Icesaab spjalllið

Hér er spjallað um Saab ójá!
It is currently 07 Sep 2010, 09:11

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 5 posts ] 
Author Message
 Post subject: Saabinn hennar Önnu
PostPosted: 11 Aug 2009, 09:00 
Offline
SAAB

Joined: 10 Aug 2009, 13:47
Posts: 7
Sæl öll
Ég hef nú ekki verið mjög virk hérna inni en langaði til að deila með ykkur upplýsingum um Saabinn minn sem ég og maðurinn minn fluttum með okkur hingað frá Svíþjóð 2005.

Þetta er Saab 900 með 2,0 l, 16 ventla mótor. Kann nú ekki mikið meira að segja frá því. Hann er árgerð 1990 en var tekinn á götuna 1989. Keyrður ca. 215 þ. Við erum aðrir eigendur bílsins og við keyptum hann 2003.
Það skal tekið fram að þetta er eini bíll fjölskyldunar.

Greyið hefur ryðgað mikið frá því að hann kom hingað. Þarf að fara lagfæra hann a.m.k. útlitslega.

En það sem mig langaði til að segja ykkur var að ég og maðurinn minn fórum á honum hringinn í sumar. Við vorum með son okkar, mikinn farangur og farangursbox á þakinu. Þrátt fyrir þetta komumst við niður í 6,7 lítra á 100 km í eyðslu á langkeyrslu (maðurinn minn keyrir reyndar svolítið eins og kerling =)
Þykir þetta ekki nokkuð gott af þetta gömlum bíl?

Set inn mynd af dýrgripnum mínum hérna fljótt. Þarf bara að þrífa hann og verða mér úti um hjólkoppa fyrst. Við erum búin að týna þremur. Hvar fengi ég fína saab hjólkoppa?

Hlakka til að heyra frá ykkur
kv. Anna, glaður saab eigandi.


Last edited by akjepp on 11 Aug 2009, 09:06, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
 
 Post subject: hahahaha
PostPosted: 11 Aug 2009, 09:01 
Offline
SAAB

Joined: 10 Aug 2009, 13:47
Posts: 7
Nei sko sonurinn og farangurinn voru inni í bílnum en boxið á þakinu :lol:


Top
 Profile  
 
 Post subject: Re: Saabinn hennar Önnu
PostPosted: 26 Oct 2009, 00:56 
Offline
SAAB

Joined: 26 Oct 2009, 00:36
Posts: 4
Það eru ekki allar fjölskyldur sem myndu fara út á land á svona gömlum bíl, en Saabnum er hægt að treysta!

Flott þessi eyðsla, er þetta sjálfskiptur eða beinskiptur bíll?


Top
 Profile  
 
 Post subject: Re: Saabinn hennar Önnu
PostPosted: 26 Oct 2009, 09:03 
Offline
SAAB

Joined: 10 Aug 2009, 13:47
Posts: 7
Hann er beinskiptur.
Það var engin umferð þannig að við héldum mjög jöfnum hraða alla leið. Ég held að við höfum tekið fram úr einum traktor eða svo :)


Top
 Profile  
 
 Post subject: Re: Saabinn hennar Önnu
PostPosted: 27 Oct 2009, 16:17 
Offline
SAAB Admin

Joined: 19 Apr 2006, 11:11
Posts: 440
900 16 ventla eru svakalega eyðslugrannir og góðir bílar, komu fyrst 1989 og voru framleiddir til 1993, þá var búið að framleiða þá lítið breytta frá 1978 og þá getur maður séð að það er búið að ná úr þeim helstu göllunum svona eftir hendinni en þá hættir maður að sjálfsögðu að framleiða þá :lol:


Kv. Nóni

_________________
Kær kveðja, Nóni

Ég á nokkra SAABa.
Betra er að blása en sjúga!


Top
 Profile  
 
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 5 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 1 guest


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum
You cannot post attachments in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB © 2000, 2002, 2005, 2007 phpBB Group