Hér fá menn fréttirnar af Icesaab teyminu.

mánudagur, maí 22, 2006

Ég get ekki sagt annað en að ég hafi verið töluvert undrandi þegar ég sá í fréttunum í gær að það stæði til að byggja allsherjar akstursíþróttasvæði með svakalegri kappakstursbraut og fleiru. Ég fagna þessu framtaki og óska þeim sem að málinu koma innilega til hamingju með þetta afrek ef satt er. Þó set ég ákveðna varnagla við þetta í fyrstu. Sennilega er ég bara ekki nógu víðsýnn, eða stórhuga, ég bara skil ekki alveg hver fjárfestir í kappakstursbraut á Íslandi fyrir 4500 milljónir. Ef ég ætti þessa fjárhæð til að spila með myndi ég örugglega leggja hana í svona dæmi þegar ég væri búinn að sannfæra sjálfan mig um að það væri arðbært. Hvað þarf ávöxtun að vera á svona peningum? Kannski 5% sem myndi gera nálægt 225 millur, á ári, það er svo eftir að láta mannvirkið standa undir sér, reka sig, það kostar líka mikla peninga. Kannski eru þetta smáaurar hjá þeim sem ætla að reka þetta mannvirki, hvað veit ég? Ég veit ekki mikið um þetta en ég sé ekki svo mikil læti í íslensku mótorsporti nú þegar að það verði annað en eitthvað smáræði af og til, menn ætla hins vegar sennilega að flytja inn alþjóðlegar keppnir eins og A1 og hvað annað og kannski skaffar það peninga. 300 störf þurfa líka peninga, það eru sirka 1000 millur í launakostnað, annar kostnaður er mér alls ekki ljós enda þekki ég ekkert inn á svona brautarhald. Hluti þess kostnaðar hlýtur að koma inn á þjónustu og vöru sem það fólkið selur.
Þegar ég er að skoða hvernig við myndum fara að þessu í Kvartmíluklúbbnum þá er það fyrsta sem ég hugsa að okkar braut myndi aldrei verða svona dýr og ekki svona stór, það yrði ekkert fansí sjitt eins og margt í þessari hugmynd þarna og sennilega engin ávöxtunarkrafa vegna þess að við erum jú íþróttafélag og þurfum aðeins að geta rekið draslið. Það hlýtur að verða rosalega dýrt að fá að keyra þarna, ef að maður fær þá yfir höfuð að fara inn með bílinn sinn. Eða hvað? Er allt í einu einhver peningakallinn rosa góður við okkur og ætlar bara að leyfa okkur að nota brautina sína? Það er ekki mín reynsla að einhver bara rétti mér eða mínu eitthvað og segi “hérna, notaðu þetta eins og þú vilt þó að þetta kosti marga milljarða”. Sumir segja að ekkert sé nýtt undir sólinni en aðrir segja að lífið sé fullt af einhverju nýju en hingað til hafa þeir sem eiga peningana haldið frekar fast um þá og helst reynt að ná sem mestu af þeim sem eiga sem minnst af þeim. Svona er nú bara lífið fyrir mér og ég er ekki talinn sá óraunsæasti.
Það sem ég vona nú samt mest er að þetta sé allt rétt sem komið hefur fram og sé ekki nein vitleysa, það hlýtur eiginlega að vera rétt vegna þess hversu langt það er komið í fjölmiðlum.
Hvað finnst ykkur sem þetta lesið?
Finnst ykkur líklegt að hægt verði að fara þarna á föstudagskvöldum og keyra með allt í botni?
Ég segi vonandi án þess að maður þurfi að setja fram stórar fjárhæðir í hvert skifti.


Kv. Nóni

Bloggað klukkan:10:52 PM

föstudagur, maí 05, 2006

Við hittumst aftan við hús Sjóvár í Kringlunni, milli Moggans og Sjóvár á sama stað og síðast kl. 16:00 á sunnudaginn 7 maí.

Annars hef ég ekkert nennt að skrifa hér inn síðan Svabbi settu upp spjallið, ég er búinn að fá loomið í 900 bílinn þannig að ég get farið að setja hann í gang á Autroninc standalone.



Hittumst hress á sunnudag.

Kv. Nóni

Bloggað klukkan:11:01 PM