur enginn aumingi, þessi túrbína hefur keyrt út kvartmílubrautina á 12.1 sekúndu í SAABinum mínum.
Til hamingju Gunni, þú ert svakalegur en vonandi ekki gírlaus.

Lars Persson ætlar að selja 900 SAABinn sinn sem er T16 árg. 1990 4ra dyra með ljósu leðri og rafmagni í rúðum og eftirmarkaðs topplúgu. Bíllinn er ekinn 199.000 km. og ber það svo sannarlega ekki með sér því að hann lítur út nánast sem nýr, ferlega vel með farinn bíll sem enginn verður svikinn af.
Lars er með síma 822 5642

Hópaksturinn tókst vel í gærkveldi og voru SAABarnir virðulegir þarna aftarlega í röðinni, Ég mætti á ´87 9000 túrbó, Bjarni á 9000 CD, Þórir á 9000 CD 2.3 T, Birkir og Kjartan á ´92 9000 túrbó, Lars kom á 900 T16 og Grétar á 900 S 2.3

Það var eitthvað meira sem mig langaði til að segja en það verður að koma næst.



Bestu kveðjur og þakkir fyrir samkeyrsluna,

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:12:45 AM

föstudagur, mars 03, 2006

Sælir félagar, nú líður að sunnudegi og það er sá fyrsti í marsmánuði sem þýðir að við hittumst á Sööbunum. Ég hef ákveðið að bera undir ykkur tillögu um að hittast að kvöldi sunnudagsins niðri á hafnarbakka klukkan 19:00 og fylgja hópakstrinum sem verður þar kl. 19:20 til að minna á hættur þær sem skapast af hraðakstri og þörfina á braut fyrir menn með hraðafíkn til að fá útrás fyrir hana. SAABarnir geta keyrt hratt og þess vegna vantar okkur svona braut líka, ég er ritari í stjórn Kvartmíluklúbbsins og Hafnarfjarðarbær er búinn að úthluta okkur svæði undir svona braut og ætlum við að ráðast í það verkefni þegar allt hefur verið tryggt, (skiplag, fjármagn og annað).
Þetta er auðvitað ekkert annað en eiginhagsmunagæsla hjá mér því að minn stóri sonur Kristinn á 6 ára afmæli á mánudaginn og verður það haldið á sunnudaginn af einskærri hrekkvísi því að hún veit að ég fer alltaf á SAAB fund fyrsta sunnudag í mánuði. ?
Endilega komið með comment á þessa tillögu sem er jú einungis tillaga eða tilmæli.

Grétar Dór kom með góðar tillögur sem við verðum að hrinda í framkvæmd fljótlega, t.d. að koma saman og horfa á SAAB myndband, hafa spurningakeppni, reynsluaka nýjum SÖÖBum, hafa kvartmílukeppni og síðast en ekki síst, fyrirlestur formannsins um sögu SAAB. Skipuleggjum þetta fyrir næsta fund og höfum skemmtilegt.

Hann Mats í Svíþjóð á kraftmeiri SAAB en ég, þ.e.a.s. 9000 með 2.0 lítra vél og hann er búinn að fara kvartmíluna á 11,59 sekúndum og aðeins 129 mílum sem er brjálæðislega góður hraði, hér er linkurinn sem ég fékk sendan, svo er hér linkur á síðuna hans, Hann er með 473 hestöfl á 6500 sn. Það er bara flott hjá honum, að vísu með nitro og á einhverju skrítnu bensíni, samt geðveikt flottur.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:11:31 PM