Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

mánudagur, apríl 17, 2006

Góðir páskar hjá okkur hér á Álfhólsveginum, ekkert gert og vellíðan höfð í hávegum. Að vísu fórum við á laugardaginn í bíltúr í Hvalfjörðinn og hittum Gumma, Arnheiði og litlu prinsessunni af Bjarteyjarsandi, komum við á skaganum og hittum Begga og enduðum loks í Kópavoginum aftur og fengum okkur dýrindis lambalæri. Á páskadag forum við svo í hringtúr Þorlákshöfn, Krýsuvík, Hafnarfjörður sem var mjög gaman. Allt þetta forum við á Bláa bílnum hans Svabba bróður sem er jú ekkert smá frábær bill, keyrir hvert á land sem er og eyðir nánast engu.

Ég veit að ég á ekki að vera að gaspra um það en ég get ekki þagað eins og svo oft áður, eins og þið sjáið er búið að breyta aðeins síðunni og þá sérlega tenglunum til vinstri. Það sem ég ætlaði að segja er að hann bróðir minn vefdólgurinn er á góðri leið með að setja upp spjall handa okkur hér á síðunni, aðeins strandar á hosternum sem á eftir að gefa honum upp eitthvað blabla….. sem ég er ekki alveg með á. Þá verður allavega hægt að setja inn auglýsingar með SÖÖBum til sölu. Get ekki sagt hvenær en hann lofaði að flýta þessu sem mest hann mátti.

Gæti sagt ykkur eitthvað um 900 bílinn minn en það er best að ég bíði með það þangað til að ég set inn myndir og er kominn með loomið fyrir Autronic tölvuna.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:8:26 PM

þriðjudagur, apríl 11, 2006

Sjáið þið bara þetta.........

http://www.aftonbladet.se/vss/bil/story/0,2789,805201,00.html

Og ef þið skiljið ekki sænsku, nú þá verðið þið bara að læra hana eða kíkja á þennan hérna link.....

http://www.trollhattansaab.net/ það heitir, Did GM Screw Saab's Hybrid?


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:12:25 AM

sunnudagur, apríl 09, 2006

Hafa menn skoðað þennan hérna http://www.saabvideos.com

Þarna eru mörg skemmtileg myndskeið sem láta hvaða SAAB aðdáanda gleyma sér tímunum saman, ég ætti sennilega að senda honum mín video......

http://icesaab.net/pix/Runstytt3.WMV
og kannski þetta.....

http://forum.vwsport.com/pics/data/500/220MVI_0003.AVI


Gaman, Nóni

Bloggað klukkan:8:07 PM

miðvikudagur, apríl 05, 2006

Hann Garðar partasali er víst látinn, allt of ungur. Þó að stundum værum við Garðar ekki sammála þá var skein alltaf í glottið hjá okkur og það var yfirleitt bara gaman að spjalla við hannn og fá hjá honum einhverja parta.


Hvað er í gangi þarna uppi í IH? Félagarnir eru búnir að vera að segja mér allskonar miður góðar sögur af samskiptunum við starfsfólkið þar og ég sjálfur fékk ekki viðunandi þjónustu þegar ég kom þar við um daginn. Vildi vita hvað ég þyrfti að borga fyrir 9 3 sport combi með 2.0 turbo 150 hö þegar ég var að spá í að setja Aeroinn upp í svoleiðis bíl áður en ég seldi hann. Maðurinn sagði að þetta væru allt sérpantanir og það sagði konan mér líka sem ég talaði við áður þegar ég forvitnaðist um svona bíl, fékk því miður ekki fullnægjandi svör og ekki neitt um ástæður þess.
Tveir félagar fóru þar niðureftir og vildu reynsluaka 9 5 og þeir fengu eitthvað ja og jamm og að það væri ekki bíll inni, þegar svo bíllinn kom inn spurðu þeir á ný hvort ekki væri hægt að fá að keyra og þá hummaði konan bara eitthvað og lét sig hverfa. Það var ekki reynsluekið þann daginn.
Heyrði líka sögu af því að menn hefðu farið og ætlað að fá varahluti í SAABinn sinn og fengið vægast sagt lélegar viðtökur. Ennfremur að maður sem keypt hefði þessa líka fínu notuðu 9 5 og ekki fengið nema einn lykil með henni, ekkert óeðlilegt við það svosem nema ef vera skyldi að á rúnti sínum í Hveragerði kom að honum kona og rétti honum lykil og sagði að hann gengi að hans fína SAAB. Maðurinn spurði í mesta góðlæti hvað hefði valdið því lykillinn kom ekki með og fékk þá að vita að konan hefði reynt að koma lyklinum til skila í IH en enginn þar vildi taka við honum. Ég spyr bara halló........er einhver heima?
Ein dæmisaga í viðbót á mjög stuttum tíma, einn góður félagi í SAAB klúbbnum hringdi í mig og spjallaði um hitt og þetta. Sagði farir sínar ekki sléttar af IH, hann á rosa fína steisjon 9 5 með 2,3 árg. 2004 og langar að eiga nýjan Aero. Hann hafði farið á sænsku síðuna og búið til bílinn sem hann vildi fá og prentaði svo út, SAAB presenterar það að þeir klæðskerasumi bílana eftir óskum viðskiptavina sinna sem er svo ekki hægt á íslensku síðunni sennilega vegna smæðar markaðarins. Hann fór með miðann til sölukonunnar sem stendur yfirleitt hjá SAABinum og hún leit á þetta og sagði að hún þyrfti að fara yfir þetta og myndi bara hringja í hann þegar hún vissi verðið. Allt gott með það nema að svo hringir hún ekkert, maðurinn fer niður í IH eftir hálfan mánuð þá hafði hún víst eitthvað reynt að ná á hann en ekki tekist, hann fær að vita það að það sé ekki hægt að fá þennan bíl vegna þess að bílarnir komi í gegn um Danmörku og þeir standi ekki í neinum sérpöntunum. HALLÓÓÓÓ............þeir eru nú aldeilis seigir. Manninum þótti þetta nú heldur skrýtið vegna þess að hann hafði lesið á síðunni hjá mér að kona ein hefði keypt sé nýjan Aero fyrir stuttu í gegn um IH, skrifaði nú reyndar ekki að þeir hefðu breytt pöntuninni frá því að hún pantaði hann, og hann kom allt of seint því það klúðraðist eitthvað pöntunin.

Annars vil ég óska Gunna Sæm virkilega vel til hamingju með SAABana sína, búinn að smita hann all hressilega af SAABdellunni, hann keypti ´88 módel af 900i sem þurfti aðeins að ditta að um daginn. Svo keypti hann sér í gær þennan líka fína 9000 CD 2.0 túrbó ´88 beinskiptan með leðri sem er svaka góður, skoðaður, smurður og fullur af bensíni. Ég er búinn að vera með hann síðan í gær og það er ekkert smá gaman að keyra hann.


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:9:11 PM

laugardagur, apríl 01, 2006

SAAB fundur á sunnudag kl. 16:00 við hús verslunarinnar sem er gengt Kringlunni.



Hef ekki getað bloggað neitt vegna einhvers vesens sem ég kann ekki skil á.



Kv. Nóni

Bloggað klukkan:8:37 PM